Morðin á Illugastöðum

Leyft öllum aldurshópum

4. þáttur: Dómar, aftökur og uppgröftur á beinum

Í fjórða þætti um morðin á Illugastöðum er sagt frá dómunum yfir þeim Agnesi, Friðriki og Sigríði. Við fylgjum Agnesi og Friðriki á aftökustaðinn og heyrum samtímafrásögn af því hvernig fullnustu dómanna var háttað. Þá höldum við áfram að reyna að komast til botns í af hverju þremenningarnir ákváðu að myrða Natan. Í lokin er sagt frá hvernig bein Agnesar og Friðriks fundust fyrir tilstilli miðils.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morðin á Illugastöðum

Sagan af Natani og Agnesi, Friðriki og Sigríði.

Aðfararnótt 14. mars árið 1828 voru Natan Ketilsson og maður sem kallaður var Fjárdráps-Pétur, myrtir á hroðalegan hátt á Illugastöðum á Vatnsnesi. Frásagnir og vangaveltur um morðin hafa lifað með þjóðinni í nærri tvö hundruð ár og enn er fjallað um þau.

Agnes Magnúsdóttir, Friðrik Sigurðsson og Sigríður Guðmundsdóttir voru dæmd til dauða fyrir morðin. Tvö þeirra voru hálshoggin á Þrístöpum tæpum tveimur árum síðar og það voru síðustu aftökurnar á Íslandi.

Af hverju ákváðu Agnes, Friðrik og Sigríður að drepa Natan og Pétur? Í þáttunum er leitað skýringa á því, reynt að lesa í persónurnar sem koma við sögu og athugað hvort hægt sé að leita skýringa í réttarfari, tíðaranda og aðstæðum fólks á þessum tíma.

Umsjón: Þorgeir Ólafsson.

Þættir

,