Morðin á Illugastöðum

Leyft öllum aldurshópum

2. þáttur Myrða eða ekki myrða

Í 2. þætti var haldið áfram að rekja aðdragandann að morðunum, velt fyrir rannsókn Björns Blöndals sýslumanns, rætt um ástand og lífsviðurværi fólks í byrjun 19. aldar og sagt frá Vatnsenda-Rósu. Þá er haldið áfram að segja frá samfélaginu í byrjun 19. aldar og af ráðagjörðum þremenninganna Agnesar, Friðriks og Sigríðar. Einnig er sagt frá Vatnsenda-Rósu, spáð í persónuleika Natans, rætt um dómskerfið í byrjun 19. aldar og velt fyrir sér afhverju ásakanir Agnesar og Sigríðar um ofbeldi af hálfu Natans var ekkert rannsakað.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morðin á Illugastöðum

Sagan af Natani og Agnesi, Friðriki og Sigríði.

Aðfararnótt 14. mars árið 1828 voru Natan Ketilsson og maður sem kallaður var Fjárdráps-Pétur, myrtir á hroðalegan hátt á Illugastöðum á Vatnsnesi. Frásagnir og vangaveltur um morðin hafa lifað með þjóðinni í nærri tvö hundruð ár og enn er fjallað um þau.

Agnes Magnúsdóttir, Friðrik Sigurðsson og Sigríður Guðmundsdóttir voru dæmd til dauða fyrir morðin. Tvö þeirra voru hálshoggin á Þrístöpum tæpum tveimur árum síðar og það voru síðustu aftökurnar á Íslandi.

Af hverju ákváðu Agnes, Friðrik og Sigríður að drepa Natan og Pétur? Í þáttunum er leitað skýringa á því, reynt að lesa í persónurnar sem koma við sögu og athugað hvort hægt sé að leita skýringa í réttarfari, tíðaranda og aðstæðum fólks á þessum tíma.

Umsjón: Þorgeir Ólafsson.

Þættir

,