Morðin á Illugastöðum

Sagan af Natani og Agnesi, Friðriki og Sigríði.

Aðfararnótt 14. mars árið 1828 voru Natan Ketilsson og maður sem kallaður var Fjárdráps-Pétur, myrtir á hroðalegan hátt á Illugastöðum á Vatnsnesi. Frásagnir og vangaveltur um morðin hafa lifað með þjóðinni í nærri tvö hundruð ár og enn er fjallað um þau.

Agnes Magnúsdóttir, Friðrik Sigurðsson og Sigríður Guðmundsdóttir voru dæmd til dauða fyrir morðin. Tvö þeirra voru hálshoggin á Þrístöpum tæpum tveimur árum síðar og það voru síðustu aftökurnar á Íslandi.

Af hverju ákváðu Agnes, Friðrik og Sigríður drepa Natan og Pétur? Í þáttunum er leitað skýringa á því, reynt lesa í persónurnar sem koma við sögu og athugað hvort hægt leita skýringa í réttarfari, tíðaranda og aðstæðum fólks á þessum tíma.

Umsjón: Þorgeir Ólafsson.

Þættir

,