Molière í 400 ár

1. þáttur - Molière í 400 ár

Á þessu ári eru fjögur hundruð ár liðin frá fæðingu franska leikskáldsins Molière sem gjarnan er talið eitt helsta gamanleikjaskáld veraldar. Í þremur þáttum verður fjallað um feril Moliére, sem var ekki síður þekktur sem leikari á sínum tíma, og nokkur helstu verk. Umsónj: Ásdís Rósa Magnúsdóttir, Guðrún Kristinsdóttir, Irma Erlingsdóttir, Toby Erik Wikström og Þröstur Helgason.

Samsetning: Guðni Tómasson.

Í þáttunum hljóma upptökur á leiklestri leikara Þjóðleikhússins úr nokkrum verkum Molière. Í þessum þætti hljóma:

-Leiklestur á þýðingu Hallgríms Helgasonar á Loddaranum sem sýnd var í Þjóðleikhúsinu árið 2019. Pálmi Gestsson í hlutverki loddarans, Ragnheiður Steindórsdóttir í hlutverki Elmíru og Sigurður Sigurjónsson í hlutverki eiginmannsins Orgeirs. Hljóðupptakan var gerð í desember 2022 í Ríkisútvarpinu. Um hana Georg Magnússon.

- Leiklestur á nýrri þýðingu Ásdísar R. Magnúsdóttur á Broddlóunum. Pálmi Gestsson í hlutverki Gorgibusar, Ragnheiður Steinsdórsdóttir í hluverki Möggu og Ebba Katrín Finnsdóttir í hlutverki Kötu. Hljóðupptakan var gerð í desember 2022 í Ríkisútvarpinu.

- Í þættinum hljómar einnig hljóðritun úr safni Ríkisútvarpsins frá árinu 1972 þar sem Valur Gíslason fer með einræðu Harpagons úr Aurasálinni í þýðingu Þorsteins Ö. Stephensen.

Frumflutt

20. des. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Molière í 400 ár

Molière í 400 ár

Á þessu ári eru fjögur hundruð ár liðin frá fæðingu franska leikskáldsins Molière sem gjarnan er talið eitt helsta gamanleikjaskáld veraldar. Í þremur þáttum verður fjallað um feril Moliére, sem var ekki síður þekktur sem leikari á sínum tíma, og nokkur helstu verk. Umsjón: Ásdís Rósa Magnúsdóttir, Guðrún Kristinsdóttir, Irma Erlingsdóttir, Toby Erik Wikström og Þröstur Helgason.

Samsetning: Guðni Tómasson.

,