KK sextettinn
Fjórði og síðasti þátturinn um KK-sextettinn, eina af áhrifamestu hljómsveitum íslenskrar dægurtónlistar á sínum tíma. Ferill KK-sextettsins er rakinn til starfsloka árið 1961 og sagt…
Fjórði og síðasti þátturinn um KK-sextettinn, eina af áhrifamestu hljómsveitum íslenskrar dægurtónlistar á sínum tíma. Ferill KK-sextettsins er rakinn til starfsloka árið 1961 og sagt frá hljómsveitarstjóranum Kristjáni Kristjánssyni og áhrifum hans á íslenskt tónlistarlíf.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 5. mars 2009

Leikin er gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög. Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum. Umsjónarmaður þáttarins er Lana Kolbrún Eddudóttir.