Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

KK-sextettinn

Annar þátturinn um KK-sextettinn fjallar einkum um síðari hluta sjötta áratugarins, þegar hljómsveitin naut mikilla vinsælda og lék meðal annars í Þórscafé. Sagt er frá söngvurunum Ragnari Bjarnasyni og Elly Vilhjálms, samstarfi þeirra við sveitina og þætti Ólafs Gauks í textagerð og útsetningum. Einnig er fjallað um upptökur KK-sextettsins, þar á meðal sjaldgæfar hljóðritanir sem gerðar voru á æfingum og dansleikjum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 19. febrúar 2009

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Leikin er gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög. Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum. Umsjónarmaður þáttarins er Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,