Þáttur 24 af 27
Leiknar eru útvarpsupptökur með Hljómsveit Hauks Morthens, en nú er komið að upptökum frá áttunda áratugnum. Þeir sem leika í hljómsveitinni eru píanóleikarinn Carl Möller, gítarleikarinn…
Litla flugan leikur lög með söngvaranum Johnny Hartman, sem heimurinn uppgötvaði seint og um síðir löngu eftir að hann lést. Einnig lög með Fats Waller og Earthu Kitt.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 2. nóvember 2006.

Í Litlu flugunni er leikin tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.