Þáttur 24 af 27
Leiknar eru útvarpsupptökur með Hljómsveit Hauks Morthens, en nú er komið að upptökum frá áttunda áratugnum. Þeir sem leika í hljómsveitinni eru píanóleikarinn Carl Möller, gítarleikarinn…
Litla flugan dregur fram allskonar sjómannalög, íslensk og erlend. Sungið er um þilför og siglingar, aflabrögð og óveður sem og heimþrá og stúluna sem bíður í landi.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 12. október 2006.

Í Litlu flugunni er leikin tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.