Kvöldfréttir útvarps

Brasilísks glæpasamtök starfa hér og halli á Landspítalanum

Stærstu skipulögðu glæpasamtök Brasilíu - PCC - eru talin starfa hér á landi Dómsmálráðherra er staðráðin í að taka fast á þeim málum.

Forstjóri Landspítalans segir að tvo milljarða vanti inn í reksturinn miðað við fjárlagafrumvarpið. Sú fjárhæð dugi þó einungis til að viðhalda núverandi þjónustu en ekki fyrirséðri aukinni þjónustuþörf.

Verið er að draga Bandero, skip Paul Watson samtakanna, frá Akranesi til Reykjavíkur í var, vegna illviðris sem spáð er á morgun. Samtökin hafna með öllu að taka þátt í kostnaði.

Ungverska þingið samþykkti í morgun að fella úr gildi ákvæði í barnaverndarlögum sem takmarka réttindi hinsegin fólks. Þetta er fyrsta skrefið sem stigið er til að afturkalla slíkar takmarkanir eftir stjórnartíð Viktors Orbans.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir.

Þættir

,