Fimmti þáttur
Björgun Harry Eddom dró tugi breskra fjölmiðla til Ísafjarðar sem urðu æfir þegar þeir komust að því að The Sun hafði tryggt sér einkarétt að sögu hans. Starfsfólk sjúkrahússins á…

Óveðrið 4.-5. febrúar 1968 er eitt versta veður í manna minnum. Í Ísafjarðardjúpi leituðu á þriðja tug togara vars en ísinging hlóðst upp og skipverjar börðu af ísinn fyrir lífi sínu. Tvö skip sukku í hyldýpið og það þriðja strandaði. Eftir sátu fjölskyldur í sárum. Fjallað er um óveðrið, þrautsegju, hetjudáð og sorg en líka um hvað hefur breyst síðan þetta örlagaríka veður dundi á.
Umsjón: Halla Ólafsdóttir og Birgir Olgeirsson.