Hver á landi fegurst er?

Fimmti þáttur

Hvernig eldast konur í ævintýrum? Deyja konur tvisvar? Hvers vegna hræðast konur breytingaskeiðið? Er hægt sakna þess vera hlutgerð? Hvaða áhrif hafa samfélagsmiðlar? Hver er framtíð fegurðarstaðla? líta út fyrir vera sjötug kona? Er gott vera gömul kona á Íslandi? Reynt verður svara þessum og fleiri spurningum í fimmta þætti.

Þáttastjórnandi: Kristlín Dís Ingilínardóttir.

Viðmælendur: Guðrún Ásmundsdóttir, leikkona og leikskáld, Alma Mjöll Ólafsdóttir, blaðamaður, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, dansari og danshöfundur, Fríða Ísberg, rithöfundur, Katrín Helga Andrésdóttir, söngkona, Nína Hjálmarsdóttir, sviðshöfundur og Þórdís Kjartansdóttir, lýtalæknir.

Frumflutt

15. júní 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hver á landi fegurst er?

Hver á landi fegurst er?

Það er gömul saga og ekki er hægt treysta því sem fyrir augu ber. Oft er flagð undir fögru skinni eða prins í frosklíki. Við látum samt blekkjast af útliti, drögum ályktanir um hvaða innri mann manneskja hefur geyma án þess hafa kynnst henni, refsum ófríðu fólki og veitum þeim fögru forskot.

Líffræði og menning virðast eggja mannkynið áfram í ákveðinni útlitsdýrkun. Þriggja ára byrjum við dæma út frá útliti og hefur það gríðarleg áhrif í gegnum æviskeiðið. Þrátt fyrir útlitsstaðlar virðast alltaf hafa fylgt okkur hafa þeir tekið stakkaskiptum í gegnum tíðina og hinn svokallaði fullkomni líkami í dag hefði eflaust ekki þótt sérlega tilkomumikill fyrir nokkur hundruð árum.

Kristlín ræðir við sálfræðinga, vísindamenn, dansara, baráttufólk, lýtalækni, sagnfræðing og alla vini sína til reyna komast því hvar og hvenær útlitsfordómar byrja, hvaða áhrif þeir hafa og hvort það hægt breyta hausnum á sér.

Umsjón: Kristlín Dís Ingilínardóttir.

Þættir

,