Hver á landi fegurst er?

Þriðji þáttur

Hvað eru konur tilbúnar fórna mörgum árum af lífi sínu fyrir hinn fullkomna líkama? Hver er saga förðunnar og er hún rasísk? Hvers vegna vill fólk leggjast undir hnífinn? Hvað er líkamsskynjunarröskun? Eru allir jarðarbúar með brenglaða sjálfsmynd? Reynt verður svara þessum og fleiri spurningum í þriðja þætti.

Þáttastjórnandi: Kristlín Dís Ingilínardóttir.

Viðmælendur: Kristín Taiwo Reynisdóttir og Anna María Allawawi Sonde, stofnendur Anti-rasistanna, Þórdís Kjartansdóttir, lýtalæknir, Fríða Ísberg, rithöfundur, Katrín Helga Andrésdóttir, söngkona, Jóhanna Rakel, listakvár og Andri Steinþór Björnsson, prófessor í sjónskynjun. Auk efnis úr Við sem heima sitjum.

Frumflutt

15. júní 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hver á landi fegurst er?

Hver á landi fegurst er?

Það er gömul saga og ekki er hægt treysta því sem fyrir augu ber. Oft er flagð undir fögru skinni eða prins í frosklíki. Við látum samt blekkjast af útliti, drögum ályktanir um hvaða innri mann manneskja hefur geyma án þess hafa kynnst henni, refsum ófríðu fólki og veitum þeim fögru forskot.

Líffræði og menning virðast eggja mannkynið áfram í ákveðinni útlitsdýrkun. Þriggja ára byrjum við dæma út frá útliti og hefur það gríðarleg áhrif í gegnum æviskeiðið. Þrátt fyrir útlitsstaðlar virðast alltaf hafa fylgt okkur hafa þeir tekið stakkaskiptum í gegnum tíðina og hinn svokallaði fullkomni líkami í dag hefði eflaust ekki þótt sérlega tilkomumikill fyrir nokkur hundruð árum.

Kristlín ræðir við sálfræðinga, vísindamenn, dansara, baráttufólk, lýtalækni, sagnfræðing og alla vini sína til reyna komast því hvar og hvenær útlitsfordómar byrja, hvaða áhrif þeir hafa og hvort það hægt breyta hausnum á sér.

Umsjón: Kristlín Dís Ingilínardóttir.

Þættir

,