Helmingi dekkra en nóttin

Seinni þáttur

Árið 1957 tók Ásta Sigurðardóttir saman við skáldið Þorstein frá Hamri og þau eignuðust fimm börn, þrjá drengi og tvær stúlkur. Fyrir átti Ásta einn son með Jóhannesi Geir listmálara. Ásta Sigurðardóttir andaðist í Reykjavík, langt fyrir aldur fram, 21. desember árið 1971, aðeins 41 árs aldri eftir hafa átt við áfengisvanda stríða um langa hríð. Vera Sölvadóttir fjallar um skáldið og listakonuna Ástu Sigurðardóttur.

Frumflutt

3. jan. 2021

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Helmingi dekkra en nóttin

Helmingi dekkra en nóttin

Vera Sölvadóttir fjallar um skáldið og listakonuna Ástu Sigurðardóttur. Fluttir verða tveir þættir um líf listakonunnar og ótímabæran dauða hennar. Ásta Sigurðardóttir vakti mikla athygli á sjötta áratug síðustu aldar og hefur nafn hennar haldist á lofti allar götur síðan. Það voru ekki einungis verk Ástu sem vöktu athygli fólks heldur persónan og náttúrubarnið Ásta sjálf.

Ásta sýndi einstaka listræna hæfileika bæði á sviði rit- og myndlistar. Sögur hennar og myndir bera vott um tilfinningaríka og hreinskipta listakonu, sem á ögrandi hátt storkaði viðteknu siðgæði í smábænum Reykjavík um miðja 20. öld. Auk þess var Ásta oft kölluð Ásta módel og varð vinsælt umræðuefni bæjarbúa þar sem hún hafði atvinnu sitja fyrir nakin fyrir myndlistarnema. Ásta Sigurðardóttir andaðist í Reykjavík, langt fyrir aldur fram, þann 21. desember árið 1971, aðeins 41 árs aldri.

Þættir

,