Í dag fjallar Grár köttur um börn, eða nánar tiltekið hvernig þau verða til. Það ferli á að vera skemmtilegt, allavega svona í upphafi, en þó við eyðum mikilli orku í að koma í veg fyrir barneignir snemma á lífsleiðinni reynist það stundum þrautin þyngri að búa til börn þegar upp er staðið. Í þættinum í dag heyrum við þrjár sögur af ófrjósemisvanda, um drauma sem virðast aldrei ætla að rætast og líkama sem bregðast.
Birt
15. mars 2019
Aðgengilegt til
5. nóv. 2026
Grár köttur
Hlustendur læðast í kringum menn og málefni í leit að hugljómunum, nýjum sjónarhornum og sögum sem skipta máli.