Eftir 76 ár af smygli og heimabruggi var bjórbanninu á Íslandi loks aflétt þann 1. mars árið 1989. Leiðin frá bannárunum til bjórsins var nokkuð skrautleg en hana fetar Grár köttur í þætti dagsins með aðstoð Stefáns Pálssonar sagnfræðings, Davíðs "sem keypti ölið" Scheving, frumkvöðlanna á bakvið Gauk á stöng og bjórlíkið sem og Steingríms J. Sigfússonar Alþingismanns sem mælti gegn bjórfrumvarpinu á sínum tíma.
Birt
1. mars 2019
Aðgengilegt til
22. okt. 2026
Grár köttur
Hlustendur læðast í kringum menn og málefni í leit að hugljómunum, nýjum sjónarhornum og sögum sem skipta máli.