Aldrei las ég Laxness

Úngfrúin góða og Húsið

Úngfrúin góða og Húsið er stutt verk sem Halldór Laxness skrifar um efri stétt í þorpinu Eyvík og tilraunum hennar til stjórna narratífunni um sjálft sig. Sagan er systrasaga, Rannveig er yngri systirin sem sagan hverfist um en Þuríður er eldri sem gift er verslunarmanni þorpsins og gerir allt í sínu valdi til viðhalda heiðri ættar sinnar og húss - en verk hennar koma því miður niðri á lífi Rannveigar og leggja það eiginlega í rúst. Sagan er talin byggð á raunverulegum atburðum sem og upplifunum Halldórs sjálfs þegar hann sigldi ungur til Kaupmannahafnar. Sögumaður verksins er fjarlægur persónunum, samtöl og senur eru fáar og lesandi þarf sífellt vera púsla atburðunum saman í gegnum óbeinar upplýsingar héðan og þaðan svo erfitt er ákveða hverju maður trúir og hverju ekki.

Samlesari klúbbsins þessu sinni er Elínborg Una Einarsdóttir, blaðamaður hjá Morgunblaðinu, sviðshöfundur og samfélagsrýnir. En síðasta haust birti hún grein í Morgunblaðinu með titilinn „Laxness hverfur úr skólum landsins“ og olli hún nokkru fjaðrafoki í samfélaginu og átti sinn þátt í kveikja á þessum bókaklúbbi.

Næsta bók sem tekin verður fyrir verður ópusinn mikli; Heimsljós, en fjallað verður um hana eftir sumarfrí. Nánari dagsetning næsta þáttar og ástæða fyrir frestun umfjöllunar á Sjálfstæðu fólki verður útskýrð í grúppu klúbbsins.

https://www.facebook.com/groups/1247768283945537

Grafík: Silvía Sif Ólafsdóttir

Birt

10. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Aldrei las ég Laxness

Klúbburinn Aldrei las ég Laxness er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér nóbelskáldið, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, og/eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans.

Þættir

,