Vefarinn mikli frá Kasmír gaf Halldór Kiljan Laxness út árið 1927 við alls konar undirtektir. Sagan hverfist um unga manninn Stein Elliða sem haldinn er miklu hugarvíli og núrótík og leitar lausna við kvillum sínum í stóru hugmyndakerfum heimsins.
Vefarinn mikli frá Kasmír er umdeild bók. Stuttu eftir útgáfu birtust tvær frægir og mjög ósammála dómar um hana í sama tímariti annar rómaði hana með orðum eins og: „Loksins, loksins tilkomumikið skáldverk, sém ris eins og hamraborg upp úr flatneskju íslenzkrar ljóða- og sagnagerðar síðustu ára! Ísland hefir eignazt nýtt stórskáld.“ Hinn dómurinn súmmaði bókina upp í tvö orð: „Vélstrokkað tilberasmjör.“
Klúbburinn Aldrei las ég Laxness er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér nóbelskáldið, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, og/eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Næsta bók sem tekin verður fyrir verður Salka Valka en fjallað verður um hana í Víðsjá 13. maí, næstkomandi. Hægt er að taka þátt í umræðum um bækurnar í sérstökum facebook hópi sem má finna hér: