Á æskuárum sínum var tékkneski tónsmiðurinn Antonín Dvorák ástfanginn af leikkonunni Josefinu Cermakovu, en hún endurgalt ekki ást hans. Dvorák veitti ást sinni útrás í söngvaflokknum "Kýprusviðir". Síðar hreifst hann af Önnu, systur Josefinu, og kvæntist henni. Árið 1894 var hann að semja sellókonsert sinn í h-moll þegar hann frétti að Josefina mágkona hans væri dauðveik. Þessi sorgarfregn hafði mikil áhrif á hann og hann bætti við þriðja kafla konsertsins stefi úr lagi sem Josefina hafði haldið upp á. Með Önnu eignaðist Dvorák níu börn, þar á meðal dótturina Otilie sem giftist nemanda Dvoráks, Josef Suk. Otilie lék á píanó og samdi nokkur lög, en hún dó ung. Í þættinum verða fluttir söngvar úr söngvaflokknum "Kýprusviðir" eftir Dvorák, lokaþáttur sellókonsertsins í h-moll, kafli úr svítunni "Ævintýri" eftir Josef Suk og tvö píanólög eftir dóttur Dvoráks, Otilie Dvorákovu, sem hér Otilie Sukova eftir að hún giftist.