Franska tónskáldið Hector Berlioz samdi söngvaflokkinn "Sumarnætur" (Les nuits d´été) á árunum 1840-41 við ljóð eftir Théophile Gautier. Upphaflega var söngvaflokkurinn saminn fyrir söngrödd og píanó, en síðar samdi tónskáldið hljómsveitarundirleik fyrir söngvana. Þetta eru sex söngvar og andblær tónlistarinnar ljúfsár og seiðandi. Í þættinum verða söngvarnir fluttir hver fyrir sig og einnig verða fluttir fjórir söngvar við sömu ljóð eftir tónskáldin Émile Pessard, Charles Gounod, Georges Bizet og Henri Duparc. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.