
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

07:30

08:30


Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.

Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur.
- Endurflutt


Veðurstofa Íslands.

Umsjón: Kristján Kristjánsson.


Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni.
Uppástand, þema: Menning. Eyja Margrét Jóhönnu Brynjarsdóttir prófessor í heimspeki.

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni.
Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir
Aðstæður almúgafólks um aldamótin 1800 voru skelfilegar eftir hörmulegt tíðarfar um áratugaskeið. Langflestir þeirra sem voru sendir í afplánun í Kaupmannahöfn höfðu gerst sekir um þjófnað, jafnvel bændur sem aldrei höfðu gerst sekir um óráðvendni.
Viðmælendur í þættinum eru: Eiríkur Hermannsson og Sigríður Hjördís Jörundsdóttir. Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður þáttaraðarinnar.


Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Undir lok sjöunda áratugar síðustu aldar hrefst tónskáldið Gunnar Reynir Sveinsson af ljóðabálki Birgir Sigurðssonar, Á jörð ertu kominn, og samdi við hann jazzkantötu. Til stóð að flytja verkið á Listahátíð í Reykjavík 1972, en hætt var við vegna veikinda. Þegar reynt var að flytja verkið á næstu árum og áratugum komu veikindi eða aðrar uppákomur í veg fyrir það og því verður það flutt í fyrsta sinn í heild á tónlistarhátíðinni ErkiTíð 2026.
Lagalisti:
Óútgefið - Maður fór um ókunna stigu
Óútgefið - Velmegun (upplestur)
Óútgefið - Þitt líf er það orð
Óútgefið - Sannlega segi ég yður
Óútgefið - Svo þú megir elska (upplestur)
Til Máríu - Þú Guð míns lífs
Til Máríu - Cruxcifixus
Til Máríu - Rauður þráður


Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Við lok 18. aldar var ástand lands og þjóðar með versta móti en jafnframt var að hefjast margvíslegt umbótastarf. Embættismenn ræddu landsins gagn og nauðsynjar, skáldin kváðu kvæði og athyglin beindist ekki síst að Reykjavík. Var hinn nýi höfuðstaður framtíðin eða einskær "saurvilpa". Lesið er úr bók Þóris Óskarssonar, Svipum brotanna, ævisögu Bjarna Thorarensen.
- Endurflutt

Útvarpsfréttir.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.


Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Nokkur vel valin lög

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.

Tónleikurinn áskilur sér rétt til að fara í allar áttir, ákveðin tónskáld verða tekin fyrir í sumum þáttum, í öðrum eltir þáttastjórnandi ákveðnar tilfinningar, liti eða kenndir. Aðrir tónlistarmenn en tónskáld verða líka til umfjöllunar, flytjendur teknir tali og spurðir spjörunum úr. Einnig verður farið í ferðalög útfrá nöfnum og verkum tónskálda sem eru á dagskrá hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands eða á öðrum vettvangi þau skoðuð í víðu samhengi og leikin önnur verk eftir sömu tónskáld.
Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir
Í Tónleik að þessu sinni verða leikin tvö verk sem voru pöntuð og samin fyrir hinn þekkta balettflokk, Ballet Russe í París á öðrum áratug tuttugustu aldarinnar. Auk þess verður leikið hluti úr verki, sem var aðlagað að þörfum flokksins að tónskáldinu látnu. Verkin sem flutt verða eru:
1. Annar þáttur úr Scheherazade op. 35 eftir Nicolai Rimsky-Korsakov. Sergei Diaghilev, stjórnandi Ballet Russe notaði hluta úr Scheherazade í einni af fyrstu uppfærslum flokksins, árið 1909.
2. Jeux eða Leikur eftir Claude Debussy, sem var pantað fyrir Ballet Russe og frumflutt 15. maí 1913, hálfum mánuði áður en flokkurinn frumflutti Vorblótið eftir Igor Stravinsky.
3. Parade eftir Erik Satie, pantað fyrir Ballet Russe og frumflutt árið 1917.
- Endurflutt

Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins

Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni.
Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir
Aðstæður almúgafólks um aldamótin 1800 voru skelfilegar eftir hörmulegt tíðarfar um áratugaskeið. Langflestir þeirra sem voru sendir í afplánun í Kaupmannahöfn höfðu gerst sekir um þjófnað, jafnvel bændur sem aldrei höfðu gerst sekir um óráðvendni.
Viðmælendur í þættinum eru: Eiríkur Hermannsson og Sigríður Hjördís Jörundsdóttir. Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður þáttaraðarinnar.
- Endurflutt

Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson les.
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. 4. bók - Á Snæfellsnesi. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson les í hljóðritun frá 1997


frá Veðurstofu Íslands

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
- Endurflutt

Útvarpsfréttir.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

07:30

08:30


Létt spjall og lögin við vinnuna.



Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Útvarpsfréttir.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.



Útvarpsfréttir.

Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Hljómsveitin Á Móti Sól á 30 ára afmæli um þessar mundir og tekur yfir Rokkland vikunnar.
Hljómsveitin var upphaflega stofnuð af vinunum bassaleikaranum Þóri og hljóðborðsleikaranum Heimi og tilgangurinn var að spila á böllum.
Á Móti Sól hefur gefið út talsvert af sínum eigin lögum og spilað um allt land í 30 ár. Þeir komu í Rokkland í std. 12 í Útvarpshúsið - sögðu sögur og spiluðu vel valin lög.
- Endurflutt