22:03
Rokkland
Á Móti Sól í 30 ár
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Hljómsveitin Á Móti Sól á 30 ára afmæli um þessar mundir og tekur yfir Rokkland vikunnar.
Hljómsveitin var upphaflega stofnuð af vinunum bassaleikaranum Þóri og hljóðborðsleikaranum Heimi og tilgangurinn var að spila á böllum.
Á Móti Sól hefur gefið út talsvert af sínum eigin lögum og spilað um allt land í 30 ár. Þeir komu í Rokkland í std. 12 í Útvarpshúsið - sögðu sögur og spiluðu vel valin lög.
Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 1 klst. 50 mín.
- Endurflutt
