Tónleikurinn áskilur sér rétt til að fara í allar áttir, ákveðin tónskáld verða tekin fyrir í sumum þáttum, í öðrum eltir þáttastjórnandi ákveðnar tilfinningar, liti eða kenndir. Aðrir tónlistarmenn en tónskáld verða líka til umfjöllunar, flytjendur teknir tali og spurðir spjörunum úr. Einnig verður farið í ferðalög útfrá nöfnum og verkum tónskálda sem eru á dagskrá hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands eða á öðrum vettvangi þau skoðuð í víðu samhengi og leikin önnur verk eftir sömu tónskáld.
Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir
Í Tónleik að þessu sinni verða leikin tvö verk sem voru pöntuð og samin fyrir hinn þekkta balettflokk, Ballet Russe í París á öðrum áratug tuttugustu aldarinnar. Auk þess verður leikið hluti úr verki, sem var aðlagað að þörfum flokksins að tónskáldinu látnu. Verkin sem flutt verða eru:
1. Annar þáttur úr Scheherazade op. 35 eftir Nicolai Rimsky-Korsakov. Sergei Diaghilev, stjórnandi Ballet Russe notaði hluta úr Scheherazade í einni af fyrstu uppfærslum flokksins, árið 1909.
2. Jeux eða Leikur eftir Claude Debussy, sem var pantað fyrir Ballet Russe og frumflutt 15. maí 1913, hálfum mánuði áður en flokkurinn frumflutti Vorblótið eftir Igor Stravinsky.
3. Parade eftir Erik Satie, pantað fyrir Ballet Russe og frumflutt árið 1917.
Ekki leyfi fyrir netáhorf eftir útsendingu
Lengd: 51 mín.