Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Myriam Makeba á tónleikum í Théatre des Champs Elysées árið 1977. Þar flutti hún, ásamt hljómsveit, nokkur af sínum vinsælustu lögum.
A hlið:
I shall sing e. Van Richards
Kulala e. Dorothy Masuka
Malaika (þjóðlag frá Tanzaníu)
Jolinkomo e. Caiphus Semenya
Ring Bell e. Jerry Ragavoy
Pata Pata e. Makeba og Ragavoy
B hlið:
Ngoma Kurila e. M. Makeba
Forbidden games e. B. Parker og M. Lanjean
Mas que Nada e. Jorge Ben
West Wind e. M. Makeba
Amampondo e. M. Makeba
Aukalag: African sunset e. M. Makeba
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Þátturinn var fyrst á dagskrá 8. mars 2014.
Umsjón: Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
Ein ég sit og sauma
Á þessari rímlausu skeggöld. Jón Ásgeirsson . Helst í flutningi barnakórs.
Syngdu syngdu svanur úr Dimmalimm eftir Atla Heimi Sveinsson einsöngvari Guðrún Theodóra Sigurðardóttir.
Litla flugan eftir Sigfús Halldórsson í flutningi hans sjálfs.
Erla. Sigvaldi Kaldalóns. Einsöngvari Hreinn Pálsson
Surabya Johnny eftir Kurt Weil í flutningi Lotte Lenja
Bólstaðarhlíð úr Saumastofu Kjartans Ragnarsssonar flytjandi Margrét Helga Jóhannsdóttir.
Ofeus og Evridís , Megas og spilverkið, Á bleikum Náttkjólum.
ÓÓÓ Stelpur af Kvennabaráttuplötunni
Bíddu Pabbi bíddu mín í flutningi Villa Vill.
Fram þjáðir menn í þúsund löndum. Helst í fyndinni orchestral útgáfu.


Umsjón: Kristján Kristjánsson.


frá Veðurstofu Íslands.

Sögur fólks sem þurfti að dvelja barnungt á heimavist fjarri fjölskyldum sínum til þess að stunda grunnskólanám. Fyrir mörg var það þungbær reynsla meðan önnur eiga ljúfar minningar.
Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir.
Umsjónarmaður heimsækir sinn gamla skóla, Þelamerkurskóla í Hörgárdal, og spjallar við fólk sem dvaldi þar í heimavist á sjöunda og áttunda áratugnum. Sum þeirra ylja sér við ljúfar minningar en önnur líkja vistinni við helvíti á jörð.
Viðmælendur. Anna Rósa Friðriksdóttir, Anna Ragna Árnadóttir, Eydís Björk Davíðsdóttir og ónefnd systkini.
Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir.


Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.

Tónlist héðan og þaðan

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Það styttist í að það verði heil 40 liðin frá kjarnorkuslysinu í Chernobyl. Áhrifanna gætir enn, söguna þekkja flestir en það tók nokkurn tíma að fyrir önnur lönd að átta sig á því sem hafði gerst. Sovésk yfirvöld reyndu að halda slysinu leyndu og það var ekki fyrr en geislavirk efni voru farin að berast til og mælast í andrúmslofti nágrannaríkjanna að ljós var að eitthvað verulega alvarlegt hafði gerst. Við rifjum upp söguna.
Kjarnorka er þó ekki alslæm og má segja að hún sé komin aftur í tísku eftir orkukreppur síðustu ára, sérstaklega í Evrópu. Við skoðum orkunotkur Evrópuríkja og hvaða áhrif hækkandi orkuverð hefur. En þó að kjarnorkan sé í tísku þá fylgja henni margir ókostir, sá stærsti er kjarnorkuúrgangurinn og hvað á að gera við hann. Finnar opna á næstu vikum fyrstu geymslustöðina fyrir kjarnorkuúrgang, sem er neðanjarðar undir stærsta kjarnorkuveri Finna.
Talið er að á milli tuttugu og þrjátíu þúsund erlendir hermenn berjist með Rússlandsher á vígvellinum í Úkraínu, langflestir frá fátækum ríkjum. Hluti þeirra hélt að sín biði vinna í Rússlandi, til dæmis við trukkaakstur eða í landbúnaði, en endaði svo á víglínunni. Vegabréfin eru tekin af þeim, rússnesk stjórnvöld geta upp á sitt eindæmi framlengt herþjónustuna þangað til stríðinu lýkur og margir hafa greint frá því að vera hótað ofbeldi og dauða reyni þeir að flýja. Danski fræðimaðurinn Karen Philippa Larsen fór til Úkraínu og ræddi við nokkra þessara erlendu hermanna sem teknir höfðu verið til fanga. Þeir sögðust helst hafa ráðið sig í vinnu til Rússlands í von um ríkisborgararétt og mannsæmandi laun. Hún segir aðstæður þeirra minna á mansal. Dagný Hulda Erlendsdóttir fjallar um málið.

Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Guðný frá Galtafelli, langamma mín, gaf út fyrstu bók á níræðs aldri, það er greinilega aldrei of seint að byrja að skrifa!
Hún skráði tímana sem liðu, en ekki endilega þær sögur sem lifðu í fjölskyldunni.
Hvaða minningar lifa, og hverjar gleymast?
Þetta er mín leið til að nálgast formóður sem ég hitti aldrei,
en hef alltaf viljað kynnast.
Umsjón: Gígja Sara H. Björnsson

Útvarpsfréttir.
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Pólskar bókmenntir á 20. öld eru í brennidepli í þættinum. Út er komin þýðing á ljóðum Papúszu, pólsku rómaskáldi sem nú er komin út í fyrsta sinn á íslensku í smáritaröð Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur. Maó Alheimsdóttir þýðir ljóðin og Sofiya Zahova skrifar ítarlega um ævi og verk Papúshu, sem er reyndar skáldanafn Bronislawa Wajs, og Sofiya staðsetur kveðskap hennar í samhengi við menningu rómafólks, sögu Póllands og heimsbókmenntir.
Svo hef ég verið að lesa aðrar pólskar bókmenntir sem hafa ekki verið þýddar á íslensku. Í dag segi ég frá bók frá 1928 eftir Bruno Jasienski sem heitir Ég brenni París, óbeisluð frásögn sem gerði allt vitlaust á sínum tíma ekkert síður en núna. Jasienski var sakaður um að boða niðurrif og glundroða og gerður brottrækur frá París í kjölfarið. Hann fór til Sovétríkjanna og var tekið vel á móti honum þar en innan við áratug síðar var hann drepinn í hreinsununum miklu í lok 4. áratugar.
Viðmælendur: Maó Alheimsdóttir, Sofiya Zahova og Kári Páll Óskarsson.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Í þessum þætti heyrum við hljóðritun finnska útvarpsins YLE á tónleikum Miles Davis kvintettsins í Kulttuuritalo menningarhúsinu í Helsinki 1. nóvember 1967.
Sending frá EBU sem hlutast til um að samstarfsstöðvar útvarps í Evrópu leiti í söfnum sínum að hljóðritunum með Miles Davis sem hefði orðið 100 ára í ár.
Efnisskrá:
1
Miles Davis (1926-1991) - Agitation
2
Wayne Shorter (1933-2023) - Footprints
3
Thelonious Monk (1917-1982) - Round Midnight
4
Richard Carpenter (20th cent.) - Walkin'
5
Wayne Shorter (1933-2023) - Masqualero
Flytjendur:
Miles Davis, trompet
Wayne Shorter, tenórsaxófónn
Herbie Hancock, píano
Ron Carter, kontrabassi
Tony Williams, trommur

Fréttir
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Í þættinum er áfram fjallað um sænska glæpamanninn Rawa Majid, sem kallaður er Kúrdíski refurinn, og mannskæðar erjur hans við fyrrverandi samherja sinn, Ismail „Jarðarberið“ Abdo.

frá Veðurstofu Íslands
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Berit Andersson syngur með Göran Strandberg lögin Once Upon A Summertime, Skylark, Children of Another World, Sweet and Bitter, Shadows og Cry To The Stars. Jan Johansson og félagar leika lögin Round Midnight, Joshua Fit The Battle Of Jericho, I'm Gonna Go Fishin', Two Little Pearls, Django, Cubano Chant og Lover Man. Nueva Manteca leikur lögin Ol' Man River, St. Louis Blues, Wild Man Blues, When It's Sleepy Time Down South, Down By The Riverside og When The Saints Go Marching In. Að síðustu syngur Wenche Gausdal lögin Two Times Eighteen, They Say You Must og What Is This Thing Called Love.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Greinin „Stikukerfið: tugamál og tugavog“ birtist í Skírni 1908. Jón Jónsson prófastur á Stafafelli í Lóni skrifaði um lög um metramæli og vog sem samþykkt voru á Alþingi árið áður. Jón var ósáttur við að með metrakerfinu var löghelgaður urmullinn allur af útlendum orðum og lagði til í staðinn alíslenskt orð, eins og „stika“ um metra; „mælir“ um lítra; og „met“ í stað hins útlenda gramms.

Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Freyja Gunnlaugsdóttir, klarinettuleikari og skólameistari menntaskóla í tónlist, segir frá sínu uppáhalds tónverki. Christoph Poppen, Manuel Fischer-Dieskau, Wolfgang Meyer og Yvonne Loriod flytja fyrstu þrjá kaflana úr Kvartett fyrir endalok tímans eftir Olivier Messiaen.

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.
Umsjón Jón Ormar Ormsson.
Lesari Sigríður Kristín Jónsdóttir
Tæknimaður Björgvin Kolbeinsson
Í þættinum er leitað í bókina Konur á Sturlungaöld eftir Helga Hjörvar.
Bókin geymir nokkra þætti um konur Sturlungaaldar en þættirnir voru hið seinasta er Helgi bjó til flutnings í útvarpi.
Í þættinum segir frá Steinunni Jónsdóttur af ætt Svínfellinga og frá Gró Álfsdóttir, jarlsfrúnni á Flugumýri.
Helgi Hjörvar; Konur á Sturlundaöld / Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvinafélags 1967.
Tónlist:
Heyr himnasmiður / Þorkell Sigurbjörnsson / Kolbeinn Tumason / Ellen Kristjánsdóttir. (2.37)
Þátturinn var fyrst á dagskrá 4. september 2009.


frá Veðurstofu Íslands

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Lög úr Evróvisjón keppninni 1956-60 og ýmsir íslenskir flytjendur sem hefðu átt að keppa ef Ísland hefði verið með í keppninni.

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.

Útvarpsfréttir.

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.



Gísli Marteinn Baldursson og Sandra Barilli leiða hlustendur inn í laugardaginn, taka stöðuna á fólki og fréttum, spila góða tónlist og fá til sín vel valda gesti í skemmtilegt spjall.


Útvarpsfréttir.

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Tæplega fimmtíu ára tónlistarferill Bubba Morthens krufinn til mergjar í tali og tónum í tilefni af sjötugsafmælisárinu. Boðið upp á fágætar tónleikaupptökur, viðtöl og umfjallanir um tónlist og texta Bubba sem sumar hverjar hafa ekki heyrst í áraraðir á öldum ljósvakans.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson
Í sjöunda þætti eru árin 1991 til 1993 til umfjöllunar og m.a. fjallað um hljómsveitina GCD og Bubba-plötuna Von. Í þættinum má m.a. heyra valdar klippur úr eftirtöldum útvarpsþáttum: Áramótaþáttur Rásar 2 1991, Árið er, Dægurmálaútvarp Rásar 2, Geymt en ekki gleymt, Helgarþáttur Rásar 2, Innlendur annáll ársins 1992, Íslenskar súpergrúbbur og Plata vikunnar.
Viðmælendur í sjöunda þætti eru Bubbi Morthens, Júlíus Guðmundsson, Kristján Kristjánsson (KK) og Óttar Felix Hauksson.
Viðtöl: Ásgeir Eyþórsson, Freyr Eyjólfsson, Guðmundur Pálsson, Gunnlaugur Jónsson, Kristján Þorvaldsson, Lísa Pálsdóttir og Sigurður G. Tómasson.
Lagalisti:
GCD - Kaupmaðurinn á horninu
GCD - Hamingjan er krítakort
GCD - Íslandsgálgi
GCD - Rúnar Gunnarsson (Im memorium)
GCD - Milli svefns og vöku
GCD - Mýrdalsandur
Bubbi - Sumarið 68
Bubbi - Rómantík nr. 19
Bubbi - Silfraður bogi
Bubbi - Þarafrumskógur
Rabbi, Bubbi & Sævar Sverris - Hve lengi?
Bubbi - Einskonar ást
Bubbi - Þínir löngu grönnu fingur
Bubbi - Þingmannagæla
Bubbi - Jakkalakkar
Bubbi - Of hrædd
Bubbi - Kossar án vara
GCD - Reiðlagið
GCD - Nútímamaður
GCD - Sumir fá allt
GCD - Slæmt karma
GCD - Sumarið er tíminn
GCD - Hótel Borg

Útvarpsfréttir.

Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.

Útvarpsfréttir.

Fréttir

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.

Tekið er á móti gesti sem fer í gegnum lög sem svör við ákveðnum spurningum. Hvað var fyrsta lagið sem þú hlustaðir á aftur og aftur? Hvaða lag myndiru spila til að loka frábærum degi? Hvert er jarðarfaralagið þitt? Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem poppa upp en svo fylgir einhverskonar æviágrip með í kjölfarið.
Atli Már Steinarsson tekur á móti gesti sem fer í gegnum uppáhaldslög frá mismunandi tímum.
Gestur Matta er tónlistarmaðurinn Jónas Sig

Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
