15:03
Bubbi og böndin
7. þáttur (1991-1993)

Tæplega fimmtíu ára tónlistarferill Bubba Morthens krufinn til mergjar í tali og tónum í tilefni af sjötugsafmælisárinu. Boðið upp á fágætar tónleikaupptökur, viðtöl og umfjallanir um tónlist og texta Bubba sem sumar hverjar hafa ekki heyrst í áraraðir á öldum ljósvakans.

Umsjón: Ásgeir Eyþórsson

Í sjöunda þætti eru árin 1991 til 1993 til umfjöllunar og m.a. fjallað um hljómsveitina GCD og Bubba-plötuna Von. Í þættinum má m.a. heyra valdar klippur úr eftirtöldum útvarpsþáttum: Áramótaþáttur Rásar 2 1991, Árið er, Dægurmálaútvarp Rásar 2, Geymt en ekki gleymt, Helgarþáttur Rásar 2, Innlendur annáll ársins 1992, Íslenskar súpergrúbbur og Plata vikunnar.

Viðmælendur í sjöunda þætti eru Bubbi Morthens, Júlíus Guðmundsson, Kristján Kristjánsson (KK) og Óttar Felix Hauksson.

Viðtöl: Ásgeir Eyþórsson, Freyr Eyjólfsson, Guðmundur Pálsson, Gunnlaugur Jónsson, Kristján Þorvaldsson, Lísa Pálsdóttir og Sigurður G. Tómasson.

Lagalisti:

GCD - Kaupmaðurinn á horninu

GCD - Hamingjan er krítakort

GCD - Íslandsgálgi

GCD - Rúnar Gunnarsson (Im memorium)

GCD - Milli svefns og vöku

GCD - Mýrdalsandur

Bubbi - Sumarið 68

Bubbi - Rómantík nr. 19

Bubbi - Silfraður bogi

Bubbi - Þarafrumskógur

Rabbi, Bubbi & Sævar Sverris - Hve lengi?

Bubbi - Einskonar ást

Bubbi - Þínir löngu grönnu fingur

Bubbi - Þingmannagæla

Bubbi - Jakkalakkar

Bubbi - Of hrædd

Bubbi - Kossar án vara

GCD - Reiðlagið

GCD - Nútímamaður

GCD - Sumir fá allt

GCD - Slæmt karma

GCD - Sumarið er tíminn

GCD - Hótel Borg

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 54 mín.
,