10:15
Börnin á vistinni
2. þáttur - gamli skólinn minn

Sögur fólks sem þurfti að dvelja barnungt á heimavist fjarri fjölskyldum sínum til þess að stunda grunnskólanám. Fyrir mörg var það þungbær reynsla meðan önnur eiga ljúfar minningar.

Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir.

Umsjónarmaður heimsækir sinn gamla skóla, Þelamerkurskóla í Hörgárdal, og spjallar við fólk sem dvaldi þar í heimavist á sjöunda og áttunda áratugnum. Sum þeirra ylja sér við ljúfar minningar en önnur líkja vistinni við helvíti á jörð.

Viðmælendur. Anna Rósa Friðriksdóttir, Anna Ragna Árnadóttir, Eydís Björk Davíðsdóttir og ónefnd systkini.

Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 39 mín.
,