22:03
Rokkland
U2 50

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

U2 er 50 ára – föstudaginn 25. september voru liðin 50 ár – HÁLF ÖLD síðan Larry Mullen 14 ára og nokkrir aðrir strákar – 15 og 16 ára í Mount Temple Comprehensive School í norður-Dublin hittust í eldhúsinu heima hjá Larry og U2 varð til. Öllum þessum árum síðar eru sömu fjórir strákarnir í þessari hljómsveit. U2 er langlífasta hljómsveit heims með sömu liðsskipan. Það eitt er virðingavert. Það Þarf sérstaka og einstaka karaktera til að halda út svona „hjónaband“ með þremur öðrum í hálfa öld.

Á föstudaginn sagði U2 að það væri ný plata (16. Hljóðversplatan) að koma í nóvember – Carnaval de luz (Karnival ljóssins) og nýtt lag (Silencio) frumflutt – bæði á streymiveitum – í írska Ríkisútvarpinu RTÉ og á tvennum óvæntum og fríum tónleikum heima í Dublin. U2 mætti nefnilega í gamla skólann sinn og spilaði þar - á nákvæmlega sama stað og þeir spiluðu síðast 1978 – í þetta skiptið fyrir 1000 manns – krakkana í skólanum og kennara. Síðar um daginn spiluðu þeir á svölum veitingahúss við Crafton street í miðborg Dublin fyrir þúsundir sem söfnuðust saman.

Rokkland vikunnar er helgað U2.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 1 klst. 50 mín.
Leyft öllum aldurshópum
  • Endurflutt
,