Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Rúmlega 200 víkingar eru mættir á Víkingahátíðina í Hafnarfirði, sem hófst í vikunni og sendur yfir næstu daga. Þar getur almenningur spreytt sig á bogfimi, axarkasti, spjótkasti og öðrum fornum gjörningum. Ungviðið getur gengið í víkingaskóla barnanna en svo eru leikjasýningar, sögustund og hirðfífl sem leikur listir sínar. Jökull Tandri Ámundason, jarl Rimmugýgjar sem er elsta víkingafélagið hér á landi, mætti í fullum herklæðum og sagði okkur frá þessu.
Karen María Jónsdóttir fyrrverandi námsmaður erlendis, núverandi maki innflytjanda, dóttir farandverkamanns, ættingi vesturfara og verðandi ferðamaður erlendis. Hún birti áhugaverða grein á Vísi á dögunum þar sem mátti finna hvatningu til Íslendinga að líta í eigin barm þegar kemur að umræðunni um útlendinga á Íslandi. Hún kom til okkar.
Okkar maður Jakob Birgis flakkar um landið í sumar og flytur nýtt uppistand í bland við sígilda brandara. Hann kemur meðal annars við á Hvammstanga, Sauðárkróki og í Bíldudal. En hvað rekur menn í að leggja upp í svona ferðalag. Jakob kom til okkar.
