12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 7. febrúar 2026

Útvarpsfréttir.

Tugir manna og kvenna sem voru á vistheimilum sem börn, hafa leitað til lögmanns eftir þátt Kveiks um aðstæður barna í Bakkakoti. Sumir eru að segja sögu sína í fyrsta sinn í áratugi. Lögmaðurinn segir fleiri heimili til skoðunar en Bakkakot.

Úkraínumönnum og Rússum hefur verið boðið að funda um stríðslok í Bandaríkjunum í næstu viku, að sögn forseta Úkraínu. Bandaríkjamenn vilja að stríðinu verði lokið í júní.

Hvorki er hægt að tryggja öryggi starfsfólks né sjúklinga á bráðamóttöku í núverandi ástandi, að mati formanns læknafélagsins. Tímabært sé að setja í gang neyðaráætlun í heilbrigðiskerfinu.

Töluvert landrof hefur orðið í Reynisfjöru og stór bakki hrunið úr hlíðum Reynisfjalls alveg að viðvörunarskiltunum við fjöruna. Landeigandi segist aldrei hafa séð svo mikið landrof í fjörunni.

Hjónin Bill og Hillary Clinton vilja að vitnisburður þeirra fyrir þinginu um tengsl við Jeffrey Epstein verði fyrir opnum tjöldum. Repúblíkanar eru sakaðir um að reyna að koma höggi á pólitíska andstæðinga Donalds Trump Bandaríkjaforseta með skýrslutökunum.

Bryggjustöðin verður opnuð á Þingeyri í dag en hún er eina verslunin í þorpinu sem opin verður allan ársins hring. Engin búð hefur verið í þorpinu í um hálft ár.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 20 mín.
,