Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Við ræddum um vísitölu neysluverðs, þessa sem notuð er til að reikna út verðbólguna. Er þar að baki neysla og lífsstíll meðal Íslendingsins; það sem fólk borðar og gerir; það sem fólk borgar fyrir. Ásta Jenný Sigurðardóttir sérfræðingur á Hagstofunni í vísitölum drakk með okkur morgunkaffið.
Við spjölluðum svo um kvikmyndahús og kvikmyndir. Þór Martinsson sagnfræðingur var gestur okkar en hann hefur undanfarið skoðað og velt fyrir sér reykvískum kvikmyndahúsum og áhrifum þeirra á borgarmenninguna síðustu rúmu hundrað árin.
Svo var áfram fjallað um áhrif kvikmynda - eða kvikmyndatónlistar - í síðasta hluta þáttarins. Þá rifjuðum við upp spjall sem við áttum við Magnús Lyngdal árið 2024.
Tónlist:
Ragnar Bjarnason - Vorkvöld í Reykjavík.
Louis Mhlanga - Rhumba all the way.
Kinks - Waterloo sunset.
Sigrún Hjálmtýsdóttir - Stella í orlofi.

07:30

08:30
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Í þættinum er áfram fjallað um sænska glæpamanninn Rawa Majid, sem kallaður er Kúrdíski refurinn, og mannskæðar erjur hans við fyrrverandi samherja sinn, Ismail „Jarðarberið“ Abdo.

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Vigdís Hafliðadóttir söngkona, leikkona, grínisti, handritshöfundur og ýmislegt fleira var föstudagsgesturinn okkar. Hún nam heimspeki við Háskóla Íslands og hefur t.d. leikið í kvikmyndinni Ljósvíkingar, áramótaskaupum og nú síðast í þáttunum Tuttugu og eitthvað, en hún er einnig einn höfunda, en fyrsti þátturinn verður sýndur á RÚV í kvöld. Hún hefur einnig notið mikilla vinsælda sem kynnir skemmtiþáttarins Kappsmáls á RÚV og Vigdís er meðlimur í hljómsveitinni FLOTT sem stofnuð var árið 2020 og hefur svo sannarlega slegið í gegn. Það var um nóg að tala við Vigdísi í dag, en við fórum auðvitað líka með henni aftur í tímann á æskuslóðirnar eins og við gerum yfirleitt með föstudagsgestinum.
Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag talaði hún um salat og sólskin. Sumardagurinn fyrsti er næsta fimmtudag og sólin hækkar á lofti sem kallaði á salatspjallið í dag, þar sem komu fyrir hrásalöt, majonessalöt og fersk salöt eins og grískt salat.
Tónlist í þættinum í dag:
Dagar / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg)
Hvergiland / Leikhópurinn Ekki hugmynd (Vigdís Hafliðadóttir og Egill Andrason)
Visa från Utanmyra / Jan Johanson (Jan Johanson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Útvarpsfréttir.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Við höldum áfram að ræða sveitarstjórnarmál - í þetta skiptið vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins - en umræða um mörkin verður fyrirferðameiri í aðdraganda kosninganna 16. maí.
Rætt er við Jónas Atla Gunnarsson, hagfræðing, og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Pétur Magnússon hittir fólk þar sem það er statt.
Á hverju ári eru haldnar fjölmargar barþjónakeppnir, þar sem barþjónar búa til upprunalegan kokteil, hella upp á og framreiða hann eftir öllum kúnstarinnar reglum. Stærsta keppni ársins hér á landi er Íslandsmeistaramót barþjóna, sem haldin er á Reykjavík Cocktail Week að vori.
Björg Elva Friðfinnsdóttir, barþjónn á Geira Smart, er meðal keppenda í ár og við fylgjum henni eftir á meðan hún undirbýr sig og keppir á sinni fyrstu barþjónakeppni.
Viðmælendur:
Björg Elva Friðfinnsdóttir
Teitur Riddermann Schiöth
Leó Snæfeld Pálsson
Róbert Aron Garðarsson Proppé
Pétur Hafsteinn Kolka Úlfsson
Victoría Lazar Sorinsdóttir
Ólíver Goði Dýrfjörð


Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.


Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Þáttur frá 5. mars 2017: Þema þáttarins í dag er matur. Við förum í fiskbúð, í mötuneyti á fjöllum, matarmyndver og á michelinstjörnueldhús í Reykjavík.
Innslög í þáttinn unnu þau Þórgunnur Oddsdóttir, Ágúst Ólafsson og Dagur Gunnarsson.
Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Útvarpsfréttir.

Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Myriam Makeba á tónleikum í Théatre des Champs Elysées árið 1977. Þar flutti hún, ásamt hljómsveit, nokkur af sínum vinsælustu lögum.
A hlið:
I shall sing e. Van Richards
Kulala e. Dorothy Masuka
Malaika (þjóðlag frá Tanzaníu)
Jolinkomo e. Caiphus Semenya
Ring Bell e. Jerry Ragavoy
Pata Pata e. Makeba og Ragavoy
B hlið:
Ngoma Kurila e. M. Makeba
Forbidden games e. B. Parker og M. Lanjean
Mas que Nada e. Jorge Ben
West Wind e. M. Makeba
Amampondo e. M. Makeba
Aukalag: African sunset e. M. Makeba


Rætt um menningarvikuna sem er að líða og það sem er efst á baugi og framundan um helgina.

Fréttir

Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Fjórir listar eru í framboði í Árborg fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Matthías Bjarnason, Framsóknarflokki, Bragi Bjarnason, Sjálfstæðisflokki, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, Samfylkingu og óháðum, og Heiðrún Kristmundsdóttir, Viðreisn.

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Nokkur lög sem hafa verið samin við ljóð íslenskra skálda hljóma í þessum þætti. Fyrst eru tvö lög eftir Torfa Ólafsson, annarsvegar Systkinin sem Torfi samdi við ljóð Einars H. Kvaran og Pálmi Gunnarsson syngur og hinsvegar Frostrósir við ljóð eftir Örn Arnarson sem Berglind Björk Jónasdóttir syngur. Leifur Gunnarsson samdi lag við ljóðið Náttúruraddir eftir Örn Arnarson sem Ingrid Ösp Kjartansdóttir syngur. Hlynur Þorsteinsson syngur eigið lag við ljóðið Suðrænar rósir eftir Jónas Guðlaugsson, Hildur Vala Einarsdóttir syngur lag Sigurðar Bjólu við ljóðið Mannkynssaga fyrir byrjendur eftir Stein Steinarr og Ellen Kristjánsdóttir syngur Lífið, ljóð og ég eftir Stein Steinarr, en Jón Ólafsson samdi lagið. Þórunn Lárusdóttir syngur Afmælisdiktur Þórbergs Þórðarsonar, lagið er eftir Atla Heimi Sveinsson og Björgvin Halldórsson syngur um Selju litlu, lag sem Jón frá Hvanná samdi við ljóð Guðmundar Inga Kristjánssonar. Söngkvartettinn Út í vorið syngur Litla skáld á grænni grein, ljóð Þorsteins Erlingssonar en lagið er eftir Gunnar Sigurgeirsson. Karlakórinn Heimir ásamt einsöngvaranum Pétri Péturssyni flytja lokalagið Ef ætti ég hörpu eftir Pétur Sigurðsson en ljóðið er eftir Friðrik Hansen. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Samantekt hvers þema (fimm þátta) úr örþáttaröðinni.
Upprifjun úr Uppástandi frá því í september 2022. Marteinn Sindri Jónsson, Þórdís Kjartansdóttir, Fríða Björk Ingvarsdóttir, Björn Traustason og Guðbjörg Rannveig Jóhannesdóttir fjalla um fegurð.

Pétur Magnússon hittir fólk þar sem það er statt.
Á hverju ári eru haldnar fjölmargar barþjónakeppnir, þar sem barþjónar búa til upprunalegan kokteil, hella upp á og framreiða hann eftir öllum kúnstarinnar reglum. Stærsta keppni ársins hér á landi er Íslandsmeistaramót barþjóna, sem haldin er á Reykjavík Cocktail Week að vori.
Björg Elva Friðfinnsdóttir, barþjónn á Geira Smart, er meðal keppenda í ár og við fylgjum henni eftir á meðan hún undirbýr sig og keppir á sinni fyrstu barþjónakeppni.
Viðmælendur:
Björg Elva Friðfinnsdóttir
Teitur Riddermann Schiöth
Leó Snæfeld Pálsson
Róbert Aron Garðarsson Proppé
Pétur Hafsteinn Kolka Úlfsson
Victoría Lazar Sorinsdóttir
Ólíver Goði Dýrfjörð

Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson les í hljóðritun frá 1988
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Fagurt mannlíf. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson byrjar lesturinn.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 24. mars 1988.


frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Vigdís Hafliðadóttir söngkona, leikkona, grínisti, handritshöfundur og ýmislegt fleira var föstudagsgesturinn okkar. Hún nam heimspeki við Háskóla Íslands og hefur t.d. leikið í kvikmyndinni Ljósvíkingar, áramótaskaupum og nú síðast í þáttunum Tuttugu og eitthvað, en hún er einnig einn höfunda, en fyrsti þátturinn verður sýndur á RÚV í kvöld. Hún hefur einnig notið mikilla vinsælda sem kynnir skemmtiþáttarins Kappsmáls á RÚV og Vigdís er meðlimur í hljómsveitinni FLOTT sem stofnuð var árið 2020 og hefur svo sannarlega slegið í gegn. Það var um nóg að tala við Vigdísi í dag, en við fórum auðvitað líka með henni aftur í tímann á æskuslóðirnar eins og við gerum yfirleitt með föstudagsgestinum.
Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag talaði hún um salat og sólskin. Sumardagurinn fyrsti er næsta fimmtudag og sólin hækkar á lofti sem kallaði á salatspjallið í dag, þar sem komu fyrir hrásalöt, majonessalöt og fersk salöt eins og grískt salat.
Tónlist í þættinum í dag:
Dagar / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg)
Hvergiland / Leikhópurinn Ekki hugmynd (Vigdís Hafliðadóttir og Egill Andrason)
Visa från Utanmyra / Jan Johanson (Jan Johanson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Rætt um menningarvikuna sem er að líða og það sem er efst á baugi og framundan um helgina.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Tuttugu og eitthvað er ný íslensk grínþáttaröð eftir Arnór Björnsson, Óla Gunnar Gunnarsson og Vigdísi Hafliðadóttur. Í þáttunum fylgjumst við með þremur ungmennum takast á við þær áskorarnir sem fylgja þrítugsaldrinum; háskólann, vinnumarkaðinn, sambandsdrauga, rappara og glataða æskudrauma. Óli Gunnar mætti til okkar ásamt leikstjóranum Kristófer Dignus.
Horfur eru á að sú kólnun sem hefur verið í hagkerfinu undanfarið vari lengur en áður var spáð. Hagvöxtur verður hóflegur og einkum drifinn áfram af þjónustuútflutningi. Horfur eru á að verðbólga verði 4,8% í ár og sennilegt er að stýrivextir verði hækkaðir upp í 8,25% á þessu ári. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri hagspá Greiningardeildar Landsbankans til ársins 2028, sem var birt í dag. Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, kom í Morgunútvarpið og útskýrði þessar tölur fyrir okkur.
Talsmönnum skautunar í umræðu svelgdist á kaffinu sínu í vikunni þegar það kom í ljós að Þórdís Kolbrún Gylfadóttir Reykfjörð og Dagur B. Eggertsson eru byrjuð með hlaðvarp saman. Hlaðvarpið heitir Flekaskið og þar ræða þau breytta stöðu í alþjóðamálum og áhrifin á Ísland. Við fengum þau til okkar að ræða fréttir vikunnar og kannski örlítið um þetta nýja hlaðvarp.
Ísland mætir Englandi í undankeppni HM kvenna í fótbolta 2027 á Laugardalsvelli á laugardag. Stelpurnar okkar unnu Úkraínu 1-0 á Laugardalsvelli í vikunni en sigurinn var afar mikilvægur í baráttunni um þriðja sæti riðilsins sem er umspilssæti fyrir HM í Brasilíu á næsta ári. Athygli vakti að aðeins 1.500 manns mættu á leikinn gegn Úkraínu og stelpurnar vilja að sjálfsögðu sjá fleira fólk á Laugardalsvelli á laugardaginn. Landsliðskonurnar Guðrún Arnardóttir, sem leikur með Hammarby og Hlín Eiríksdóttir leikmaður Fiorentina komu til okkar í spjall.

07:30

08:30

Létt spjall og lögin við vinnuna.
Eyjólfur Kristjánsson átti afmæli, Smells Like Teen Spirit líka, tríóið GÓSS kom í heimsókn og þema Lagalista fólksins var gróður!
Lagalisti þáttarins:
EYJÓLFUR KRISTJÁNSSON – Skref Fyrir Skref
FLAMING LIPS – Race for the prize
DILJÁ PÉTURSDÓTTIR, HREIMIR – Svona var lífið
FOREIGNER – Urgent
BECK – Sexx Laws
AIR – Mer du Japon
OTIS REDDING – (Sittin' On) The Dock Of The Bay
FONTAINES D.C. – Jackie Down The Line
STEELY DAN – Reelin' in the Years
FM BELFAST – Útihátíð
SUEDE – She's In Fashion
BOTNLEÐJA – Fallhlíf
HELGI BJÖRNSSON – Allt ljómar
FATBOY SLIM – The Rockafeller Skank
CREATURE OF HABIT – Myrká
ÁSGEIR TRAUSTI – Sumargestur
GÓSS – Sólarsamba
GÓSS - Ó, blessuð vertu sumarsól (í beinni)
MOSES HIGHTOWER – Ráðahagur
OF MONSTERS & MEN – Ordinary Creature
KC & THE SUNSHINE BAND – Get down tonight
U2 – Where The Streets Have No Name
GUS GUS – David
ELVAR – Miklu betri einn
MT JONES – I Don't Understand
BUBBI MORTHENS – Afgan
FOOLS GARDEN – Lemon Tree
OLGA GUÐRÚN – Ég Heyri Svo Vel
EURYTHMICS – Thorn In My Side
SÍÐAN SKEIN SÓL – Kartöflur
SCREAMING TREES – Shadow of the season
CREEDENCE CLEARWATER REVIVAL – Have You Ever Seen The Rain
HALLBJÖRG BJARNADÓTTIR – Vorvísa
AMABADAMA – Gróðurhúsið
POISON – Every Rose Has It's Thorn
THE BEATLES – Strawberry fields forever
NICK CAVE & THE BAD SEEDS FEATURING KYLIE MINOGUE – Where The Wild Roses Grow
RADIOHEAD – Fake Plastic Trees
GUNS 'N ROSES – The Garden
MEZZOFORTE – Garden Party

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Útvarpsfréttir.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.



Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.


Fréttir

Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Fjórir listar eru í framboði í Árborg fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Matthías Bjarnason, Framsóknarflokki, Bragi Bjarnason, Sjálfstæðisflokki, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, Samfylkingu og óháðum, og Heiðrún Kristmundsdóttir, Viðreisn.

Fréttastofa RÚV.

Kletturinn sér um að koma þér í gírinn á föstudagskvöldum. Rokk er rauði þráðurinn í gegnum þáttinn í eins teygjanlegum skilningi og mögulegt er. Rokk, indie rokk, indie popp, dans-pönk, nýbylgja, alt-rokk, síðpönk og country verður á boðstólum í hrærigraut af stemmingu og straumum.
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson.


Samkvæmis og gleðiþáttur á föstudagskvöldum þar sem Doddi litli leikur hressandi samkvæmispopp síðustu fimm áratuga og dansar með hlustendum inn í helgina.