19:20
Lagalistinn
Rebekka Blöndal

Tekið er á móti gesti sem fer í gegnum lög sem svör við ákveðnum spurningum. Hvað var fyrsta lagið sem þú hlustaðir á aftur og aftur? Hvaða lag myndiru spila til að loka frábærum degi? Hvert er jarðarfaralagið þitt? Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem poppa upp en svo fylgir einhverskonar æviágrip með í kjölfarið.

Tónlistarkonan með marga hatta Rebekka Blöndal mætir í lagalistann með poka fullan af tónlist þar sem við förum yfir lífshlaupið á hundavaði en einbeitum okkur fyrst og fremst að tónlistinni sem um ræðir. Þar kennir ýmissa grasa, meðal annars Rammstein, Led Zeppelin, Björgvin Halldórsson og Ella Fitzgerald.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 35 mín.
,