Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Stjórnvöld kynntu tímabundnar efnahagsaðgerðir á föstudaginn, einkum til þess að bregðast við stöðu mála úti í heimi og hækkun oliuverðs. Við ræddum um aðgerðirnar og líka um umræður um þjóðarsátt og hvað gæti falist í henni þegar Erna Björg Sverrisdóttir aðalhagfræðingur Arion banka kom til okkar.
Við fjölluðum líka um fréttaljósmyndun. Verðlaun Blaðaljósmyndarafélagsins voru veitt á laugardaginn; þau hlaut Golli, Kjartan Þorbjörnsson, ljósmyndari á Heimildinni. Hann hefur verið í faginu í hátt í 40 ár. Golli drakk með okkur kaffi og spjallaði um ljósmyndir og ljósmyndun.
Arthúr Björgvin Bollason var á sínum stað með Berlínarspjall og fór meðal annars með okkur inn á þýska stjórnarheimilið - þar er stormasamt þessa dagana. Við ræddum líka um vorið í Þýskalandi, sperglana og kirsuberjatréin.
Tónlist:
Herbert Grönemeyer - Der Weg.
