
Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Pétur Grétarsson og Vera Illugadóttir hafa ofan af fyrir hlustendum nokkra sumarmorgna
Pétur Grétarsson og Vera Illugadóttir hafa ofan af fyrir hlustendum nokkra sumarmorgna
Window shopping - Hank Williams.
Kom kisa mín - Karl Olgeirsson - Mitt bláa hjarta 2018. Ragnheiður Gröndal
Um helgina, 7. apríl 1957. Björn Th. Björnsson lýsir því þegar hann mætir færeyskum sjómönnum í Reykjavík. Hann fer um borð í fiskiskipið Sinsjakk og talar við skipstjórann Paul Horn og sjómanninn Just Magnusson sem hefur verið skipverji á skipinu í 25 ár.
Blóma mín - Hanus G Jóhansen
Kráka situr á garði, kú mín í garði, sjúrða kona stendur- Kári Sverrisson
Krístín Jónsdóttir í París í Færeyjum: Gróðureldar og brennuvargar í Fontainbleu, dauðsföll í hitabylgju, lestarferðir í Evrópu eru líka fyrir fullorðna, veðurblíða í Færeyjum
Konan með sjalið - Kristjana Arngrímsdóttir. Ég hitti þig 2023.
Morning breeze - Ásgeir Ásgeirsson
Ljóð dagsins: Bið eftir Guðberg Bergsson - Þorsteinn frá Hamri les
Vorregn í Njarðvíkum - Tómas R Einarsson/Guðbergur Bergsson - Sönghópurinn við Tjörnina
Nýr api í Austur-Kongó.
The Last Waltz suite - R Robertsson - The Band 1978
Evangeline-Out of the Blue - The Weight
Rætt við Magnús Lyngdal Magnússon um klassíska tónlist og þætti hans Undir geislanum.
Urlicht úr Des Knaben Wunderhorn - G Mahler Flytjendur: Christian Gerhaher og Gerold Huber
Niccolò Paganini: „La Campanella“. Flytjendur: Isaac Stern og Alexander Zakin
Giacomo Puccini: „Chi il bel sogno di Doretta“ úr La Rondine.Leontyne Price, Metropolitan Opera Orchestra / James Levine

07:30

08:30
Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra.
Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.
Í þessum öðrum þætti ræðir umsjónarmaður við Hallveigu Thorlacius sem var í Sovétríkjunum á sjöunda áratugnum á tímabili sem kallað hefur verið þíðan.
Rús - þættir um þjóð og menningu á krossgötum
Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra.
Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.
Aðstoð við dagskrárgerð: Guðni Tómasson.

Veðurstofa Íslands.
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Við fáum ferðasögur á föstudögum í Sumarmálum. Í dag kom til okkar Sigmundur Páll Freysteinsson fata- og textílhönnuður, en hann flutti til Japan haustið 2021 og stundaði nám í hönnun við Kyoto Seika University, þar sem hann rannsakaði hefðbundnar litunaraðferðir með áherslu á Katazome, e. japanska stensillitun. Japan hafði mikil áhrif á hann og fjölskyldu hans, en kona hans og dóttir voru með honum þar. Sigmundur Páll heldur tengingunni við Japan hátt á lofti í gegnum fjölbreytt hönnunarverkefni, hann flytur inn japönsk te og þau iðka tedrykkju af miklum aga daglega. Sigmundur hefur svo farið tvær ferðir sem farastjóri til Japan og fer í aðra næsta haust. Það var um nóg að spjalla um Japan við Sigmund í dag.
Og svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum í dag:
Vikivaki - GDRN (Guðrún Ýr Eyfjörð )& Magnús Jóhann Ragnarsson (Jóhannes úr Kötlum textahöfundur og Valgeir Guðjónsson lagahöfundur)
Sendlingur og sandlóa - Músefjun (Múgsefjun)
Sealed / Yoshio Ojima (Yoshio Ojima)
Green / Hiroshi Yoshimura (Hiroshi Yoshimura)
Umsjón: Gunnar Hansson og Guðrún Hálfdánardóttir

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Þularkynnt tónlist
Útvarpsfréttir.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins leggur til að undanþága Íslands fyrir losunarheimildir í flugi verði framlengd um þrjú ár. Utanríkisráðherra segir að áfram þurfi að vinna að varanlegri lausn.
Andy Burnham tók við sem leiðtogi breska Verkamannaflokksins í dag. Sextán ár eru síðan hann bauð sig fyrst fram.
Matvælastofnun segir að verklagi hafi verið fylgt þegar rúmar þrjátíu mínútur tók að drepa langreyði í upphafi veiðitímabilsins. Skipverjar hafi gert það sem í þeirra valdi stóð til að lina þjáningar dýrsins.
Tveir brasilískir kafarar eru meðal þeirra níu sem sitja í gæsluvarðhaldi grunaðir um smygl á 106 kílóum af kókaíni með súrálsskipi.
Fyrrverandi formaður Kennarasambandsins segir áherslur menntamálaráðherra handahófskenndar. Nú eigi að ráðast í átak í stærðfræðinámsgögnum í kjölfar einnar könnunar.
Bandaríkjamenn og Íranar takast enn á um Hormússund. Sjö voru drepnir í árásum Bandaríkjahers á suðurhluta Írans í dag.
Talið er að minnst tólf þúsund umframdauðsföll í níu Evrópulöndum megi rekja til hitabylgjunnar í júní.
Banvænar buxur hafa vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum. Buxurnar hafa skapað mikla umræðu vegna þess að fólk dettur gjarnan á hausinn þegar það klæðist þeim.

Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.


Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Þáttur frá 3. september 2017: Í þessum þætti er þemað Skóli. Farið verður vítt og breitt, talað við nemendur í Lögreglufræðum á Akureyri og spjallað við nemendur og skólameistara Handverks- og hússtjórnarskólann á Hallormsstað. Landssamband Ungmennafélaga eru regnhlífasamtök ungs fólks. Rætt verður við Tinnu Iseban um lýðræði og leiðtogaskóla meðal annars.

Útvarpsfréttir.

Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínilplata þessarar viku er Fjórtán fóstbræður ásamt Ellý Vilhjálms og hljómsveit Svavars Gests. Platan, sem kom út hjá SG hljómplötum árið 1965, inniheldur átta lagasyrpur. Hún var tekin upp í Ríkisútvarpinu enda heimatökin hæg því Fjórtán fóstbræður höfðu frá árinu 1963 sungið reglubundið í útvarpsþáttunum vinsælu Sunnudagskvöldi með Svavari Gests. Raunar átti Svavar sjálfur frumkvæðið að því að fóstbræðurnir fjórtán urðu til árið 1963, og árið eftir hóf hann feril sinn sem hljómplötuútgefandi með því að gefa út plötuna Syngið með – Fjórtán fóstbræður með hljómsveit Svavars Gests. Þessi plata kom svo út ári seinna, og sló í gegn líkt og fyrsta platan.
A-hlið:
1. Syrpa af hröðum lögum - Litla Reykjavíkurmær, Komdu vina, Kenndu mér að kyssa rétt, Viltu með mér vaka í nótt og Káta Víkurmær. Lögin eru öll erlend og textarnir eftir Ragnar Jóhannsson, Þorstein Halldórsson, Skafta Sigþórsson, Valborgu Bentsdóttur og Jón frá Ljárskógum.
2. Jóns Múla-syrpa - Fröken Reykjavík, Einu sinni á ágústkvöldi, Söngur jólasveinanna, Gettu hver ég er? og Augun þín blá. Lögin öll eftir Jón Múla Árnason og hann á einnig textann í síðustu tveimur lögunum en bróðir hans Jónas Árnason samdi hina þrjá.
3. Valsa-syrpa - Ellý Vilhjálms syngur með - Kvöld við Signu, erlent lag við texta Helga Jónssonar, Hvítu mávar, erlent lag við texta Björn Braga Magnússonar, Ég líð með lygnum straumi, erlent lag við texta Eiríks Karls Eiríkssonar, Vogun vinnur - vogun tapar, erlent lag við texta Guðmundar Sigurðssonar sem á einnig textann í síðasta laginu sem er Þetta er ekki hægt eftir Árna Ísleifsson.
4. Rúmbu-syrpa - Nú liggur vel á mér eftir Óðin G. Þórarinsson við texta Núma Þorbergs, Mærin frá Mexíkó, erlent lag við texta Ólafs Gauks, Allt á floti, erlent lag við texta Jóns Sigurðssonar, Einsi kaldi úr Eyjunum, lag og texti Jón Sigurðsson og Ástarljóðið mitt, erlent lag við texta Björns Braga Magnússonar.
B-hlið:
1. Sjómannavalsa-syrpa - Vertu sæl, mey, lag og texti Ási í Bæ, Ship-o-hoj, lag Oddgeir Kristjánsson við texta Lofts Guðmundssonar, Baujuvaktin, lag Svavar Benediktsson og texti Kristján frá Djúpalæk, Síldarstúlkan, lag Árni Björnsson og texti Bjarni Guðmundsson og Sjómannavalsinn, lag Svavar Benediktsson og texti Kristján frá Djúpalæk.
2. Sigfúsar-syrpa - Við eigum samleið, Játning, bæði við ljóð Tómasar Guðmundssonar, Íslenzkt ástaljóð, ljóð Vilhjálms frá Skáholti, Tondeleyo eftir Tómas Guðmundsson og Litla flugan eftir Sigurð Elíasson. Lögin öll á Sigfús Halldórsson.
3. My Fair Lady-syrpa - Ellý Vilhjálms syngur með - Sértu hundheppinn, Yrði það ei dásamlegt, Áður oft ég hef, Ég vildi dansa í nótt og Ég á að kvænast kellu á morgun. Egill Bjarnason þýddi alla textana en tónlistin er eftir Frederick Loewe.
4. Polka-syrpa - Einu sinni var, lag Svavar Benediktsson, texti Kristján frá Djúpalæk, Piparsveinapolki, lag Guðjón Matthíasson við texta Núma Þorbergs, Kátir dagar, erlent lag við texta Jenna Jóns, Æ, Ó, aumingja ég, erlent lag við texta Ólafs Gauks og Ef leiðist mér heima, erlent lag við texta Ágústs Böðvarssonar.
Í hljómsveit Svavars Gests sem leikur undir í öllum syrpunum eru Svavar Gests á trommur, Garðar Karlsson á gítar, Grettir Björnsson á harmonikku og Reynir Sigurðsson á bassa. Bassaleikararnir Pétur Björnsson og Gunnar Pálsson koma einnig við sögu í þremur syrpum. Magnús Ingimarsson radsetti og fyrir kór og hljómsveit.
Á umslagi plötunnar má sjá fallega mynd úr garði Alþingishússins eftir Rafn Hafnfjörð. Á bakhliðinni er mynd Péturs Þorsteinssonar af fóstbræðrunum fjórtán sem syngja á plötunni. Þeir eru: Hákon Oddgeirsson, Ásgeir Hallsson, Ragnar Magnússon, Einar G. Þorsteinsson, Sigurður Jóelsson, Aðalsteinn Guðlaugsson, Einar Ágústsson, Árni Eymundsson, Jóhann Guðmundsson, Þorsteinn R. Helgason, Magnús Guðmundsson, Sigurður Símonarson, Guðmundur Helgi Guðmundsson og Garðar Jökulsson.
Umsjón: Stefán Eiríksson.


Hlustendur læðast í kringum menn og málefni í leit að hugljómunum, nýjum sjónarhornum og sögum sem skipta máli.
Umsjónarmaður er Anna Marsibil Clausen.
Eins manns rusl er annars fjárssjóður - og öfugt. Í þættinum í dag heyrum við þrjár sögur af hlutum sem fundust undir gólffjölum, uppi á háalofti og milli þilja, hlutum sem bæta kannski ekki miklu í baukinn en eru, á mjög ólíkan hátt, kannski gulls ígildi.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Nokkur vel valin lög

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru lög þar sem ljóðaþýðingar Magnúsar Ásgeirssonar koma við sögu, lög eftir sænska og íslenska höfunda. Anna Pálína Árnadóttir syngur Söng Fríðu, eða Í fyrsta sinn ég sá þig. Gunnar Guttormsson syngur tvö lög, annarsvegar Mansöngvarann og hinsvegar Ameríkubréfið. Einsöngvarakvartettinn syngur Kvæði um einn kóngsins lausamann. Lónlí blú bojs flytja Laugardagskvöld á Gili. Bubbi Morthens syngur eigin lög við kvæðin Eins og gengur og Bólivar. Páll Óskar Hjálmtýsson syngur lag Páls Torfa Önundarsonar við Enska manvísu frá 14. öld. Ólafur Þórarinsson syngur eigið lag við ljóð sem heitir Kapellan, Sigurboginn flytur lag Sigurðar J. Grétarssonar við kvæðið Regla og Lítið eitt flytja íslenska gerð ljóðsins Konungurinn í Thule eftir Göthe.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Samantekt hvers þema (fimm þátta) úr örþáttaröðinni.
Upprifjun úr Uppástandi frá því í desember 2022. Elsa Björg Magnúsdóttir, Elfar Logi Hannesson, Inga Auðbjörg Kristjánsdóttir, Ragnheiður Harpa Leifsdóttir og Tinna Hallgrímsdóttir fjalla um endalok.

Hljóðritun frá 1989
Hljóðritun frá 1989
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Hjá vondu fólki. Skráð af Þórbergi Þórðarsyni.
Pétur Pétursson les.


frá Veðurstofu Íslands
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Við fáum ferðasögur á föstudögum í Sumarmálum. Í dag kom til okkar Sigmundur Páll Freysteinsson fata- og textílhönnuður, en hann flutti til Japan haustið 2021 og stundaði nám í hönnun við Kyoto Seika University, þar sem hann rannsakaði hefðbundnar litunaraðferðir með áherslu á Katazome, e. japanska stensillitun. Japan hafði mikil áhrif á hann og fjölskyldu hans, en kona hans og dóttir voru með honum þar. Sigmundur Páll heldur tengingunni við Japan hátt á lofti í gegnum fjölbreytt hönnunarverkefni, hann flytur inn japönsk te og þau iðka tedrykkju af miklum aga daglega. Sigmundur hefur svo farið tvær ferðir sem farastjóri til Japan og fer í aðra næsta haust. Það var um nóg að spjalla um Japan við Sigmund í dag.
Og svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum í dag:
Vikivaki - GDRN (Guðrún Ýr Eyfjörð )& Magnús Jóhann Ragnarsson (Jóhannes úr Kötlum textahöfundur og Valgeir Guðjónsson lagahöfundur)
Sendlingur og sandlóa - Músefjun (Múgsefjun)
Sealed / Yoshio Ojima (Yoshio Ojima)
Green / Hiroshi Yoshimura (Hiroshi Yoshimura)
Umsjón: Gunnar Hansson og Guðrún Hálfdánardóttir

Hlustendur læðast í kringum menn og málefni í leit að hugljómunum, nýjum sjónarhornum og sögum sem skipta máli.
Umsjónarmaður er Anna Marsibil Clausen.
Eins manns rusl er annars fjárssjóður - og öfugt. Í þættinum í dag heyrum við þrjár sögur af hlutum sem fundust undir gólffjölum, uppi á háalofti og milli þilja, hlutum sem bæta kannski ekki miklu í baukinn en eru, á mjög ólíkan hátt, kannski gulls ígildi.

Útvarpsfréttir.
Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.
Það verða eflaust fjölmörg á faraldsfæti um helgina og kannski freistast til að elta veðrið með tjald og útilegubúnað - og þá skiptir nú máli að vera vel búin. Róbert Marshall er flestum landsmönnum kunnur fyrir störf sín í fjölmiðlum en honum líður þó hvergi betur en á fjöllum, í tjaldi eða úti í guðsgrænni náttúrunni. Róbert kom til okkar með eiginlegan gátlista um hvað ber helst að hafa í huga áður en lagt er af stað, hvort veðrið aftraði okkur í útiveru og ítrekaði þá að versta veðrið væri iðulega í forstofunni heima hjá okkur.
Við litum yfir dagskrá helgarinnar í menningu og mannlífi og töldum upp helstu bæjarhátíðir sem verða um allt land þessa helgina. Miðaldahátíð á Gásum, Franskir dagar, Mannfólkið breytist í slím og Bryggjuhátíð á Drangsnesi eru nokkur dæmi um rétti á menningarhlaðborði helgarinnar.
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum er vafalaust ein vinsælasta útihátíðin sem haldin er um Verslunarmannahelgina á ári hverju og hefur skipað sér stóran sess hjá þjóðinni í árafjöld. Þjóðhátíð hefur ávallt að skipa landsfrægu tónlistarfólki og skemmtikröftum og býður upp á skemmtilega dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Í vikunni kom fram í fréttum að miðasala á Þjóðhátíð væri með lakara móti og stefni í fámennari hátíð en áður. Jónas Guðbjörn Jónsson er formaður þjóðhátíðarnefndar og hann var á línunni.
Og það er gervigreindin sem er allt í öllu og nú í stjórnarráðinu því á dögunum tók til starfa starfshópur um nálgun stjórnvalda í málefnum gervigreindar. Hlutverk hópsins er að meta stefnu, aðgerðir og áherslur stjórnvalda í málaflokknum heildstætt í ljósi hraðrar þróunar gervigreindar og gera tillögur um aðgerðir, forgangsröðun og úrbætur. Hópinn skipa fimm sérfræðingar á sviði gervigreindar. Þeirra á meðal er Hjálmar Gíslason, framkvæmdastjóri GRID en hann er jafnframt formaður hópsins og hann sagði okkur nánar frá þessari vinnu.
Við fórum vitaskuld yfir fréttir vikunnar í enda þáttar, eins og endranær á föstudögum. Það var fjölbreytt fréttavika að baki og það sem stóð hvað helst upp úr hjá viðmælendum okkar þessa vikuna var koma viðartittlings til Íslands, fótboltaforeldrar, ferðaveðrið og að sjálfsögðu HM í fótbolta. Gestir okkar voru Stefán Pálsson sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi og Björt Ólafsdóttir fyrrum ráðherra og nú fasteignamógúll.

07:30

08:30

Umsjón: Friðrik Ómar.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins leggur til að undanþága Íslands fyrir losunarheimildir í flugi verði framlengd um þrjú ár. Utanríkisráðherra segir að áfram þurfi að vinna að varanlegri lausn.
Andy Burnham tók við sem leiðtogi breska Verkamannaflokksins í dag. Sextán ár eru síðan hann bauð sig fyrst fram.
Matvælastofnun segir að verklagi hafi verið fylgt þegar rúmar þrjátíu mínútur tók að drepa langreyði í upphafi veiðitímabilsins. Skipverjar hafi gert það sem í þeirra valdi stóð til að lina þjáningar dýrsins.
Tveir brasilískir kafarar eru meðal þeirra níu sem sitja í gæsluvarðhaldi grunaðir um smygl á 106 kílóum af kókaíni með súrálsskipi.
Fyrrverandi formaður Kennarasambandsins segir áherslur menntamálaráðherra handahófskenndar. Nú eigi að ráðast í átak í stærðfræðinámsgögnum í kjölfar einnar könnunar.
Bandaríkjamenn og Íranar takast enn á um Hormússund. Sjö voru drepnir í árásum Bandaríkjahers á suðurhluta Írans í dag.
Talið er að minnst tólf þúsund umframdauðsföll í níu Evrópulöndum megi rekja til hitabylgjunnar í júní.
Banvænar buxur hafa vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum. Buxurnar hafa skapað mikla umræðu vegna þess að fólk dettur gjarnan á hausinn þegar það klæðist þeim.

Margrét Erla Maack fylgir fólki á góðum sumardögum, leikur lauflétta tóna og heldur gleðinni gangandi.


Útvarpsfréttir.

Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Léttir tónar óma úr eldhúsinu.

Fréttastofa RÚV.

Kletturinn sér um að koma þér í gírinn á föstudagskvöldum. Rokk er rauði þráðurinn í gegnum þáttinn í eins teygjanlegum skilningi og mögulegt er. Rokk, indie rokk, indie popp, dans-pönk, nýbylgja, alt-rokk, síðpönk og country verður á boðstólum í hrærigraut af stemmingu og straumum.
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson.


Föstudagstónar í teitið.