13:00
Í boði náttúrunnar
Matjurtagarðar, ísbar og fiskidagur

Þættirnir eru í umsjón hjónanna Guðbjargar Gissurardóttur og Jóns Árnasonar, en þau hafa sett sér það markmið að koma sér upp lífrænum matjurtagarði í sælureit sínum í Kjós. Þau hafa enga reynslu, né hugmynd um hvernig þau eiga að koma slíku verki í framkvæmd. En til að afla sér þekkingar fara þau á stúfana og hitta sérfræðinga og vana leikmenn á sviði matjurtaræktunar til að fá ráðleggingar og hugmyndir sem munu vonandi skila þeim og hlustendum góðri uppskeru í lok sumars. Einnig munu þau hafa uppi á fólki sem er að gera óvenjulega hluti á þessu sviði, auk þess að taka fyrir matreiðslu grænmetis, nýtingu villijurta o.m.fl. Í Boði náttúrunnar fjallar um ferðalag þeirra hjóna og verður hlustendum vonandi innblástur og hvatning til að rækta sitt eigið grænmeti, hvort sem það er úti í garði, uppi í sumarbústað, á svölunum eða úti í glugga.

Frá 2011

Umsjón: Guðbjörg Gissurardóttir og Jón Árnason.

Tæknimaður: Sigrún Björg Aradóttir

Lengd þáttar: 51:40.

Innihald: í þessum þætti verður rölt með Jóhanni Thorarensen garðyrkjumanni um matjurtagarða Akureyrar sem eru staðsettir við ræktunarstöð bæjarins á Krókeyri. En áhugi bæjarbúa á að leigja sér skika og rækta sitt eigið grænmeti hefur stóraukist undanfarin ár. Að því loknu verður farið á ísbarinn á bænum Holtseli í Eyjafjarðarsveit þar sem hægt er að kaupa yfir 40 tegundir af ís beint frá býli. Að lokum verður litið inn hjá fjölskyldu á Dalvík sem er í óðaönn að undirbúa fiskisúpu fyrir Fiskidaginn mikla.

Viðmælendur:

1. Jóhann Thorarensen

2. Þorsteinn Friðjófsson

3. Guðný Sigríður Ólafsdóttir og Sigurður Jörgen Óskarsson

Tónlist:

1. Vorkoman, Villi Valli, Í Tímans Rás, 12 tónar - 2006

2. Village Green, Kinks, The Kinks Are the Village Green Preservation Society, Pye 1968

3. Vorkoman, Villi Valli, Í Tímans Rás, 12 tónar - 2006

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 54 mín.
e
Endurflutt.
,