Pétur Grétarsson og Vera Illugadóttir hafa ofan af fyrir hlustendum nokkra sumarmorgna
Pétur Grétarsson og Vera Illugadóttir hafa ofan af fyrir hlustendum nokkra sumarmorgna
Look through my window- Mamas and Papas
Oblivion - Astor Piazzolla
Um Falklandseyjar - Dr. Sturla Friðriksson erfðafræðingur heimsótti Falklandseyjar með sendinefnd náttúruverndarsamtökunum World Wildlife Fund 1978 og var rætt við hann í Morgunvöku útvarpsins, örfáum dögum eftir innrás Argentínu á Falklandseyjar 6. apríl 1982. Páll Heiðar Jónsson ræddi við Sturlu.
La buena ventura - Ramón Montes
Hinn elskulegi garðyrkjumaður - Páll Torfi Önundarson - Kristjana Stefánsdóttir syngur
Lax lax lax - erlent lag/Ómar Ragnarsson - Guðmundur Jónsson syngur
Séra Jakob Jónsson - Um daginn og veginn 19.júlí 1948. Hann greinir frá ferð sinni austur á Úlfljótsvatn og gagnrýnir fyrirkomulag áætlunarbíla sem stoppa í sífellu til að selja farmiða. Á heimleiðinni keyrir hann um Þingvelli, sér fallegan regnboga og rifjar upp orð móður sinnar um frið milli guðs og manna og himins og jarðar, og íhugar mikilvægi friðar. Að lokum nefnir hann á hvolfi liggjandi bíl sem áminningu um varúð í umferðinni, og lýsir óánægju með óriddaralegan reiðmann.
Olympia's song from Hoffmann's stories by Jacques Offenbach
Rainbow - Ruthie Foster, Mileage 2024
Haltu fast - Rebekka Blöndal - Kannski 2026
Caicó - ókunnur höfunudr - Viktoria Mullova og Misha Mullov-Abbado, Music we love 2020
Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður er á ferðinni fyrir Morgungluggann í sumar. Að þessu sinni er hann kominn upp í Mosfellsbæ í eitthvað bílabras.
Ljóð dagsins: Eyktir eftir Þórarinn Eldjárn - Sigfús Bjartmarsson les
Senetti no 1 - Juha Kujanpää
Ninna Sif Svavarsdóttir í Hveragerði ræðir um Skálholtshátíð, kyrrðardaga, þögninga, pílagrímsgöngur og trjáþjófnaði á Suðurlandi.
Hjarta mitt - Eivör Pálsdóttir - Krákan 2003
Shadows on the window - Bing Crosby með Victor Young og hljómsveit

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.


Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Þularkynnt tónlist

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Illugi Jökulsson gramsar í safnakosti Ríkisútvarpsins.
Halldór Laxness gerði stundum lítið út ljóðagerð sinni en ljóð hans voru þó mörg falleg og skemmtileg, og oft hvorttveggja. Árið 1949 kom út fyrsta útgáfa af ljóðasafni hans, Kvæðakveri, og þá mætti hann í útvarpssal og las nokkur ljóðanna á mjög hjartnæman hátt.

Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Umsjón með Hljóðrás ævi minnar þessa viku hefur Linda Ásdísardóttir.

Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Lagalisti:
Óskar Guðjónsson, Magnús Jóhann Ragnarsson - Greindargerjun.
Brown, Ray, Peterson, Oscar, Getz, Stan, Ellis, Herb, Roach, Max, Gillespie, Dizzy - It's the talk of the town.
James, Elmore, Wilkins, Joe, Bivens, Cliff, Williamson, Sonny Boy, Campbell, Dave, O'Dell, Frock - Eyesight to the blind.
Mikael Máni Ásmundsson - Birthday.
Wright, Lizz - All the Way Here.
Steingrímur Karl Teague, Magnús Trygvason Eliassen, Andri Ólafsson Kontrabassaleikari, Ari Árelíus, Rebekka Blöndal - Hvað þú vilt (feat. Moses Hightower).
Fitzgerald, Ella and her Famous Orchestra - Stairway to the stars.
Haden, Charlie, Jarrett, Keith - Don't ever leave me.
Myers, Amina Claudine, Smith, Wadada Leo - Jaqueline Kennedy Onassis Reservoir.
Afro-Latin Jazz Orchestra, O'Farrill, Arturo - Clump, unclump.
Einar Scheving - Hvert örstutt spor.
ADHD Hljómsveit - Hofslundur.
Mondragon, Joe, Pepper, Art, Hawes, Hampton, Bunker, Larry - Holiday flight.

Bjarki Sveinbjörnsson fer yfir yfir sögu hljómsveitarinnar og rekur meðal annars hvað aðalhljómsveitarstjórar hennar höfðu að leiðarljósi við störf sín.
Sagt verður frá nokkrum Listahátíðum . Leikið verður brot úr fyrsta flutningi á Carmina Burana á Listahátíð í Þjóðleikhúsinu 1960 í flutningi hljómsveitarinnar og Fílaharmóníukórsins undir stjórn Róberts A Ottóssonar. Þetta var jafnframt fyrsta stóra verkið sem kórinn flutti.
Þá verður leikinn þáttur frá Listahátíðinni 1964 úr konsert fyrir píanó nr. 3 í d-moll eftir Sergej Rakhmanínov í flutningi Sinfóníuhljómsveitarinnar og Vladimir Ashkenazy, en þetta var í fyrsta sinn sem hann lék með hljómsveitinni.
Annar erlendur gestur á þessari hátíð var Ruth Little Magnússon. Hún hélt hér tónleika ásamt Guðrúnu Kristinsdóttur píanóleikara og munum við heyra tvö lög í þeirra flutningi frá árinu 1965.
Í lok þáttar heyrum við tvo fyrstu þættina úr Sinfóníu í A-dúr op. 90 - Ítölsku sinfnóníunni eftir Felix Mendelssohn undir stjórn Karsten Andersen í hljóðritun frá árinu 1974.

Útvarpsfréttir.

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.

Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime tækla ESB umræðuna, hvor með sínum hætti.
Í hverri viku fá þeir til sinn sama viðmælandann, í sitt hvort viðtalið í von um að ólíkar nálganir þeirra geti hjálpað hlustendum að svara stóru spurningunni: Á að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu?
Umsjón: Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime Plaza
Stjórn upptöku og samsetning: Helgi Jóhannesson
Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen og Baldvin Þór Bergsson
Grafík: Kolbrún Þóra Löve
Ljósmyndun: Ragnar Visage
ATH: Hægt er að horfa á alla þættina í sjónvarpshluta spilarans
Evrópuhreyfingin styður inngöngu Íslands í Evrópusambandið og hvetur þjóðina þess vegna til að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst. En hver eru helst rök þeirra fyrir inngöngu? Helga Vala Helgadóttir, varaformaður Evrópuhreyfingarinnar, ræðir m.a. um verðlag og vexti, stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu og auðsyn þess að sjá saming sem þjóðin geti svo tekið afstöðu til.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Nokkur vel valin lög

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.

Hljóðritun frá kammertónleikum sem fram fóru á Schubert-hátíðinni í Schwarzenberg 21. júní sl.
Á efnisskrá eru tvö verk eftir Franz Schubert:
-Píanótríó nr. 1 í B-dúr, D. 898.
-Píanókvintett í D-dúr, D. 667, Silungakvintettinn.
Flytjendur: Renaud Capuçon fiðluleikari, Gérard Caussé víóluleikari, Julia Hagen sellóleikari, Lorraine Campet kontrabassaleikari og píanóleikarinn Guillaume Bellom.
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.

Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Umsjón með Hljóðrás ævi minnar þessa viku hefur Linda Ásdísardóttir.

Hljóðritun frá 1989
Hljóðritun frá 1989
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Hjá vondu fólki. Skráð af Þórbergi Þórðarsyni.
Pétur Pétursson les.


frá Veðurstofu Íslands

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.
Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime tækla ESB umræðuna, hvor með sínum hætti.
Í hverri viku fá þeir til sinn sama viðmælandann, í sitt hvort viðtalið í von um að ólíkar nálganir þeirra geti hjálpað hlustendum að svara stóru spurningunni: Á að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu?
Umsjón: Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime Plaza
Stjórn upptöku og samsetning: Helgi Jóhannesson
Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen og Baldvin Þór Bergsson
Grafík: Kolbrún Þóra Löve
Ljósmyndun: Ragnar Visage
ATH: Hægt er að horfa á alla þættina í sjónvarpshluta spilarans
Evrópuhreyfingin styður inngöngu Íslands í Evrópusambandið og hvetur þjóðina þess vegna til að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst. En hver eru helst rök þeirra fyrir inngöngu? Helga Vala Helgadóttir, varaformaður Evrópuhreyfingarinnar, ræðir m.a. um verðlag og vexti, stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu og auðsyn þess að sjá saming sem þjóðin geti svo tekið afstöðu til.

Útvarpsfréttir.
Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.
Nú stendur yfir götusýning um sýklalyfjónæmi í Austurstræti í Reykjavík. Sýningin er á vegum embætti Landlæknis en er farandssýyning og hefur verið sett upp víða í Evrópu. Sýningin samanstendur af myndskreytingum listamanna frá 30 Evrópuríkjum, en Hugleikur Dagsson er fulltrúi Íslands. Anna Margrét Halldórsdóttir yfirlæknir á sviði sóttvarna hjá Landlækni sagði okkur frá sýningunni.
Yfir sextíu innbrot hafa verið tilkynnt á höfuðborgarsvæðinu frá mánaðarmótum, bæði í fyrirtæki og heimahús. Meðal annars var brotist inn í sælkerabakaríið Sweet Aurora í miðborg Reykjavíkur aðfaranótt sunnudags og peningum stolið úr versluninni. Þá var einnig brotist inn í eldhús veitingastaðarins Ramen Momo en eigengur þar sögðu frá því í gær að þau hafi ákveðið að hætta að taka við reiðufé vegna innbrotahrinu sem nú gengur yfir. Einn er í gæsluvarðhaldi í tengslum við innbrotin. Ásmundur Rúnar Gylfason, sem er aðstoðar-yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu ræddi við okkur um stöðu þessara mála, viðbrögð lögreglu og forvarnir við innbrotum.
Laust eftir síðustu aldamót sá íslenskur bókmenntafræðingur fyrir sér að líkamsleifarnar sem hvíla í gröf Jónasar Hallgrímssonar á Þingvöllum yrðu sendar til DNA-greiningar á danskri rannsóknarstofu. Hann samdi ótímabæra skýrslu til að tryggja að erfðafræðingurinn, sem annast myndi rannsóknina, gæti glöggvað sig á viðfangsefninu. Að baki bjó djúpstæð löngun höfundar til að fá botn í íslenska þjóðarsál. Skýrslan kom út á bók skráð sem skáldfræðirit árið 2003 og kallast Ferðalok. Nú er ekki ólíklegt að spádómur höfundar sé að raungerast í stóra beinamálinu og höfundur bókarinnar, Jón Karl Helgason sagði okkur frá endurútgáfu bókarinnar.
Hvaða áhrif gæti upptaka evru haft á íslenskan vinnumarkað og arðsemi fyrirtækja? Þessari spurningu svarar Sveinn Agnarsson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, í grein sem birtist í byrjun vikunnar á Evrópuvefnum. Þar fer hann yfir hver hagvöxtur er á Íslandi miðað við evrusvæðið og hvaða áhrif upptaka evru myndi hafa á hagvöxt. Sveinn kom til okkar og fer yfir þessi mál.
Ekkert lát er á endalausum kvörtunum sem berast Neytendasamtökunum er snerta bílastæði og gjöldum þeim tengdum. Helst er kvartað yfir vangreiðslugjöldum en upplýsingaóreiða, villandi og jafnvel rangar upplýsingar, hafa leitt til þess að fjöldi fólks er rukkaður um vangreiðslugjöld að ósekju. Reynsla Netendasamtakanna er þó sá að neytendur hafi almennt ekkert á móti því að greiða sanngjarnt verð fyrir bílastæði en þar er flækjustigið mikið. Breki Karlsson formaður Netendasamtakanna kom til okkar og ræddi innheimtu þessara vangreiðslugjalda.
Franskir dagar á Fáskrúðsfirði halda upp á 30 ára afmæli í ár og blása heldur betur í herlúðra. Franskir dagar eru fjölskylduvæn sumarhátíð, með frönsku ívafi en Fáskrúðsfjörður er stundum kallaður franski bærinn og hefur mikla tengingu til Frakklands og þá helst sjávarbyggðanna á norðurströndinni. Til að undirstrika þessi nánu tengsl má nefna að nær öll götuskiltin á Fáskrúðsfirði eru bæði á íslensku og frönsku. En hvað verður í boði og hvernig hefur undirbúningi verið háttað, Daníel Geir Moritz svaraði þeim spurningum og fleirum í Fram undan.

07:30

08:30

Umsjón: Friðrik Ómar.


Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Útvarpsfréttir.

Margrét Erla Maack fylgir fólki á góðum sumardögum, leikur lauflétta tóna og heldur gleðinni gangandi.



Útvarpsfréttir.

Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Léttir tónar óma úr eldhúsinu.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.


Umsjón: Andrea Jónsdóttir.