18:00
Kvöldfréttir útvarps
Þjóðarpúls Gallup, manndrápsmál á Kársnesi, aukin verðbólga, uppsagnir hjá Reykjavíkurborg, brot Manchester City

Fréttir

Fréttir

Sjálfstæðisflokkurinn tapar mestu fylgi í nýjum þjóðarpúlsi Gallups, þeim fyrsta sem gerður er eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna fyrir mánuði. Samfylkingin bætir mestu við sig.

Fyrsta degi aðalmeðferðar í manndrápsmáli í Kársnesi lauk á fimmta tímanum í dag. Sakborningurinn neitar sök.

Forseti ASÍ segir nýja verðbólgumælingu ekki skemma fyrir kjaraviðræðum. Von sé á þríhliða yfirlýsingu ASÍ, stjórnvalda og Samtaka atvinnulífsins, sem lækki verðbólgu.

Illa gengur að fá rökstuðning frá skrifstofu borgarstjóra vegna fjölda uppsagna sem ráðist var í í sumar. Hluta þeirra sem var sagt upp störfum hefur verið boðnar tímabundnar stöður.

Enska úrvalsdeildin í knattspyrnu staðfesti í dag að félagið Manchester City hefði verið sakfellt fyrir alvarleg brot á fjármálareglum deildarinnar.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 10 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,