17:03
Lestin
Boltamömmur, bútasaumsljóð og þorrablót

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Brjálaðar boltamömmur á hliðarlínunni á leik í fimmta flokki kvenna rífast í dómaranum og lenda í átökum sín á milli. Þessa mynd kannast flestir við sem tengjast fótboltahreyfingunni á einhvern hátt. Og þetta er einn þráðurinn í nýjum íslenskum gamanþáttum Boltamömmur sem eru sýndir á Sjónvarpi Símans. Þættirnir eru hugarfóstur Lilju Nætur Þórarinsdóttur, leikkonu og handritshöfundar, og segja frá nýfráskilinni konu sem hellir sér af lífi og sál í heim yngri flokka fótboltans. Brynja Hjálmsdóttir rýnir í þættina.

Við skoðum líka niðurstöður nýrrar rannsóknar sem fjallar um endalok kvikmynda. Er öld hinna gleðilegu Hollywood-endalokanna liðin?

Samljóða er ritvinnslusmiðja sem fer fram á hverjum miðvikudegi á Borgarbókasafninu í Grófinni. Karólína Rós Ólafsdóttir, skáld, stýrir þar vinnustofum sem hún kallar Bútasaumsljóð. Þar skrifa þátttakendur texta út frá orðum sem þeir elska, orðum sem þeir þola ekki eða orðum sem vekja áhuga þeirra á einhvern annan hátt. Þátttakendur með íslensku sem annað mál eru hvattir til að taka þátt, enda kemur ýmislegt í ljós þegar gests augu líta á tungumálið okkar.

Á föstudaginn sendir Karólína líka frá sér ljóðabókina Lífskán, ljóðsögu um líkamann, tungumálið og manneskjuna andspænis heilbrigðiskerfinu. Karólína hlaut Nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta fyrir handritið að bókinni og nú kemur það út hjá Benedikt.

Við heyrum svo um viðskiptamanninn sem átti þá frábæru hugmynd að fá Íslendinga til að skemmta sér í janúarmánuði með því að borða skemmdan mat, og bjó þar með til hefð sem þúsundir Íslendinga elska að sameinast um enn þann dag í dag. Björn Teitsson fjallar um menningararf og mat í fjórða og síðasta pistli sínum í lestinni þetta haustið: Þorramatur, Kentucky Fried, Pad Thai, og Kebabpizza koma meðal annars við sögu.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 55 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,