07:03
Morgunútvarpið
Ari Eldjárn,Jakob Birgis,sólmyrkvinn,ÖBÍ og tíkin Bella

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Sólmyrkvinn í 12. ágúst gæti orðið olía á eld verðbólgubálsins og það á versta tíma, enda mikið undir að verðbólgan fari ekki upp fyrir viðmiðunarmörk í kjarasamningum. Greiningardeild Landsbankans hefur rýnt í efnahagsleg áhrif sólmyrkvans og borið saman við stórviðburði úti í heimi. Niðurstöðurnar sýna að náttúruundur á borð við sólmyrkva og Taylor Swift geti haft töluverð áhrif á verðbólgu. Hjalti Óskarsson, hagfræðingur í greiningardeild Landsbankans, kom með tölurnar í Morgunútvarpið.

Hvaða mál brenna á öryrkjum í aðdraganda sveitarstjórnakosninga? ÖBÍ fagnar 65 ára afmæli í dag og Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ kom til okkar og ræddi um kosningarnar framundan og helstu áfangana í réttindabaráttu

Jakob Birgisson sagði nýlega skilið við starf sitt sem aðstoðarmaður Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra og hyggst snúa aftur í heim grínsins. Hann vinnur nú að nýju efni og ætlar að stíga á svið í Sykursalnum á föstudag ásamt engum öðrum en Ara Eldjárn, sem er á leiðinni til meginlands Evrópu með grínið sitt í haust. Jakob og Ari litu við í Morgunútvarpinu og sögðu okkur frá þessu.

Tíkin Bella fannst í stórri grjóthrúgu á dögunum eftir leit sem stóð í sex sólarhringa. 200 sjálfboðaliðar komu að leitinni og notast var við átta dróna, þrír hitadróna, nætursjónauka, hitasjónauka og fjórhjól. Dýrfinna stýrði leitinni en það eru félagasamtök sem hjálpa týndum gæludýrum að komast aftur heim til sín. Þrír hundar týnast á höfuðborgarsvæðinu á hverjum einasta degi og því ekki vanþörf á félagasamtökum eins og Dýrfinnu. Freyja Kjartansdóttir og Anna Margrét Áslaugardóttir frá Dýrfinnu komu í Morgunútvarpið.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,