Í þáttunum Steypiregn kynnir Margrét Kristín Blöndal tónlistarmenn og tónlistarkonur sem hafa átt ríkan þátt í gera heiminn enn betri og fegurri. Í hverjum þætti er einn listamaður tekinn fyrir og verk hans kynnt fyrir hlustendum.
Þættirnir voru áður á dagskrá árið 2014.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Þeir sem eitthvað þekkja til íslenskra bragarhátta kannast við sléttubönd. Það eru ferskeytlur sem hægt er að lesa afturábak og áfram. Hliðstæð fyrirbrigði eru á ensku kölluð „palindrome“, en það orð merkir ekki eingöngu vísur sem hægt er að snúa við, það merkir líka orð sem þetta á við um, setningar, tölur og fleira. Kvenmannsafnið „Anna“ myndi til dæmis teljast „palindrome“ af því að það er eins hvort sem lesið er afturábak eða áfram. Einnig eru til svokölluð palindrome-tónverk, þar sem fyrri hluta tónsmíðarinnar er snúið við í seinni hlutanum. Sinfónía nr. 47 eftir Joseph Haydn er kölluð Palindrome-sinfónían af því að þriðji þáttur hennar hefur þessa eiginleika. Ef til vill mætti kalla verkið Sléttubandasinfóníuna á íslensku. Þetta verk verður flutt í þættinum „Á tónsviðinu“ og einnig önnur tónverk sem hægt er að snúa við, svo sem „Sléttubönd“ eftir Unu Sveinbjarnardóttur og „Sléttuband“ eftir Huga Guðmundsson. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
Fimm þættir um þjóðarleiðtoga sem aðhyllast þjóðernispopúlisma.
Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.
Fimm þættir um þjóðarleiðtoga sem aðhyllast þjóðernispopúlisma.
Í þriðja þætti er fjallað um Recep Tayyip Erdogan, forseta Tyrklands. Viðmælendur eru stjórnmálafræðiprófessorarnir Eiríkur Bergmann og Magnús Þorkell Bernharðsson.
Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.

frá Veðurstofu Íslands.
Að „sampla“ í tónlist merkir að fá að láni hljóðbrot úr eldra lagi. Þessi aðferð hefur tíðkast í rúm fjörutíu ár, sérstaklega í hipphoppi, þar sem bassalínur og hljómar úr eldri diskólögum og fönki voru lengi grunnurinn að tónlistinni sem var rappað við, en er útbreidd í nær allri popptónlist samtímans.
Í þessari þáttaröð segir Atli Bollason sögu þessarar aðferðar - tónklippilistarinnar -
frá árdögum hennar í módernískri tónlist fimmta áratugarins, gegnum hipphopp níunda áratugarins
Velt er upp lögfræðilegum álitamálum, en tónklippilistin hefur reynt mjög á
höfundarréttarlög. Tónklippilistin er einnig sett í samhengi við póstmódernískar kenningar um textatengsl og spurt hvort endurvinnsla af þessu tagi sé leikur að innantómum vísunum
sem endurspegli óhæfi til að fást við eigin samtíma, eða hvort hún komi á hugmyndafræðilegum tengslum við verkin sem á undan fóru í því skyni að varpa nýju, fersku og merkingarbæru ljósi á nútíðina.
Hvernig kallast tónklippilistin á við sambærilegar aðferðir í myndlist og bókmenntum? Hver er munurinn á því að nota þekkt hljóðbrot og óþekkt? Hver er framtíð tónklippilistar þegar hægt er að framleiða „ímynduð hljóðbrot“ í einni svipan með aðstoð gervigreindar?
Með gervigreind er hægt að líkja eftir hljóðum frá hvaða áratug sem er. Það verður hægt að líkja eftir hljóðum sem minna á hvaða tónlist sem er. Verður einhvers virði að sampla í þannig umhverfi? Eða fær það kannski enn sterkari merkingu? Er hægt að sampla tónlist frá stað og tíma sem aldrei var til? Höfundar af holdi og blóði mata þjálfunarmódel gervigreindarinnar þótt útkoman sé ný í hvert sinn.
* Viðtöl við Sveinbjörn Thorarensen, Rögnu Kjartansdóttur, Sölva Blöndal og Þórhall Magnússon
Séra Bjarki Geirdal Guðfinnsson þjónar fyrir altari og prédikar
Organisti og kórstjóri: Guðmundur Sigurðsson
Kór Árbæjarkirkju syngur
1. sunnudag eftir páska 2026.
Vers dagsins: „Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists sem eftir mikilli miskunn sinni hefur endurfætt oss til lifandi vonar fyrir upprisu Jesú Krists frá dauðum.“ (1Pét 1.3)
TÓNLIST Í MESSUNNI
Fyrir predikun
Forspil: Vater unser in Himmelreich BWV 636, höf. J. S. Bach
218 Kom, voldugi andi Skoskt þjóðl./ H. Kennedy – Arinbj. Vilhjálmsson
265 Þig lofar, faðir, líf og önd Lag frá 10. öld / Sigurbj. Einarsson
280 Við heyrum Guðs heilaga orð F. O‘ Carroll- C. Walker / Aðalst.Ásb. Sigurðsson
159 Fræ í frosti sefur Franskt lag frá 16. öld / Frostenson – Sigurbj. Ein.
Eftir predikun
728 Ljósfaðir Sig. Flosason / Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
296 Þér friður af jörðu fylgi nú John Bell / Gvatemala – Kristján.V. Ingólfsson
Eftirspil: Jesu, meine Freude BWV 610
Útvarpsfréttir.
Flugstjóri flugvélar Icelandair sem flaug lágflug yfir Vestmannaeyjum í gær fékk leyfi til að breyta út frá flugleið frá flugumsjón, en ekki frá Icelandair. Farþegar voru látnir vita að til stæði að fljúga lágt, einn þeirra segir þetta hafa verið stórkostlega upplifun.
Auknar líkur eru á að vopnahlé milli Írans og Bandaríkjanna haldi ekki, eftir að friðarviðræður runnu út í sandinn í gær. Svo virðist sem samkomulag hafi aldrei verið í augsýn.
Kjörsókn í þingkosningunum í Ungverjalandi hefur verið afar góð það sem af er degi. Sjö tímum eftir að kjörstaðir voru opnaðir, hafði rúmur helmingur kjósenda greitt atkvæði.
Ísland er að fjarlægjast alþjóðleg markmið um þróunaraðstoð á sama tíma og stór ríki draga saman seglin, segir framkvæmdastjóri Barnaheilla. Hún segir að Ísland ætti að taka afstöðu og sýna fordæmi í þessum efnum.
Sjálfkjörið verður í minnst fjórum sveitarfélögum í kosningunum í vor þar sem einungis einn framboðslisti hefur komið fram.
og Ísland mætir Portúgal í lokaleik undankeppni Evrópumóts kvenna í handbolta á Ásvöllum síðar í dag. Sigur kemur íslenska liðinu upp fyrir það portúgalska og á EM.
Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.
Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir
Í þessum þætti Krakkaheimskviða kynnum við okkur þingkosningar sem nýlega fóru fram í Danmörku og Færeyjum. Stjórnmálafræðingurinn Sara Þöll Finnbogadóttir býr í Danmörku og fylgdist vel með kosningunum.
Karl Th. Birgisson fjallar um sögu Persa eða Írana, frá upphafi til okkar daga.
Þættirnir eru frá árinu 2005.
Karl Th. Birgisson fjallar um sögu Persa eða Írana, frá upphafi til okkar daga. Fjórði þáttur af fimm.
Í þættinum er spiluð sígild persnesk tónlist.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 28. ágúst 2005.
Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.
Í Tónhjólinu að þessu sinni eru flautur og tvíblöðungar í aðalhlutverki.
Tónlist sem hljómar í þættinum:
Inngangur og tilbrigði við Trockne Blumen eftir Franz Schubert, Op. 160, D802
Flytjendur: Stefán Ragnar Höskuldsson, flauta og Michael McHale, píanó
Solitude eftir Magnús Blöndal Jóhannsson
Stefán Ragnar Höskuldsson, flauta
Fuglatónar, Kvennatónar og Tónatónar eftir Atla Heimi Sveinsson
Manuela Wiesler, flauta
Flautukonsert nr. 1 eftir Atla Heimi Sveinsson
Flytjendur: Sinfóníuhljómsveit Íslands, einleikari: Robert Aitken, flautur
Little Flower Garden með Djivan Gasparyan á duduk
Sarewa og Overtones með The World Wind Band, skipað þeim Dirk Campbell og Jan Hendrickse
Insecurities með Shabaka
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Greinin „Stikukerfið: tugamál og tugavog“ birtist í Skírni 1908. Jón Jónsson prófastur á Stafafelli í Lóni skrifaði um lög um metramæli og vog sem samþykkt voru á Alþingi árið áður. Jón var ósáttur við að með metrakerfinu var löghelgaður urmullinn allur af útlendum orðum og lagði til í staðinn alíslenskt orð, eins og „stika“ um metra; „mælir“ um lítra; og „met“ í stað hins útlenda gramms.
Sögur fólks sem þurfti að dvelja barnungt á heimavist fjarri fjölskyldum sínum til þess að stunda grunnskólanám. Fyrir mörg var það þungbær reynsla meðan önnur eiga ljúfar minningar.
Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir.
Það er flókið að tryggja öllum börnum í strjálbýlu landi sömu tækifæri til menntunar. Heimavistarskólar voru langþráð lausn og stolt hverrar sveitar þegar þeir loksins risu. Í þessum fyrsta þætti skoðum við hvernig skólahald til sveita þróaðist á 20. öldinni og heyrum bæði af heimþrá og hamingju á heimavist.
Viðmælendur: Rúnar Sigþórsson, Jónína Einarsdóttir, Þura Jónasdóttir, Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir og Líney Snjólaug Diðriksdóttir.
Lesari: Ólöf Elsa Ásgrímsdóttir.
Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir.

frá Veðurstofu Íslands
Umsjón: Svanhildur Jakobsdóttir.
Lagalistinn:
Hljómsveit Svavars Gests - Syrpa af hægum lögum : Ég hef elskað þig frá okkar fyrstu kynnum.
Sigrún Jónsdóttir, Hljómsveit Jan Morávek - Í faðmi þér.
Statler Brothers - Flowers on the wall.
Bríet - Gleymmérei.
Jones, Norah - Don't know why.
Fjórtán Fóstbræður - Syrpa af hægum lögum : Ég hef elskað þig frá okkar fyrstu kynnum.
Stefán Íslandi, Karlakór Reykjavíkur - Ökuljóð.
Björgvin Halldórsson - Litla flugan.
Góss - Á sama tíma að ári.
Kór Langholtskirkju - Hver á sér fegra föðurland.
Count Basie and his Orchestra, Fitzgerald, Ella, Basie, Count - Dream a little dream of me.
Mutter, Anne-Sophie, Berliner Philharmoniker, Meneses, António - Concerto for violin, violoncello and orchestra in A minor, op.102 : 1. Allegro.
Björn Thoroddsen - Hotel California.
Rahman, A.R., Pussycat Dolls, Rahman, A.R. - Jai Ho (You are my destiny).
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Það er kjördagur í Ungverjalandi á morgun en þá fara fram einar mest spennandi kosningar í Evrópu í langan tíma. Viktor Orban, sem hefur verið við völd í 16 ár, mælist með minna fylgi samkvæmt könnunum, og Peter Magyar, sem býður sig fram gegn honum gæti orðið næsti forsætisráðherra. Við heyrum frá Birni Malmquist sem er í Búdapest. Hann segir að þar sé mikil bjartsýni fyrir sigri Peters Magyar, sem er kannski ekkert skrítið, hann mælist með meira fylgi í könnunum en meirihluti Ungverja býr í sveitum og smærri borgum og þar nýtur Orban mikillar hylli. En Magyar í borgunum. Og hann þarf að vinna stóran sigur til þess að leggja Orban og ná meirihluta í þinginu, og það er svo sem líklegt núna að hann vinni kosningarnar, en Orban hefur gert miklar breytingar á kosningakerfinu og vægi atkvæða, og það verður því að teljast ólíklegt að fleiri atkvæði dugi til þess að vinna kosningarnar og koma Orban frá. Sigurinn þarf að vera svo stór.
Eitt flóknasta og umfangsmesta manntal sögunnar hófst á dögunum. Nú á að telja indversku þjóðina. Þrjár milljónir starfa við framkvæmdina, þetta eru 33 spurningar sem verða lagðar fyrir rúman milljarð landsmanna. Í fyrsta sinn í heila öld er fólk einnig skráð eftir stétt í hinu mjög svo stéttskipta Indlandi. Birta kynnti sér málið.
Heimsbyggðin virðist enn vera hugfangin af Kennedy-fjölskyldunni, þrátt fyrir að rúmlega sextíu ár séu síðan John F. Kennedy Bandaríkjaforseti var skotinn til bana. Til marks um áhrif Kennedy-fjölskyldunnar innan bandarískra stjórnmála má geta þess að frá 1947, þegar John F. Kennedy var fyrst kjörinn á þing, og þar til 2011 gengdi að minnsta kosti einn meðlimur Kennedy-fjölskyldunnar kjörnu embætti á alríkisstigi á ári hverju. Nú eru þættir um örlög sonar hans og nafna mikið í umræðunni. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir hellti sér í sögu Kennedy-fjölskyldunnar.
Að „sampla“ í tónlist merkir að fá að láni hljóðbrot úr eldra lagi. Þessi aðferð hefur tíðkast í rúm fjörutíu ár, sérstaklega í hipphoppi, þar sem bassalínur og hljómar úr eldri diskólögum og fönki voru lengi grunnurinn að tónlistinni sem var rappað við, en er útbreidd í nær allri popptónlist samtímans.
Í þessari þáttaröð segir Atli Bollason sögu þessarar aðferðar - tónklippilistarinnar -
frá árdögum hennar í módernískri tónlist fimmta áratugarins, gegnum hipphopp níunda áratugarins
Velt er upp lögfræðilegum álitamálum, en tónklippilistin hefur reynt mjög á
höfundarréttarlög. Tónklippilistin er einnig sett í samhengi við póstmódernískar kenningar um textatengsl og spurt hvort endurvinnsla af þessu tagi sé leikur að innantómum vísunum
sem endurspegli óhæfi til að fást við eigin samtíma, eða hvort hún komi á hugmyndafræðilegum tengslum við verkin sem á undan fóru í því skyni að varpa nýju, fersku og merkingarbæru ljósi á nútíðina.
Hvernig kallast tónklippilistin á við sambærilegar aðferðir í myndlist og bókmenntum? Hver er munurinn á því að nota þekkt hljóðbrot og óþekkt? Hver er framtíð tónklippilistar þegar hægt er að framleiða „ímynduð hljóðbrot“ í einni svipan með aðstoð gervigreindar?
Með gervigreind er hægt að líkja eftir hljóðum frá hvaða áratug sem er. Það verður hægt að líkja eftir hljóðum sem minna á hvaða tónlist sem er. Verður einhvers virði að sampla í þannig umhverfi? Eða fær það kannski enn sterkari merkingu? Er hægt að sampla tónlist frá stað og tíma sem aldrei var til? Höfundar af holdi og blóði mata þjálfunarmódel gervigreindarinnar þótt útkoman sé ný í hvert sinn.
* Viðtöl við Sveinbjörn Thorarensen, Rögnu Kjartansdóttur, Sölva Blöndal og Þórhall Magnússon
Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Til að endurheimta svefn sinn og geðheilsu byrjar nýr eigandi 100 ára gamals húss að rannsaka
sögu þess. Búa fleiri en bara hennar fjölskylda í húsinu? Eða er hún að missa vitið?
Umsjón: Margrét Seema Takyar

frá Veðurstofu Íslands
Stefán Ragnar Höskuldsson vissi snemma að hann vildi verða flautuleikari og þurfti aldrei að vera minntur á að æfa sig. Hann ólst upp á Austfjörðum en fór mánaðarlega til Reykjavíkur í flaututíma frá 9 ára aldri, í fylgd föður síns. Hæfileikar, ástríða og þakklæti hafa komið honum eins langt og tónlistarmaður getur náð á einni ævi - Stefán Ragnar leikur nú fyrstu flautu í Berlínarfílharmóníunni, einni fremstu sinfóníuhljómsveit heims. Í samtali við Melkorku Ólafsdóttur rekur Stefán Ragnar leið sína úr sveitinni í skærasta sviðsljósið.
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Framhald af síðasta þætti; hér verður athygli einkum beint að sögu ríkjanna Ísraels og Júda frá 800-586 FT, greint frá því hvað þau áttu sameiginlegt og hvað var ólíkt í trúarlegum efnum. Síðan segir frá örlögum íbúanna þegar Assyríumenn hernámu Ísrael og síðan Babýloníumenn Júda. Þá hyllir loks undir hernám Persa og þau áhrif sem þeir höfðu á trúarlíf Gyðinga.

Útvarpsfréttir.
Hulda Geirsdóttir er fyrst á fætur á sunnudagsmorgnum á Rás 2. Hún heyrir í fólki víða um land, fær til sín góða gesti og leikur fjölbreytta tónlist að sínum hætti. Notaleg morgunstund með hlustendum.
Ljúfir tónar og gott spjall voru í forgrunni hjá Huldu þennan sunnudagsmorgun. Hún heyrði í Magnúsi Bragasyni sem sagði fréttir frá Vestmannaeyjum og gestur þáttarins að þessu sinni var Begga Rist hestakona og leiðsögumaður sem sagði frá ýmsum ævintýrum sínum og áskorunum, m.a. þegar hún giftist danska krónprinsinum, dvöl í Frakklandi og Danmörku og baráttu við afleiðingar slyss og krabbamein.
Lagalisti:
Helena Eyjólfsdóttir - Reykur.
The Beatles - Blackbird.
Björgvin Halldórsson - Sönn ást.
Brook Benton - Rainy night in Georgia.
Eric Clapton & friends - Call me the breeze.
Grafík - Komdu út.
Sextett Ólafs Gauks - Villtir strengir.
ABC - When Smokey sings.
Smokey Robinson and the Miracles - You've really got a hold on me.
Reynir Haraldsson - Allt sem ég þarf að sjá.
Paul Weller - No tears to cry.
JóiPé, Króli og Ussel - 7 símtöl.
Freyr Eyjólfsson mætir með kaffibollann sinn og grúskar í allskonar tónlist frá ýmsum tímum.
Það er komið gó á Bó. Stórsöngvari og stór og mikil sál. Við spilum lög eftir Björgvin og minnumst hans. Síðan skoðum við sérkennilega sögu hamborgarans.
Rebekka Blöndal - Stjörnur stara (Extended version).
Björgvin Halldórsson - Skýið.
Björgvin Halldórsson - Vinur í raun
Björgvin Halldórsson - Lítið leyndarmál
Björgvin Haldórsson - Hótel Sorg
Guðmundur Andri Thorson - Sól í sinni
Góss - Á sama tíma að ári.
Mánar - Haustregn.
Ivar Klausen - All will come to pass
Harry Nilsen - Gotta Get Up
George Harrison - Beware of darkness
Sandie Shaw - Always something there
Scott McMicken and THE EVER-EXPANDING - One Good Reason.
Bubbi Morthens - Blóðbönd.
Suede - The wild ones.
Beatles - Sun king.
ROD STEWART - You Wear It Well.
Blur - Coffee and tv.
BEATLES - In My Life [Mono Version].
SUPERGRASS - Low C.
Krummi - Smile till it ends.
Flott - Tuttugu og eitthvað.
Útvarpsfréttir.
Flugstjóri flugvélar Icelandair sem flaug lágflug yfir Vestmannaeyjum í gær fékk leyfi til að breyta út frá flugleið frá flugumsjón, en ekki frá Icelandair. Farþegar voru látnir vita að til stæði að fljúga lágt, einn þeirra segir þetta hafa verið stórkostlega upplifun.
Auknar líkur eru á að vopnahlé milli Írans og Bandaríkjanna haldi ekki, eftir að friðarviðræður runnu út í sandinn í gær. Svo virðist sem samkomulag hafi aldrei verið í augsýn.
Kjörsókn í þingkosningunum í Ungverjalandi hefur verið afar góð það sem af er degi. Sjö tímum eftir að kjörstaðir voru opnaðir, hafði rúmur helmingur kjósenda greitt atkvæði.
Ísland er að fjarlægjast alþjóðleg markmið um þróunaraðstoð á sama tíma og stór ríki draga saman seglin, segir framkvæmdastjóri Barnaheilla. Hún segir að Ísland ætti að taka afstöðu og sýna fordæmi í þessum efnum.
Sjálfkjörið verður í minnst fjórum sveitarfélögum í kosningunum í vor þar sem einungis einn framboðslisti hefur komið fram.
og Ísland mætir Portúgal í lokaleik undankeppni Evrópumóts kvenna í handbolta á Ásvöllum síðar í dag. Sigur kemur íslenska liðinu upp fyrir það portúgalska og á EM.
Á Sportrásinni fylgist Doddi með því sem er að gerast í íþróttalífinu hér heima og erlendis. Helstu íþróttafréttir vikunnar og hvað er framundan með góðri aðstoð íþróttadeildar RUV. Ásamt gæða sunnudags tónlist.
Sportrásin, ekki bara fyrir þá sem hafa gaman af sportinu!
Það var nóg um að vera á Sprotrásinni í dag enda úrslitakeppnir að ná hámarki og Besta deild karla farin af stað.
Jón Júlús Karlsson sagði okkur frá því helsta sem er að gerast á Masters mótinu í golfi.
Gunnar Birgisson rýndi í úrslitakeppnina í blaki.
Góð Íþrótt Gulli Betri.
Akureyrarliðin KA og Þór eru loksins sameinuð í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta skipti síðan 2002. Af því tilefni settist Gulli Jóns með þjálfurum liðanna Hallgrími Jónasson KA og Sigurði Höskuldssyni Þór. Upptakan fór fram í gær í hljóðveri Rúv-Ak.
Einar Örn Jónsson sagði okkur helstu fréttir úr úrslitakeppnunum í handbolta og landsleikjum kvennalandsliðana í hand og fótbolta.
Friðrik Ingi Rúnarsson, körfubolta sérfræðingur sagði okkur hvað sé að gerast í NBA deildinni og úrslitakeppnum Bónusdeildanna.
Sunna Björgvinsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins í íshokkí var á línunni beint frá Slóveníu þar sem liðið tekur þátt í heimsmeistaramóti IIHF.
Lagalisti dagsins
Una Torfadóttir, Ágúst Þór Brynjarsson - Inn í síðustu nóttina.
LANA DEL RAY - Doin' Time.
Styles, Harry - American Girls.
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON - Ég Fann Þig.
NEW ORDER - Regret.
MT Jones - I Don't Understand.
ROXY MUSIC - Dance Away.
Moses Hightower - Ráðahagur.
hOFFMAN - Fallbeygðu mig.
200.000 NAGLBÍTAR - Neðanjarðar.
BARAFLOKKURINN - Its all planned.
INXS - New sensation.
Sycamore tree - Better call off the search for my soul.
Snorri Helgason, Bríet - Mexico.
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON - Ég skal syngja fyrir þig.
Tame Impala - Dracula.
MADONNA - Ray Of Light.
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Hljómsveitin Todmobile hlaut á dögunum heiðursverðlaun ÍTV fyrir framlag sitt til tónlistarlífsins á Íslandi í næstum 40 ár, en rætur hljómsveitarinnar liggja allt aftur til tímans þegar rokk í Reykjavík var að verða til.
Þorvaldur Bjarni heldur áfram að segja frá í Rokklandi vikunnar!

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.
Á sunnudögum opnar Rósa Suðupottinn og býður hlustendum í fjölbreytt tónlistarferðalag þar sem jazz, trip hop, heimstónlist og fleiri stefnur mætast í nútímanum.
Creature of Habit - Myrká
Atabasca - Cameo
Akofa Akoussah - I tcho tchass
Knowsum - The Phase
Sholto - Heady
Krummi - Smile till it ends
Atabasca - DUne
Okonski - Flying
Rosalía - La Perla
Stína Ágústsdóttir - Body
Modha - Find me ( Underneath the sun )
100% Pure Poison - Windy C
Mos Def - Umi Says
Zé Roberto - Lotus 72 D
The Lively Ones - Surf rider
Jonee Jonee - Af því að pabbi vildi það
Angine de Poitrine - Sarniezz
Thundercat - She knows too much
Andrina Bollinger - Mind needs body
Nilufer Yanya - The Dealer
Astrocolor - Flash
Kelela - Idea 1
Gyða Valtýsdóttir - Mother Pearl
Badbadnotgood - Found a light ( Beale Street )
Beck - Que Onda Guero
Chali 2Na - Comin Thru´
Arlo Parks - Beams
James Blake - Doesn´t just happen
Bryndís - How you doing?
M.I.A. - Everything
Gelli Haha - Klouds will carry me to sleep
Club 8 - Western Hospitality
Ouri - Too fast no pain
Tricky - Like a stone ( trentemøller remix )
Aja Ireland - -Mami Voguer
Sideproject - sospir
Patricia Wolf - Inflorescence
Björgvin Halldórsson - Himinn og Jörð
Spennandi tónar bergmála um göngugötuna í Mjóddinni. Indírokk, alternative, lo-fi, dreampop og margt annað áhugavert. Verið velkomin í Mjóddina, þar sem hjartað slær.
Umsjón: Björn Þór Björnsson
Lagalisti:
Superserious - Let’s Consume
Alex G - June Guitar
Colin Miller - Thunder Road
Fine Food Market - Wild World
Tokyo Tea Room - Tell Me How
Scott McMicken and the Ever Expanding - One Good Reason
Smerz - You got Time and I got Money
Sharon Van Etten - Trouble
Daniel Romano's Outfit - The Motions
The Bures Band - Bird’s Nest
Tobacco City - Half in the Bag
Angine de Poitrine - Sarniezz
Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Indie-folk hljómsveitin Einakróna sendir frá sér sína fyrstu breiðskífu, Rembihnútar. Verkefnið hófst sem einangrað „garageband-verkefni“ Bjarkar Magnúsdóttur á Soundcloud en hefur vaxið í fullskipaða fimm manna sveit. Platan er ljóðræn og persónuleg rannsókn á mannlegum samskiptum; erfiðleikanum við að vera opinskár, sorg, missi og þráhyggjunni að reyna að laga sambönd sem ekki verður bjargað.