16:05
Tónhjólið
Flautur og tvíblöðungar

Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.

Í Tónhjólinu að þessu sinni eru flautur og tvíblöðungar í aðalhlutverki.

Tónlist sem hljómar í þættinum:

Inngangur og tilbrigði við Trockne Blumen eftir Franz Schubert, Op. 160, D802

Flytjendur: Stefán Ragnar Höskuldsson, flauta og Michael McHale, píanó

Solitude eftir Magnús Blöndal Jóhannsson

Stefán Ragnar Höskuldsson, flauta

Fuglatónar, Kvennatónar og Tónatónar eftir Atla Heimi Sveinsson

Manuela Wiesler, flauta

Flautukonsert nr. 1 eftir Atla Heimi Sveinsson

Flytjendur: Sinfóníuhljómsveit Íslands, einleikari: Robert Aitken, flautur

Little Flower Garden með Djivan Gasparyan á duduk

Sarewa og Overtones með The World Wind Band, skipað þeim Dirk Campbell og Jan Hendrickse

Insecurities með Shabaka

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 22 mín.
,