Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Áfram var rætt um frið á Morgunvaktinni. Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, sem rekur m.a. Höfða friðarsetur, kom í þáttinn. Hún segir mikilvægt að halda áfram að tala um og fyrir friði, á ófriðartímum.
Björn Malmquist, fréttamaður í Brussel, sagði frá kosningum í Frakklandi og Slóveníu, leiðtogafundinum í síðustu viku og ræddi við Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra um samninga sem eiga að geta sparað mikinn kostnað við gjaldeyrisvaraforðann.
Auður Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, var síðasti gestur þáttarins. Hún ræddi um Heiðmörk og önnur útivistarsvæði, mikilvægi þeirra og tilhneigingu stjórnmála til að huga lítið að þeim.
Tónlist:
Ingi Bjarni Skúlason kvartett - Uplift.
Serge Gainsbourg - La chanson de Prévert.
Pikknikk - Gerum betur.
Gunnar Randversson - Autumn leaves.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Í þættinum hljóma lög við ljóð eftir bræðurna frá Vaðbrekku í Hrafnkelsdal í Jökulsárhlíð, þá Hákon og Ragnar Inga Aðalsteinssyni. Einar Bragi Bragason gerði plötuna Skuggar árið 2007 sem inniheldur lög hans við ljóð Hákonar Aðalsteinssonar. Leikin eru lögin Móðir jörð, Skuggar og Nú er allt svo hljótt. Jón Ingi Arngrímsson og hljómsveitin Nefndin gerðu plötuna Augnablik árið 2010 þar sem finna má frumsamin lög við ljóð Hákonar Aðalsteinssonar. Leikin eru lögin Álfasaga og Augnablik. Bjarni Hafþór Helgason hefur samið nokkur lög við ljóð Ragnars Inga Aðalsteinssonar, þar á meðal eru lögin Dalurinn minn, Jörð, Ástir og Jarðrím. Síðasta lag þáttarins er Pípan (Ástarljóð) sem hljómsveitin 7und flytur en ljóðið er eftir Ragnar Inga Aðalsteinsson. Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna kom í þáttinn í dag og við skoðuðum með honum nýtilkomnar leiðir sem eru í boði í íbúðarkaupum þar sem til dæmis byggingafyrirtæki, verktakar eða fjármálaþjónustur bjóða fólki upp á að leggja t.d. einungis fram 10% af kaupverði, seljandinn, eða annar aðili, leggja til allt að 20% og svo eru þá 70% húsnæðislán. Neytendasamtökin segja að þessir samningar séu varhugaverðir og óljósir, þar sem ekki sé búið að kanna frá öllum hliðum lögmæti þeirra og hver raunveruleg staða kaupend sé. Breki fór yfir þessi mál hjá okkur í dag.
Við héldum svo áfram að grúska í safni Ríkisútvarpsins með Helgu Láru Þorsteinsdóttur safnstjóra og í dag kom hún með frásögn Sigurðar Helgasonar, tónskálds frá Blaine Washington, sem var tekin var upp árið 1947 þegar hann var nýkomin aftur til Reykjavíkur eftir 57 ára dvöl í vesturheimi, en hann fór frá Íslandi 1890. Stórmerkileg upptaka og frásögn þar sem hann til dæmis talar um framfarir og breytingar sem hafa orðið í Reykjavík og margt fleira.
Lesandi vikunnar í þetta sinn var Auður Þórhallsdóttir barnabókahöfundur. En hún er einmitt nýbúin að gefa út fjórðu bókina um Miðbæjarrottuna. Við spurðum hana aðeins út í hana og svo sagði hún okkur auðvitað frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Auður talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Einsamræður e. Birtu Ósmann
Snyrtistofan e. Mario Bellatin
Þessir djöfulsins karlar e. Andrev Walden
Móðurást- sólmánuður e. Kristínu Ómarsdóttur
En hvað það var skrýtið e. Pál. J Árdal
Alkemistinn e. Paulo Coelho
Minningarbók e. Vigdísi Grímsdóttur
Tónlist í þættinum í dag:
Skítaveður / Bogomil Font og Greiningadeildin (Bragi Valdimar Skúlason)
Pínu sein / GDRN og Tómas R. Einarsson (GDRN og Tómas R. Einarsson)
Skín við sólu Skagafjörður / Liljukórinn (Sigurður Helgason, texti Matthías Jochumsson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Norðaustan hvassviðri eða stormur gengur yfir landið í dag. Víða gæti þurft að loka vegum með stuttum fyrirvara. Allar leiðir til og frá höfuðborgarsvæðinu eru meðal þeirra sem eru á óvissustigi.
Bandaríkjaforseti segist hafa átt í gagnlegum viðræðum við Írana um lok stríðsátaka í Mið-Austurlöndum.
Yfirmaður Norðurherstjórnar Bandaríkjanna telur þörf á aukinni viðveru á Grænlandi. Bandaríkjamenn vilja hernaðaruppbyggingu á að minnsta kosti þremur stöðum.
Atvinnuvegaráðherra segir framlengingu búvörusamninga tryggja stöðugleika - umfangsmikil vinna sé fram undan við endurskoðun á stuðningskerfi við bændur.
Flugstjóri og aðstoðarflugmaður létust í árekstri flugvélar Air Canada og slökkviliðsbíls á Laguardia-flugvelli í New York í nótt. Sjötíu og sex voru um borð í vélinni sem var að koma frá Montreal.
Leiðtogar jafnaðarmanna og Moderaterne brugðust illa við í kappræðum danska ríkisútvarpsins í gærkvöld þegar þeir voru spurðir hvern þeir styddu sem næsta forsætisráðherra. Kosið verður í Danmörku á morgun.
Júlía Kristín Jóhannesdóttir setti Íslandsmet í sextíu metra grindarhlaupi á heimsmeistaramótinu í frjálsíþróttum um helgina, en getur gert enn betur, að mati sérfræðings.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Í dag beinum við sjónum okkar að atvinnuleysi hér á landi sem hefur verið nokkuð til umfjöllunar síðustu vikur og mánuði - enda ekki verið meira frá því í faraldrinum - og ef hann er undanskilinn hefur það ekki mælst meira frá 2013. Rætt er við Arnald Sölva Kristjánsson, sérfræðing í vinnumarkaðshagfræði, Ingólf Bender, aðalhagfræðing Samtaka iðnaðarins og Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.
Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.
„Lífið er nógu þungt og því gott að hlæja vel,“ sagði ein karmelsystra árið 1957 í útvarpsviðtali. Karmelreglan er ein fárra höfuðreglna kaþólskrar trúar sem finnst hér á landi í dag. Á Karmelfjalli forðum hófst búseta einsetumanna sem bjuggu hver í sínum litla helli en komu daglega saman til bæna. Árið 1209 hafði hópurinn komið sér saman um að lifa samkvæmt skipulagðri reglu sem fékk heitið Karmel eftir fjallinu og eru fylgjendur hennar gjarnan kallaðir karmelítar.
Í þættinum er skoðuð saga reglunnar og einsetuhefðin, Maríudýrkun og rík andleg bókmenntahefð sem hefur heillað marga utan veggja klaustranna. Við heyrum gömul og ný viðtöl við systur í Karmelklaustrinu í Hafnarfirði. „Þessar konur sem ævilangt hafa sagt skilið við ættland sitt og aðstandendur og flust til þessa fjarlæga eylands þar sem þær munu dvelja til hinstu stundar inniluktar gráum múrveggjum agaðar við sið löngu liðinna alda og fórna öllu því sem við hinir köllum lífshamingju fyrir trú sína,“ eins og Björn Th. Björnsson orðaði það í þætti sínum fyrir tæpum 70 árum. Teresa af Avíla kemur aftur við sögu í þessum þætti, Jóhannes af Krossi, Edith Stein, Teresa af Lisieux, Íslandsheimsókn Jóhannesar Páls páfa II, vefsíða karmelsystranna og ört vaxandi söfnuður kaþólskra í Asíu og Afríku.
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Du wolltest mich nicht deinen Mund küssen lassen, aría úr óperunni Salome eftir Richard Strauss. Dunja Vejzovic, messósópran syngur, Sinfóníuhljómsveit króaska útvarpsins leikur undir stjórn Niksa Bareza. Plata: Dunja Vejzovic in Zagreb (2002).
Hornkonsert nr. 2 (1942) eftir Richard Strauss.
Verkið er í þrem þáttum:
Allegro
Andante
Allegro molto
Stefán Jón Bernharðsson leikur einleik á horn með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórnandi er Bernharður Wilkinsson. (Stúdíóupptaka - Hljóðritað í Háskólabíói 16.10.2009).
Þáttur IV-V úr verkinu Spíral (1992) eftir Hauk Tómasson. Tónlistarhópurinn Caput ensemble leikur. Plata: Portrait 1994
II. þáttur, Tempo di minuetto úr Sónötu nr. 8 í G dúr op. 30 nr. 3 eftir Ludwig van Beethoven. Isabelle Faust leikur á fiðlu, Alexander Melnikov leikur á píanó. Plata: Complete sonatas for piano and violin (2009).
Næturljóð (Noktrúrna) nr. 15 í d-moll, H. 59 Söngur án orða eftir John Field. Alice Sara Ott leikur á píanó. Plata: John Field : Complete Nocturnes (2025).
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Útlendingurinn er líklega þekktasta verk fransk-alsírska nóbelshöfundarins Albert Camus og hefur í gegnum tíðina verið mikið teygð, túlkuð og kennd. Í grunninn er þetta einföld saga en um leið gríðarlega flókin og margir hafa gert atlögu að því að túlka hvað vakti fyrir Camus með henni. Aðalsöguhetjan sögunnar, sem skrifuð er í fyrstu persónu, er hinn ungi Meursault, sem fréttir af andláti móður sinnar í upphafi bókar. Lesendur fylgjast með líkvökunni og jarðarförinni og síðan hversdagslífi Meursault í Algeirsborg, kynnast nágrönnum hans og ástkonunni Marie. Hversdagsleikanum lýkur þó endanlega þegar Mersault er staddur á strönd um miðbik sögunnar þar sem hann gengur fram á ungan Araba sem liggur á ströndinni og endar á að drepa hann. Í síðari hluta verksins eru atburðir fyrri hlutans endursagðir og túlkaðir af vitnum og lögmönnum í yfirheyrslum og réttarhöldum og að lokum er dauðadómur kveðinn yfir Meursault. Allt þetta er enn í gegnum sjónvarhorn hans og er nokkuð ljóst að þessi undarlega, passíva persóna finnur ekki til eftirsjár. Hann finnur í raun ekki mikið og er holdgervingur hins absúrdíska ástands sem var Camus svo hugleikið. Inn í þetta fléttast líka flókin menningarátök milli nýlenduherranna Frakka og heimamanna, Arabanna í Alsír.
Viðmælendur: Ásdís Rósa Magnúsdóttir og Toby Wikström.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Myndlistarmaðurinn Loji Höskuldsson opnaði sýninguna Nágranna á dögunum í Kaupmannahöfn. Útsaumsverk Loga eru löngu orðin áhugafólki um myndlist hér á landi kunn en hann hefur á síðustu árum einnig haslað sér völl í Danmörku. Listamaðurinn segir aukna viðveru sína í konungsríkinu óneitanlega hafa haft áhrif á myndmál sitt en hann tvinnar hönnunarvörur saman við hversdagslega hluti neyslumenningarinnar í verkum sýningarinnar. Grétar Þór Sigurðsson hittir Loga í Köben í þætti dagsins.
Og í dag tekur til máls nýr pistlahöfundur, Haukur Þorgeirsson, en hann er málfræðingur og rannsóknarprófessor við Árnastofnun. Haukur mun á næstu vikum ferðast með okkur um forna ljóðlist og fara vítt og breitt um hugarheim miðalda. Í sínum fyrsta pistli segir Haukur okkur frá Ragnarsdrápu, elsta kvæðið sem varðveitt er í íslenskum handritum.
Og við ræðum við Gunnlaug Bjarnason um hönnun á bókverkum HKL og vörumerkið Laxness.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Orri Guðmundsson er tvítugur kvikmyndagerðarmaður í námi í Listaháskóla Íslands. Hann er að taka þátt í Sprettfisk, keppni á Stockfish hátíðinni, og framlagið hans er heimildarmynd um Guðmund Emil Jóhannsson. Myndin heitir Íslenskur Herkúles og veitir innsýn í hversdagsleika Gumma Emil. En hvernig er að gera mynd um manneskju sem hefur nú þegar myndað lífið sitt og birt það á netinu?
Svo flytjum við samtal við Björn Þór Vilhjálmsson, kvikmynda- og bókmenntafræðing, um Óskarsverðlaunamyndina One Battle After Another.
Fréttir
Fréttir
Hættustigi hefur verið lýst yfir vegna snjóflóðahættu á Seyðisfirði. Illviðri sem gengur yfir landið leikur ökumenn grátt víða um land. Hellisheiði, Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði hefur verið lokað og fjöldi vega er á óvissustigi.
Í byrjun maí geta sænskir bílstjórar vænst þess að bensínlítrinn lækki um 13 krónur íslenskar og dísillinn um fimm. Stjórnvöld ætla að lækka álögur til að bregðast við áhrifum stríðsins í Mið-Austurlöndum.
Átta fengu afhenta lykla að nýjum heimilum í íbúðakjarna fyrir fatlað fólk á Sólvallagötu í dag. Séríbúðir eiga að tryggja að fatlaðir njóti einkalífs til jafns við aðra.
Jarðskjálftahrina hófst upp úr hádegi á Reykjaneshrygg. Hátt í hundrað jarðskjálftar hafa mælst, sá stærsti 4,1 að stærð.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Trump Bandaríkjaforseti fullyrti í morgun að samningaviðræður stæðu yfir við ráðamenn í Íran, hann hefði af þeim sökum frestað frekari árásum á mikilvæga orkuinnviði í fimm daga- ef samningaviðræðurnar skiluðu ekki frekari árangri myndu Bandaríkin bara taka upp þráðinn á nýjan leik. Ráðamenn í Íran komu af fjöllum og könnuðust ekki við neinar viðræður.
Sveitarfélögin hafa tekið við stórum og miklum verkefnum frá ríkinu og það krefst þess að þau hafi burði til að standa undir þeim og veita þjónustuna. Það hefur aukið þrýsing á sameiningu þeirra, segir prófessor í stjórnmálafræði en bendir á að við bjuggum í miklu miðstýrðara samfélagi áður en tilfærslan varð.
Nokkur vel valin lög
Nokkur vel valin lög
Lagalistinn:
Vilhjálmur Vilhjálmsson, Elly Vilhjálms - Fátt er svo með öllu illt.
Kammersveit Reykjavíkur, Þorkell Jóelsson, Jósef Ognibene, Emil Friðfinnsson, Stefán Jón Bernharðsson Wilkinson - Sinfonia di caccia í G-dúr fyrir 4 horn, strengi, pákur og fylgirödd : Allegro.
Tommy Dorsey and his Orchestra, Sinatra, Frank - I'll never smile again (until I smile at you).
Marína Ósk - Við Tjörnina.
Jóna G. Kolbrúnardóttir, Ástríður Alda Sigurðardóttir - 03 Frühlingsglaube.

frá Veðurstofu Íslands
Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.
Í forgrunni í þættinum er strengjaleikur þar sem flytjendur eiga það sameiginlegt að leggja sitt af mörkum til að þenja út hljóðheim hljóðfæranna á sama tíma og þeir standa traustum fótum í hefðinni.
Tónlistin sem hljómar í þættinum er eftir Hildi Guðnadóttur, barokktónskáldið Johann Paul von Westhoff, Keir GoGwilt og Johnny Chang, Judith Hamann og Amy Cimini.
Umsjón hefur Berglind María Tómasdóttir
Verk sem hljóma í þættinum:
Hildur Guðnadóttir, platan Where To From:
Stimm
Erindi
Steps Out Loud
Make Space
Over There
I Hold Close
Melody of Not Knowing
All Along
Fólk fær andlit
Johann Paul von Westhoff - Partíta í d-moll í flutningi Keir GoGwilt, fiðluleikara, af plötunni re: d:
Allemande
Courante
Sarabande
Gigue
Keir Gogwilt og Johnny Chang, fiðluleikarar af plötunni hope lies fallow:
Hope to adjust
Cantigas: Hildegard
Beatific creatures
Judth Hamann, sellóleikari af plötunni Music for Cello and Humming:
Humming Suite, 1.kafli
Amy Cimini, víóluleikari af plötunni See You When I Get There:
Anyone’s Song
Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.
„Lífið er nógu þungt og því gott að hlæja vel,“ sagði ein karmelsystra árið 1957 í útvarpsviðtali. Karmelreglan er ein fárra höfuðreglna kaþólskrar trúar sem finnst hér á landi í dag. Á Karmelfjalli forðum hófst búseta einsetumanna sem bjuggu hver í sínum litla helli en komu daglega saman til bæna. Árið 1209 hafði hópurinn komið sér saman um að lifa samkvæmt skipulagðri reglu sem fékk heitið Karmel eftir fjallinu og eru fylgjendur hennar gjarnan kallaðir karmelítar.
Í þættinum er skoðuð saga reglunnar og einsetuhefðin, Maríudýrkun og rík andleg bókmenntahefð sem hefur heillað marga utan veggja klaustranna. Við heyrum gömul og ný viðtöl við systur í Karmelklaustrinu í Hafnarfirði. „Þessar konur sem ævilangt hafa sagt skilið við ættland sitt og aðstandendur og flust til þessa fjarlæga eylands þar sem þær munu dvelja til hinstu stundar inniluktar gráum múrveggjum agaðar við sið löngu liðinna alda og fórna öllu því sem við hinir köllum lífshamingju fyrir trú sína,“ eins og Björn Th. Björnsson orðaði það í þætti sínum fyrir tæpum 70 árum. Teresa af Avíla kemur aftur við sögu í þessum þætti, Jóhannes af Krossi, Edith Stein, Teresa af Lisieux, Íslandsheimsókn Jóhannesar Páls páfa II, vefsíða karmelsystranna og ört vaxandi söfnuður kaþólskra í Asíu og Afríku.
Skáldsaga Halldórs Laxness um hinn 18 ára gamla Stein Elliða kom út árið 1927 þegar Halldór var sjálfur 25 ára gamall.
Þessi saga um leit ungs manns að eigin lífsskoðunum þótti marka tímamót í íslenskri bókmenntasögu.
Valdimar Örn Flygenring las söguna fyrir útvarpið árið 1991.
Í 5., 6. og 34. lestri les Bára Lyngdal Magnúsdóttir ásamt Valdimar Erni og í 7. og 8. lestri les Guðrún S. Gísladóttir ásamt Valdimar.

frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna kom í þáttinn í dag og við skoðuðum með honum nýtilkomnar leiðir sem eru í boði í íbúðarkaupum þar sem til dæmis byggingafyrirtæki, verktakar eða fjármálaþjónustur bjóða fólki upp á að leggja t.d. einungis fram 10% af kaupverði, seljandinn, eða annar aðili, leggja til allt að 20% og svo eru þá 70% húsnæðislán. Neytendasamtökin segja að þessir samningar séu varhugaverðir og óljósir, þar sem ekki sé búið að kanna frá öllum hliðum lögmæti þeirra og hver raunveruleg staða kaupend sé. Breki fór yfir þessi mál hjá okkur í dag.
Við héldum svo áfram að grúska í safni Ríkisútvarpsins með Helgu Láru Þorsteinsdóttur safnstjóra og í dag kom hún með frásögn Sigurðar Helgasonar, tónskálds frá Blaine Washington, sem var tekin var upp árið 1947 þegar hann var nýkomin aftur til Reykjavíkur eftir 57 ára dvöl í vesturheimi, en hann fór frá Íslandi 1890. Stórmerkileg upptaka og frásögn þar sem hann til dæmis talar um framfarir og breytingar sem hafa orðið í Reykjavík og margt fleira.
Lesandi vikunnar í þetta sinn var Auður Þórhallsdóttir barnabókahöfundur. En hún er einmitt nýbúin að gefa út fjórðu bókina um Miðbæjarrottuna. Við spurðum hana aðeins út í hana og svo sagði hún okkur auðvitað frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Auður talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Einsamræður e. Birtu Ósmann
Snyrtistofan e. Mario Bellatin
Þessir djöfulsins karlar e. Andrev Walden
Móðurást- sólmánuður e. Kristínu Ómarsdóttur
En hvað það var skrýtið e. Pál. J Árdal
Alkemistinn e. Paulo Coelho
Minningarbók e. Vigdísi Grímsdóttur
Tónlist í þættinum í dag:
Skítaveður / Bogomil Font og Greiningadeildin (Bragi Valdimar Skúlason)
Pínu sein / GDRN og Tómas R. Einarsson (GDRN og Tómas R. Einarsson)
Skín við sólu Skagafjörður / Liljukórinn (Sigurður Helgason, texti Matthías Jochumsson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Orri Guðmundsson er tvítugur kvikmyndagerðarmaður í námi í Listaháskóla Íslands. Hann er að taka þátt í Sprettfisk, keppni á Stockfish hátíðinni, og framlagið hans er heimildarmynd um Guðmund Emil Jóhannsson. Myndin heitir Íslenskur Herkúles og veitir innsýn í hversdagsleika Gumma Emil. En hvernig er að gera mynd um manneskju sem hefur nú þegar myndað lífið sitt og birt það á netinu?
Svo flytjum við samtal við Björn Þór Vilhjálmsson, kvikmynda- og bókmenntafræðing, um Óskarsverðlaunamyndina One Battle After Another.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Engin próf - engar einkunnir. Þessi orð eru áberandi á vef Lýðskólans á Flateyri sem snýst í grunninn um reynslu og upplifun í staðinn fyrir hefðbundið bóklegt nám. Lýðskólinn býður upp á verklegt nám þar sem nemendur læra með því að gera. Þetta er eitthvað sem við vildum kynna okkur betur og Margrét Gauja, skólastjóri Lýðskólans á Flateyri, mætti á svæðið og fræddi okkur.
Fáir eru með puttann betur staðsettan á púlsinum en okkar maður Guðmundur Jóhannsson, þegar kemur að nýjustu tækni. Hann kom til okkar, eldhress að vanda, og fór yfir það allra nýjasta sem er í gangi og að þessu sinni voru það snúrur.
Indriði Þorláksson, fyrrverandi ríkisskattstjóri, birti á dögunum grein á vef Heimildarinnar um sölu nýsköpunarfyrirtækisins Kerecis til hins danska Coloplast. Indriði segir í greininni margt benda til þess að með viðskiptunum hafi Kerecis raðað sér í hóp þeirra fyrirtækja í erlendri eigu hér á landi sem sniðganga íslensk skattalög og skila hér engum tekjum nema launum starfsmanna og sköttum af þeim. Frumkvöðullinn Hjálmar Gíslason svaraði grein Indriða sem hann sagði gera lítið úr árangri öflugs nýsköpunarstarfs. Hjálmar kom til okkar í Morgunútvarpið.
Eitt virkasta samfélagið á Facebook er hópurinn Þrifatips, sem telur rúmlega 30 þúsund snyrtipinna. Þar ráða ríkjum systurnar Guðbjörg Erna Sigurpálsdóttir og Sigrún Sigurpálsdóttir frá Akureyri og í tilefni af nýrri viku fannst Morgunútvarpinu kjörið að hóa í systurnar og fá bestu þrifaráðin sem eru í boði í hópnum. Þær voru því í beinni með okkur frá hljóðveri RÚV á Akureyri.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Eitt og annað gekk á, Ragnhiltur og Vigdís úr hljómsveitinni FLOTT komu í heimsókn og sögðu frá þáttunum Tuttugu og eitthvað, einnig var farið í bestu íslensku og erlendu plötur ársins 1996 að mati sérfræðinga.
Lagalisti fólksins:
KRUMMI – Smile till it ends
COLDPLAY – Adventure Of A Lifetime
SUBLIME – What I Got
DJ SHADOW – Midnight in a Perfect World
BECK – Jack-ass
FUGEES – Fu-gee-la
EVERYTHING BUT THE GIRL – Before Today
MANIC STREET PREACHERS – A Design for Life
AMOR VINCIT OMNIA – Ber
U2 – Songs Of The Future
BUBBI MORTHENS – Hún
RICHARD ASHCROFT – A Song For The Lovers
TALKING HEADS – Once In A Lifetime
BOTNLEÐJA – Hausverkun
KOLRASSA KRÓKRÍÐANDI – Hellismannakvæði
EMILÍANA TORRINI – The boy who giggled so sweet
MAGNÚS EIRÍKSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON TÓNLISTARM. – Óbyggðirnar kalla
PÁLL ÓSKAR HJÁLMTÝSSON – Jafnvel þó við þekkjumst ekki neitt
STEFÁN HILMARSSON – Eins og er
PÁLL RÓSINKRANZ – Glory Glory
LORDE – Royals
KINGFISHR – The Blade
THE CRIBS – Never The Same
OF MONSTERS & MEN – Ordinary Creature
BRYAN FERRY – Don't stop the dance
FLOTT – Mér Er Drull (Flóvent X-Mix)
FLOTT – Tuttugu og eitthvað
BRIMBROT – Kling Klang
ELVIS PRESLEY – Blue Suede Shoes
BRUNO MARS – I Just Might
ALANIS MORISSETTE – Ironic
KÓR KEFLAVÍKURKIRKJU, HERBERT GUÐMUNDSSON TÓNLISTARM. – Can't Walk Away
Í SVÖRTUM FÖTUM – Meðan Ég Sef
PETER GABRIEL – Big Time
SOMBR – Homewrecker
BRÍET – Gleymmérei
ROD STEWART – Angel
QUEENS OF THE STONE AGE – I never came

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Norðaustan hvassviðri eða stormur gengur yfir landið í dag. Víða gæti þurft að loka vegum með stuttum fyrirvara. Allar leiðir til og frá höfuðborgarsvæðinu eru meðal þeirra sem eru á óvissustigi.
Bandaríkjaforseti segist hafa átt í gagnlegum viðræðum við Írana um lok stríðsátaka í Mið-Austurlöndum.
Yfirmaður Norðurherstjórnar Bandaríkjanna telur þörf á aukinni viðveru á Grænlandi. Bandaríkjamenn vilja hernaðaruppbyggingu á að minnsta kosti þremur stöðum.
Atvinnuvegaráðherra segir framlengingu búvörusamninga tryggja stöðugleika - umfangsmikil vinna sé fram undan við endurskoðun á stuðningskerfi við bændur.
Flugstjóri og aðstoðarflugmaður létust í árekstri flugvélar Air Canada og slökkviliðsbíls á Laguardia-flugvelli í New York í nótt. Sjötíu og sex voru um borð í vélinni sem var að koma frá Montreal.
Leiðtogar jafnaðarmanna og Moderaterne brugðust illa við í kappræðum danska ríkisútvarpsins í gærkvöld þegar þeir voru spurðir hvern þeir styddu sem næsta forsætisráðherra. Kosið verður í Danmörku á morgun.
Júlía Kristín Jóhannesdóttir setti Íslandsmet í sextíu metra grindarhlaupi á heimsmeistaramótinu í frjálsíþróttum um helgina, en getur gert enn betur, að mati sérfræðings.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Kalt úti, heitt inni í Popplandi dagsins þar sem Doddi fylgdist með veðri og vindum í gulri veður viðvörun.
Þægileg tónlist og laufléttar sogur í storminum.
Lagalisti dagsins
Hljómsveit Þorsteins Guðmundssonar - Snjómokstur.
KANSAS - Dust In The Wind.
Dean, Olivia - Baby Steps.
Williams, Hayley, Byrne, David, Williams, Hayley, Byrne, David - What Is The Reason For It.
Suede - Beautiful ones.
M.I.A. - Paper Planes.
MUGISON - Haglél.
Elín Hall - Stanslaust stuð.
CHRISTINE AND THE QUEENS - Tilted.
THE POLICE - Don't Stand So Close To Me.
Emilíana Torrini - Tvær stjörnur.
200.000 NAGLBÍTAR - Láttu Mig Vera.
Muse - Be With You.
Tómas R. Einarsson, Sigurður Guðmundsson og Memfismafían - Okkar menn í Havana.
Kór Keflavíkurkirkju, Herbert Guðmundsson Tónlistarm. - My Love.
U2 - Songs Of The Future.
Perrie - Woman In Love.
Superserious - Island full of deadbeats (..OR SOMETHING).
Valdimar - Tenerife.
Karl Örvarsson - 1700 Vindstig.
Friðrik Dór Jónsson - Þessi kjóll.
BOX - Snjókoma (LP) (80).
GENESIS - Invisible Touch.
Stormsveitin - Stormur.
Joy, Vance - Fascination in the Dark.
THOMPSON TWINS - Hold Me Now.
Lykke Li - Lucky Again.
Kór Keflavíkurkirkju, Herbert Guðmundsson Tónlistarm. - Magic Feeling.
Warmland - All for All.
ELBOW - Magnificent (she says).
Emmsjé Gauti - Taka mig í gegn.
Jade - Church.
Sigur Rós - Stormur.
Greiningardeildin, Bogomil Font - Skítaveður.
Warren, Alex - FEVER DREAM.
DEPECHE MODE - I Feel You.
Ragnheiður Gröndal - Má ég?.
MADONNA - La Isla Bonita.
Prodigy - Out of space.
Withers, Bill - Ain't no sunshine.
Beloved, The - Sweet harmony.
hOFFMAN - Fallbeygðu mig (radio edit).
Eilish, Billie - Birds of a Feather.
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Allt útlit er fyrir æsispennandi kosningar í Danmörku á morgun. Moeraterne, miðjuflokkur Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra, verður líklega í lykilstöðu sagði í fréttum RÚV í gær. Ljóst virðist vera að samsteypustjórn Mette Frederiksen forsætiráðherra á litla möguleika á að halda völdum. Hallgrímur Indriðason fréttamaður er staddur í Kaupmannahöfn til að fylgjast með kosningunum við heyrðum í honum.
Reglulega berast fréttir af vasaþjófnuðum og hefur fólk sem lendir í því oft tapað háum fjárhæðum þegar kortin þeirra eru notuð. Komið hefur fram í fréttum að fylgst sé með þegar viðkomandi stimplar inn leyninúmerið og síðan er símanum eða veskinu stolið. Þá rifjum við upp hvað við þurfum að hafa í huga enda er góð vísa aldrei of oft kveðin. Brynja María Ólafsdóttir, sérfræðingur í regluvörslu hjá Landsbankanum fór yfir það helsta sem ber að varast með okkur.
ESB Vaktin er óháð, gagnadrifið upplýsingaverkefni sem fylgist með umræðunni um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður Íslands við Evrópusambandið þann 29. ágúst í sumar Fullyrðingar úr opinberri umræðu eru skráðar í gagnagrunn. Spjallmenni skannar fullyrðingarnar og ber þær saman við staðreyndagögn. Umsjón með verkefninu hefur Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson. Hann sagði okkur betur frá þessu verkefni sínu.
Og við ætlum að fylgjast með veðri og færð í dag en gular veðurviðvaranir eru um allt landið. Sverrir Unnsteinsson á vaktstöð Vegagerðarinnar á Ísafirði fór yfir stöðuna með okkur.
Ásta Dís Óladóttir prófessor í Viðskiptafræði var á dögunum valin Háskólakona ársins 2025 fyrir framúrskarandi störf á sviði fræða og atvinnulífs. Ásta Dís hefur meðal annars leitt uppbyggingu MBA-náms, komið á öflugu samstarfi við fyrirtæki og skapað ný tækifæri fyrir nemendur. Þá hefur hún einnig verið áberandi í rannsóknum og unnið að því að efla jafnrétti í atvinnulífinu. Ásta Dís kom til okkar í Síðdegisútvarpið.
Plötuútgáfan Geimsteinn var stofnuð 1976 og er því fimmtug um þessar mundir. Það gerir hana að elstu starfandi plötuútgáfa á Íslandi. Í tilefni afmælisins ætla synir Rúnars Júlíussonar og Maríu Baldursdóttur, stofnenda Geimsteins, að halda röð tónleika að Skólavegi 12 þar sem útgáfan hefur alla tíð verið til húsa. Tónleikarnir verða tileinkaðir þeim sem hafa komið við sögu á þeirri hálfu öld sem Geimsteinn hefur starfað og kennir þar ýmissa grasa. Fyrstu tónleikarnir verða tileinkaðir Gylfa Ægis og ætlar Sóli Hólm að aðstoða þá bræður, Baldur og Júlíus, við að minnast Gylfa. Baldur Guðmundsson var á línunni úr Bítlabænum.
Fréttir
Fréttir
Hættustigi hefur verið lýst yfir vegna snjóflóðahættu á Seyðisfirði. Illviðri sem gengur yfir landið leikur ökumenn grátt víða um land. Hellisheiði, Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði hefur verið lokað og fjöldi vega er á óvissustigi.
Í byrjun maí geta sænskir bílstjórar vænst þess að bensínlítrinn lækki um 13 krónur íslenskar og dísillinn um fimm. Stjórnvöld ætla að lækka álögur til að bregðast við áhrifum stríðsins í Mið-Austurlöndum.
Átta fengu afhenta lykla að nýjum heimilum í íbúðakjarna fyrir fatlað fólk á Sólvallagötu í dag. Séríbúðir eiga að tryggja að fatlaðir njóti einkalífs til jafns við aðra.
Jarðskjálftahrina hófst upp úr hádegi á Reykjaneshrygg. Hátt í hundrað jarðskjálftar hafa mælst, sá stærsti 4,1 að stærð.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Trump Bandaríkjaforseti fullyrti í morgun að samningaviðræður stæðu yfir við ráðamenn í Íran, hann hefði af þeim sökum frestað frekari árásum á mikilvæga orkuinnviði í fimm daga- ef samningaviðræðurnar skiluðu ekki frekari árangri myndu Bandaríkin bara taka upp þráðinn á nýjan leik. Ráðamenn í Íran komu af fjöllum og könnuðust ekki við neinar viðræður.
Sveitarfélögin hafa tekið við stórum og miklum verkefnum frá ríkinu og það krefst þess að þau hafi burði til að standa undir þeim og veita þjónustuna. Það hefur aukið þrýsing á sameiningu þeirra, segir prófessor í stjórnmálafræði en bendir á að við bjuggum í miklu miðstýrðara samfélagi áður en tilfærslan varð.

Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.
Lagalistinn
Valdimar - Tenerife.
Nirvana - Polly.
Zach Bryan - Plastic Cigarette.
STAIND - Outside.
Krummi - Smile till it ends.
Brimbrot - Kling Klang.
ROLLING STONES - 2000 Light Years From Home.
Black Keys, The - You Got To Lose.
Jet - Are you gonna by my girl.
Black Crowes, The - Profane Prophecy.
Kingfishr - The Blade.
Beabadoobee, The Marias - All I Did Was Dream Of You.
Dido - Thank you.
Árný Margrét - Hakk og spaghettí.
Talking Heads - Heaven.
Death Cab for Cutie - Riptides.
U2 - Songs Of The Future.
Louis Armstrong - We Have All The Time In The World.
Vance Joy - Fascination in the Dark.
Future Utopia - Spiritual Machines
Warmland - All for All.
Alexis Taylor - I Can Feel Your Love
Metronomy - The Look.
sombr - Homewrecker.
Arlo Parks - Get Go.
Olivia Dean- Nice To Each Other.
Guðmundur Pétursson - No Reality.
Phantogram - Black out days.
Harry Styles - Taste Back
JJerome87, Alt-J - Brush Me Like A Horse.
Fcukers - Beatback.
Birnir - Alveg farinn
Robyn - Talk To Me.
Wet Leg - mangetout (The Dare remix).
Groove Armada - Love's Theme.
Bríet - Gleymmérei.
Mumford and Sons, Chris Stapleton - Here.
Edgehill - Doubletake.
Joyce Manor - All My Friends Are So Depressed
Sinead O'Connor - The Emperors New Clothes
Birgitte Calls Me Baby - Slumber Party
Foo Fighters - Your Favorite Toy
Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Plata vikunnar að þessu sinni er Herbert Guðmundsson ásamt Kór Keflavíkurkirkju. Við heyrum hvernig klassísk lög Herberts hljóma í nýjum kórútsetningum og fáum auk þess að heyra sögulegar upptökur með hljómsveitinni Eik frá 1975 sem Herbert og Safnadeild RÚV hefur endurvakið. Herbert mætir til okkar og ræðir þessa einstöku samsetningu á nýju og gömlu efni.
Gjallarhorn fyrir nýjar raddir, nýstárlegar hugmyndir, óhljóð og tónlist sem þú hefur aldrei heyrt. Í Ólátagarði á íslensk grasrótartónlist griðarstað.
Umsjón: Einar Karl Pétursson og Björk Magnúsdóttir.
Á Upprásinni 10. mars komu fram þau Lindy Lin, Splitting Tongues og Jelena Ciric. Ólátabelgirnir voru að vana á svæðinu og tóku púlsinn á tónlistarfólkinu þegar það steig af sviðinu.
Lagalisti:
Andrés Þór Þorvarðarson - Ólátagarður
Jelena Ciric - Inside Weather
Lindy Lin - Stone Flower (upptaka frá Upprásinni, 10.03.2026)
Lindy Lin - Improv 1 Fluting Noise (brot) (upptaka frá Upprásinni, 10.03.2026)
Lindy Lin - I’ll Weave My Own Socks (upptaka frá Upprásinni, 10.03.2026)
Splitting Tongues - War For Your Own Profit (upptaka frá Upprásinni, 10.03.2026)
Splitting Tongues - ACAB (upptaka frá Upprásinni, 10.03.2026)
Jelena Ciric - Fig Tree (upptaka frá Upprásinni, 10.03.2026)
Jelena Ciric - Rain (upptaka frá Upprásinni, 10.03.2026)
Lindy Lin - It Was Once In My Pocket (upptaka frá Upprásinni, 10.03.2026)