22:03
Rokkland
Eyrarrokk 2025 - Oasis endurkoman – 100 club – Gegnum holt og hæðir

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í áratugi.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Í Rokklandi vikunnar heyrum við söguna á bakvið eitt af lögunum sem verða flutt á 30 ára afmæli Rokklands í Hofi á Akureyri 1. nóvember – þar sem SinfoníaNord, Todmobile bandið og fjöldi frábærra söngvara flytja haug af frábærum lögum.

Við heyrum líka um endurkomu Oasis en Rokkland var á lokatónleikum Oasis í Bretlandi 28. september sl. á Wembley Stadium.

Rokkland kom líka við í einum sögufrægasta rokkklúbbi breta í Oasis ferðinni – 100 Club þar sem Oasis spilaði einu sinni – og Kinks og Who, Rolling Stones, Jimi Hendrix, Muse, Cure ofl. 320 manna staður við Oxford Street númer 100. Sama fjölskyldan hefir rekið staðinn í næstum 70 ár.

Eyrarrokk er rokkhátíð eins og nafnið gefur til kynna sem fór fram í fimmta sinn á Akyreyri á dögunum á Eyrinni. Rögnvaldur gáfaði er einn af skipuleggjendum og Rokkland heimsótti hann og Bigg Maus sem er einn af þeim sem spilaði á hátíðinni í ár.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 57 mín.
e
Endurflutt.
,