18:00
Kvöldfréttir útvarps
Kafarar í Haukadalsá, hraðbankarán og vopnahlé mögulegt á Gaza

Fréttir

Fréttir

Þrír sérþjálfaðir norskir kafarar hafa í dag leitað að eldislaxi í Haukadalsá á Vesturlandi. Þeir höfðu ekki leitað lengi þegar þeir sáu fyrstu grunsamlegu laxana.

Enginn er í haldi vegna hraðbankaránsins í Mosfellsbæ í nótt. Lögregla gerði húsleitir á að minnsta kosti tveimur stöðum í dag.

Hófstilltar vonir eru um að Ísraelsstjórn samþykki 60 daga vopnahlé á Gaza. Hamas-samtökin samþykkja tillögur, sem kveða á um frelsun allra gísla í tveimur skrefum.

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar hvetur foreldra leikskólabarna til þess að eiga samtal um kynfræðslu við börn sín.

Regluverk á Íslandi um hatursglæpi er of veikt segja samtökin 78. Frá 2018 hefur fjöldi hugsanlegra hatursglæpa vegna kynhneigðar margfaldast.

Er aðgengilegt til 19. ágúst 2026.
Lengd: 10 mín.
,