14:03
Straumar
Brengluð hljóð, teygð og toguð

Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson

Guðmundur Vignir Karlsson byrjaði snemma að fást við raftónlist og hefur verið iðinn við kolann upp frá því, gefið út allmargar plötur sem Kippi Kanínus, og líka unnið tónlist fyrir dansverk, innsetningar og leikhús samhliða myndlistinni og útfarasöng. Honum finnst mikilvægt að andæfa hverfulleikanum með því að gefa út tónlist á föstu formi.

Lagalisti

ÚÚ 4 - Súrheysturn í sunnan fimm

Huggun - Harmlag

Happens Secretly - Yfirskin

Temperaments - Schpick

Drop as mit - Drop as mit

Idiopoesi - Radiant intensity

Idiopoesi - Pendul

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 50 mín.
,