Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.
Lagalisti:
Los Amigos, Valdez, Merceditas - Yambambó.
Veloso, Caetano - Cucurrucucu Paloma.
Massi, Souad - Raoui.
Kuban, Ali Hassan - Artasu Nartasu.
Aziz, Hassan Abdel, Ezzayakoum - Lau elreida.
New South Africa - Esouth Africa.
Ngema, Mbongeni - Ndlondlo bashise.
Khumalo, Sibongile - Mayihlome.
Johnston, Sipho, Jambo - World.
Kidjo, Angelique - Bahia.
Kabongo, Sabine, De Camargo, Kai Eckhard, Kidjo, Angelique, Sciascia, Esmeralda, Deva, Jaya, Fiszman, Nicolas, Sangare, Oumou, Chary, Ravi, Gurtu, Trilok - Rajasthan.

Bæn og hugleiðing að morgni dags.

Umsjón: Kristján Kristjánsson.

Veðurstofa Íslands.
Undanfarin ár hefur ný tegund látið á sér kræla í Garðabæ: froskdýr. Í Innrás froskanna og fleiri kvikinda rekur Arnhildur Hálfdánardóttir slóð froskdýranna út og suður í tíma og rúmi, en þó aðallega götu fyrir götu í hinu gamalgróna Ásahverfi. Undir niðri krauma stærri spurningar um heim sem er að breytast á áður óþekktum hraða og áhrif þess á lífríkið allt í kringum okkur.
Umsjón, dagskrárgerð og samsetning: Arnhildur Hálfdánardóttir
Sögumaður: Benedikt Sigurðsson
Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen
Forvitnilegir eggjaklasar þekja Breiðafjörðinn. Hvalfjörðurinn er að breytast í einhvers konar umferðarmiðstöð. Allt virðist með kyrrum kjörum á yfirborðinu en það er ekkert að marka - spurðu bara burstaorminn og bogkrabbann. Tegundirnar eru framandi, sumar ágengar og eru farnar að slá ýmis heimsmet.
Það er kominn tími til að fara í alvöru felt, finna vísindamenn í fjöru og taka stöðuna á rannsóknum á þessari hægfara hamfaraskriðu lífmassa sem er að hrista upp í lífríki Íslands.

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Gestir þáttarins voru þau Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins, Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, og Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra. Þau ræddu meðal annars aðgerðaráætlun gegn ofbeldi meðal barna, húsnæðismál og geðheilbrigðismál.
Umsjón: Alma Ómarsdóttir
Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Íslenskt lag eða tónverk.
Útvarpsfréttir.
Það er ekki boðlegt að fjölskyldur fatlaðs fólks á sambýlum í Reykjavík þurfi að sinna fólkinu sínu, segir sviðstjóri velferðarsviðs borgarinnar. Hún segist harma slík atvik og til skoðunar er hvað hafi farið úrskeiðis.
Bandaríkjaforseti er sagður hafa, á fundi með forsætisráðherra Bretlands, lagst gegn því að heimila Úkraínumönnum að nota langdrægar eldflaugar til að skjóta yfir landamærin til Rússlands.
Aðstæður til slökkvistarfs voru eins og best var á kosið þegar eldur kviknaði í rútu fullri af ferðamönnum skammt frá Vestfjarðagöngum í gær. Aðstoðarslökkviliðsstjórinn á Ísafirði segist ekki vilja hugsa þá hugsun til enda ef kviknað hefði í rútunni inni í göngunum.
Heilbrigðisráðherra segir að þjóðin verði að taka höndum saman gegn auknu ofbeldi. Verkefnið sé flókið og nái til alls samfélagsins.
Búist er við töluveðri ásókn í ferðir til Norður-Evrópu í nánustu framtíð, sér í lagi yfir hásumarið. Hitastig og loftgæði gegndu lykilhlutverki hjá meirihluta ferðamanna sem hingað kom í sumar, þegar kom að því að velja áfangastað.
Stærðarinnar ísjakar sjást nú skammt frá landi við Trékyllisvík á Ströndum. Heimamaður sigldi upp að einum þeirra í gær og áætlar að hann sé allt að 30 metrar á hæð.
Smalamennska gekk að óskum í Svarfaðardal í dag. Fjallskilastjóri segir að fé hafi ekki fennt þó að snjór sé niður í miðjar hlíðar.
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Eitt óhugnarlegasta kynferðisbrotamál síðari tíma er nú fyrir dómi í Frakklandi. Dominique Pelicot er þar á sakamannabekknum en hann hefur játað að hafa síðastliðinn áratuginn byrlað eiginkonu sinni til 40 ára og boðið fjölda manns að nauðga henni. Ofbeldtið tók hann upp á myndbönd og vistaði samviskusamlega í tölvunni sinni með nöfnum gerenda og dagsetningu verknaðar. 83 gerendur eru þarna skráðir, flestir menn sem bjuggu í sama þorpi og hjónin, nágrannar þeirra og fleiri. Flest velta líklega fyrir sér hvernig þetta geti gerst, það er að svo stór hópur í nærumhverfi konunnar taki þátt í svo skipulögðu ofbeldi. Við reynum að leita svara við því.
Svo hugum við að kappræðunum sem fóru fram fyrr í vikunni, rýnum aðeins í orðanotkunina. Hvaða orð notuðu Donald Trump og Kamala Harris oftast? Hvernir beittu þau röddinni? Þá heyrum við í vara-utanríkisráðherra Bandaríkjunum, Kurt Campbell, hvernig honum lítist á komandi kosningar.
Það eru tískubylgjur í ferðamennsku eins og mörgu öðru sem við tökum okkur fyrir hendur. Ein af þeim nýjustu kemur hins vegar ekki til af góðu. Það er það sem á ensku hefur verið kallað "coolcation" sem á íslensku gæti kallast kælifrí; að velja milt, eða jafnvel kalt loftslag á norðlægum slóðum, í staðinn fyrir að leita suður á bóginn í hita og sól. Þessi tískubylgja hefur verið nokkuð áberandi og var reyndar í fyrra valin ein af þeim markverðari í áhrifamiklu tímariti sem fjallar um ferðamennsku. Við skoðum svöl sumarfrí og framtíð þeirra í þættinum.

Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Sunneva Thomsen, en hún starfar við kvikmyndagerð auk þess að vera í listnámi. Hún ætlar að segja okkur frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sunneva talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Dune e. Frank Herbert
In the Dream House e. Carmen Maria Machado
Boulder e. Eva Baltasar
Ein til frásagnar e. Immaculee Ilibagiza
Jane Eyre e. Charlotte Bronte
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Í ágúst 2011 hélt Berglind María Tómasdóttir af stað í tónleikaferð um landið og spilaði í hjólhýsi, sem Rockriver Mary. Sú átti eftir að koma talsvert við sögu á næstu árum og í framhaldinu urðu til hljóðfærin hrokkur og lokkur og fullt af forvitnilegri tónlist. Umsjón: Árni Matthíasson.
Lagalisti:
I'm an Island - Home as in Heima
I'm an Island - Veröld fláa sýnir sig
Herberging - Ö
Ethereality - og brenna eins og fuglinn inn í eilífðina
Tónlist fyrir Lokk - Lokkur I
Lokkur Hljóðbréf - Spretta
Óútgefið - Tríó fyrir Lokk, langspil og proto-langspil

Ragnheiður Gyða Jónsdóttir veltir fyrir sér sögu manns og menningar og ræðir við fræðafólk um sitthvað forvitnilegt.
(Áður á dagskrá 2007)
Ragnheiður Gyða Jónsdóttir talar við Helga Ingólfsson sagnfræðing um Ólympíuleikana í Grikklandi til forna.
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness hafa nú verið afhent í fjórða skiptið og að þessu sinni var það Salman Rushdie sem tók á móti þeim við hátíðlega athöfn í Háskólabíó. Rushdie er stórstjarna meðal rithöfunda hins enskumælandi heims. Nýjasta bók hans kom út fyrr á þessu ári Knife eða Hnífur: Hugleiðingar í kjölfar morðtilraunar þar sem hann lýsir lífshættulegri hnífaárás sem hann varð fyrir árið 2022. Þetta er í senn sjálfsævisaga og hugleiðing um dauðann, listina og hamingjuna. Við ætlum að rýna í þessa bók með Guðmundi Andra Thorssyni og Margréti Tryggvadóttur.
Orðskjálfti heitir stórt norrænt ljóðaverkefni þar sem ungir ljóðaunnendur í Svíþjóð, Noregi, Danmörku og Íslandi velja það besta í ljóðagerð hvers lands og birta saman í úrvali. Sólin sem sefur og Hæ stóri eldfugl eru tvær nýjustu bækurnar, þriðja og fjórða bindið í seríu undir regnhlíf Orðskjálfta og taka þær fyrir árin 2022 og 23. Unnar Ingi Sæmundarson og Ása Þorsteinsdóttir sátu í sitthvorri nefndinni og segja okkur frá þessu viðamikla verkefni, að velja bestu ljóðin.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson
Fjallað um nokkra söngleiki sem settir hafa verið upp hér á landi.
Umsjón: Viðar Eggertsson.
(Áður á dagskrá 2007)
Fjallað er um söngleikinn Þið munið hann Jörund eftir Jónas Árnason með írskum, skoskum og enskum þjóðlögum. Flytjendur söngvana eru Þrjú á palli og ýmsir aðrir söngvarar og tónlistarhópar.
Flutt er viðtalsbrot við Jón Múla og Jónas Árnasyni og Svein Einarsson úr útvarpsþætti Lísu Pálsdóttur, Járnhausarnir.
Sögumaður og umsjón: Viðar Eggertsson.

Fréttir
Kvöldfréttir útvarps

Veðurstofa Íslands.

Dánarfregnir.
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Big Crazy Energy Band leikur lögin Seasons Wander, I Know Later, Boone Dog Café, Ear Trumpet, Out Of the Night og A Day In The Life. Norr 4 kvartettinn flytur lögin Grænn, Haldið í hrynið, Pow Wow, Kvartil, Ég skulda, Krami og Blástjarnan. Kvintett Herb Ellis leikur lögin Phil's Tune, Blues For Janet, Patti Cake, Soft Winds, Pap's Blues og Big Red's Boogie Woogie.

Áhrifamiklar konur sem mótuðu samtímann á öldinni sem leið. Konur sem voru ýmist dýrkaðar og dáðar - eða umdeildar. Allar eiga þær það þó sameiginlegt að eiga sinn sess í sögu síðustu aldar. Umsjón: Erla Tryggvadóttir. (Áður á dagskrá 2011)
Áhrifamiklar konur sem mótuðu samtímann á öldinni sem leið. Konur sem voru ýmist dýrkaðar eða umdeildar. Fjallað um baráttukonuna Rosu Parks. Umsjón: Erla Tryggvadóttir.
Fjallað er um Sturlungasögu og rætt við leika og lærða um söguna, sögusviðið og einstakar persónur frá ýmsum sjónarhornum.
Umsjón: Einar Karl Haraldsson.
(Áður á dagksrá 1984-85)
Afhjúpun minnisvarða frá Borgfirðingum til Dalamanna um Snorra Sturluson í Hvammi 27. apríl 1985. Upplestur skólameyja í Laugaskóla í Sælingsdal úr Sturlungu og viðtöl við Pétur Þorsteinsson sýslumann og Elís Þorsteinsson vegaverkstjóra.
Flutt eru ávörp Vigdísar Finnbogadóttur forseta Íslands, Péturs Þorsteinssonar sýslumanns Dalamanna og
Ingibergs J. Hannessonar prófasts á Hvoli.
Umsjón: Einar Karl Haraldsson.

Veðurstofa Íslands.

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Litla flugan stígur dansinn Jenka við undirleik finnsku Letkiss Allstars hljómsveitarinnar og rifjar líka upp íslenska Jenka-lagið um Lipurtá. Úr segulbandasafninu hljómar fágæt útgáfa af Ástardúetti Múla-bræðra með leikurunum Arnari Jónssyni og Sigríði Þorvaldsdóttur, og einnig tvö lög úr vorvertíðardagskrá með hljómsveit Ragnars Bjarnasonar frá árinu 1971. Borgardóttirin Berglind Björk syngur lög úr söngleiknum Vellinum eftir Hrafn Pálsson og einnig koma Peggy Lee og Elly Vilhjálms við sögu. Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Gestir þáttarins voru þau Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins, Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, og Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra. Þau ræddu meðal annars aðgerðaráætlun gegn ofbeldi meðal barna, húsnæðismál og geðheilbrigðismál.
Umsjón: Alma Ómarsdóttir
Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Útvarpsfréttir.

Tónlist af ýmsu tagi.

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Lalli töframaður frumsýnir nýja sýningu sína um helgina í Tjarnarbíói og hann var gestur Felix i Fimmunni. Umræðuefnið fór um víðan völl og þar var rætt um smíðakennslu, drómasýki og margt fleira.

Umsjón: Salka Sól Eyfeld.
Allt á sínum stað, franska lagið, barnalagið, alþjóðlega lagið.
Þemaþrennan : Vinna
Útvarpsfréttir.
Það er ekki boðlegt að fjölskyldur fatlaðs fólks á sambýlum í Reykjavík þurfi að sinna fólkinu sínu, segir sviðstjóri velferðarsviðs borgarinnar. Hún segist harma slík atvik og til skoðunar er hvað hafi farið úrskeiðis.
Bandaríkjaforseti er sagður hafa, á fundi með forsætisráðherra Bretlands, lagst gegn því að heimila Úkraínumönnum að nota langdrægar eldflaugar til að skjóta yfir landamærin til Rússlands.
Aðstæður til slökkvistarfs voru eins og best var á kosið þegar eldur kviknaði í rútu fullri af ferðamönnum skammt frá Vestfjarðagöngum í gær. Aðstoðarslökkviliðsstjórinn á Ísafirði segist ekki vilja hugsa þá hugsun til enda ef kviknað hefði í rútunni inni í göngunum.
Heilbrigðisráðherra segir að þjóðin verði að taka höndum saman gegn auknu ofbeldi. Verkefnið sé flókið og nái til alls samfélagsins.
Búist er við töluveðri ásókn í ferðir til Norður-Evrópu í nánustu framtíð, sér í lagi yfir hásumarið. Hitastig og loftgæði gegndu lykilhlutverki hjá meirihluta ferðamanna sem hingað kom í sumar, þegar kom að því að velja áfangastað.
Stærðarinnar ísjakar sjást nú skammt frá landi við Trékyllisvík á Ströndum. Heimamaður sigldi upp að einum þeirra í gær og áætlar að hann sé allt að 30 metrar á hæð.
Smalamennska gekk að óskum í Svarfaðardal í dag. Fjallskilastjóri segir að fé hafi ekki fennt þó að snjór sé niður í miðjar hlíðar.
Rapparinn og plötusnúðurinn Ragga Holm á Rás 2 alla laugardaga með tónlistarþáttinn Smell. Frábær upphitun fyrir kvöldið!
Laugardagsstemningin sveif yfir vötnum og tónlistin kallaðist á við helgarbraginn. Að þessu sinni var það Kristján Freyr sem stýrði tökkum og valdi tónlistina og fékk að auki góða gesti í heimsókn.
Tómas Hermannsson bókaútgefandi og sonur hans Logi Tómasson, knattspyrnu- og tónlistarmaður gáfu út nýtt lag föstudaginn 13. september sem fjallar um vináttuna og að því tilefni leit Tómas við og hringdu þeir í kjölfarið í Loga sem staddur var í rútu á leið til Haugesund, hvar Logi skyldi keppa með sínu liði Stromsgodset.
Hér er lagalisti þáttarins:
Holmes, Rupert - Escape The Pina Colada Song.
HJÁLMAR - Gakktu alla leið.
Kiwanuka, Michael - Floating Parade.
FOUNDATIONS - Build Me Up Buttercup.
Valdis, JóiPé - Þagnir hljóma vel.
CHICAGO - Saturday In The Park.
Lamontagne, Ray - Step Into Your Power.
Þokkabót - Litlir kassar.
Luigi - Vinir.
BJÖRN OG FÉLAGAR - Piltur og stúlka (Söngvakeppnin 2015).
Herra Hnetusmjör - Ómótstæðileg.
Kristmundur Guðmundsson - 10 km.
BLOOD SWEAT AND TEARS - Spinning Wheel.
MARK RONSON & LYKKE LI - Late Night Feelings.
ARETHA FRANKLIN - I Say A Little Prayer.
Unnsteinn Manuel Stefánsson, GDRN - Utan þjónustusvæðis.
ROBBIE WILLIAMS - Feel.
A-HA - Touchy.
MARK RONSON feat. AMY WINEHOUSE - Valerie.
Benjamin Ingrosso - Dance You Off (Svíþjóð Eurovision 2018).
UB40 - Red Red Wine.
Vampire Weekend - This Life.
HOLY HRAFN - Bíddu, bíddu, bíddu.
Blondie - Denis.
SOPHIE ELLIS BEXTOR - Murder On The Dancefloor.
THE TEMPTATIONS - My Girl.
U2 - Sweetest Thing.
RÚNAR JÚLÍUSSON OG UNUN - Hann Mun Aldrei Gleym'enni.
SHERYL CROW - All I Wanna Do.
OASIS - Stand By Me.
Chappell Roan - Good Luck, Babe!.
THE CARDIGANS - Sick And Tired.
THE STROKES - Someday.
Kanye West - Gold Digger ft. Jamie Foxx.
STEVIE WONDER, STEVIE WONDER - Sir Duke.
Lykke Li - I Follow Rivers.
ROXY MUSIC - Let's stick together.
Mann, Matilda - Meet Cute.
HOT CHIP - Over And Over.
Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Amabadama fer á flug, GusGus fer til Mexíkó, Jón Jónsson gefur allt sem hann á og Samaris sendir frá sér Silkidranga. Oyama fer úr skóglápi yfir í sveimrokk, Vio tríó vinnur Músíktilraunir, Hjaltalín fer á Hraunið og Júníus Meyvant er bjartasta vonin. Pollapönkarar fara fordómalausir í Eurovision, Sigur Rós treður upp í Game Of Thrones og Mono Town er í auga stormsins. Grísalappalísa kemur með rökrétt framhald, Teitur Magnússon fer sóló og Rökkurró drepur tímann. Hjálmar fagna tíu ára afmæli, Klassart fær flugmiða aðra leið, Jon Anderson syngur með Todmobile og Steve Hackett spilar á gítar. Mannakorn er í núinu, Skálmöld er með vættum og Ótta með Sólstöfum er plata ársins.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Lagalisti:
Amabadama - Þyrnirós
Amabadama - Hossa hossa
Amabadama - Eldorado
Amabadama - Óráð?
Amabadama - Gaia
Oyama - Siblings
Samaris - Tíbrá
Samaris - Brennur stjarna
Samaris - Ég vildi fegin verða
Jón Jónsson - Ljúft að vera til
Jón Jónsson - Endurgjaldlaust
Jón Jónsson - Ykkar koma
Jón Jónsson - Give It All U Got
Jón Jónsson - Gefðu allt sem þú átt
GusGus - Crossfade
GusGus - Sustain
GusGus - Obnoxiously Sexual
GusGus - Airwaves
Young Karin - Hearts
Vio - You Lost It
Hjaltalín - Everything Is Gonna Be Like Everything Will Ever Be (Anyways)
Geislar - Stone Cold Stone
Júníus Meyvant - Color Decay
Sólstafir - Lágnætti
Sólstafir - Ótta
Sólstafir - Dagmál
Sigga Eyrún - Lífið kviknar á ný
Pollapönk - Enga fordóma
Pollapönk - No Prejudice
Mannakorn - Í núinu
Mannakorn - Of seint að iðrast eftir dauðann
Jónsi - Where no one goes
Sigur Rós - The Rains Of Castamere
Mono Town - Peacemaker
Mono Town - Can Deny
Mono Town - Yesterday’s Feeling
Mono Town - Jackie O
Teitur Magnússon - Nenni
Teitur Magnússon - Vinur vina minna
Teitur Magnússon - Kamelgult
Teitur Magnússon - Háflóð
Todmobile - Úlfur
Todmobile & Jon Anderson - Wings Of Heaven
Todmobile & Steve Hackett - Midnight Sun
Rökkurró - Blue skies
Rökkurró - The Backbone
Rökkurró - Killing Time
Skálmöld - Að hausti
Skálmöld - Að vetri
Skálmöld - Að vori
Grísalappalísa - ABC
Grísalappalísa - Nýlendugata-Pálsbæjarvör-Grótta
Grísalappalísa - Flýja
Kimono - Specters
Elín Helena - Raunsæ rómantík
Sindri Eldon - Almost Exactly
Skítamórall - Þú (ert ein af þeim)
Hjálmar - Lof
Hjálmar - Skýjaborgin
Ásgeir Trausti - Stormurinn
Ásgeir Trausti - Frá mér til ykkar
Uniimog - Yfir hafið
Klassart - Landamærin
Klassart - Flugmiði aðra leið

Fréttir
Kvöldfréttir útvarps

Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.
Farið yfir vinsælustu lög Rásar 2 þessa vikuna.
Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir.
Samantekt lista: Matthías Már Magnússon.
Topplagið þessa vikuna er samstarf þeirra GDRN og Unnsteins Manúels og heitir Utan þjónustusvæðis.

Fréttastofa RÚV.

Tekið er á móti gesti sem fer í gegnum lög sem svör við ákveðnum spurningum. Hvað var fyrsta lagið sem þú hlustaðir á aftur og aftur? Hvaða lag myndiru spila til að loka frábærum degi? Hvert er jarðarfaralagið þitt? Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem poppa upp en svo fylgir einhverskonar æviágrip með í kjölfarið.
Atli Már Steinarsson tekur á móti gesti sem fer í gegnum uppáhaldslög frá mismunandi tímum.
Gestur Lovísu er blaðamaðurinn og hlaðvarparinn Snorri Másson

Spjallað við landann og leikin tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
Það eru margir kostir sem fylgja í kjölfar þess að tekið sé að rökkva á ný. Til dæmis að norðurljós séu nú sjáanleg. Fólk um allt land fór á rúntinn í leit að þessum fögru ljósum og auðvitað voru þau að hlusta á Næturvaktina á meðan. Fjörugur og fjölbreyttur þáttur í kvöld.
Lagalisti:
Bylur - Rugl
Billy Joel - Piano Man
Iron Maiden - Fear of the Dark
Take it easy - Eagles
Earth Wind and Fire - September
Oyama - Cigarettes
Nanna og Kaktus Einarsson - Be This Way (with Nanna)
Purrkur Pillnikk - Augun úti (Afturgöngur 2023)
Stefán Íslandi, Karlakór Reykjavíkur - Ökuljóð
N-Trance - Set you free
The Kinks - Waterloo Sunset
Pálmi Gunnarsson - Ísland er land þitt
Lada Sport - Ég þerra tárin
Nina Hagen - African Raggae
Justin Townes Earle - Who am I to say
Bríet - Rólegur kúreki
Air - Playground Love
Helga Möller - Ort í sandinn
Grafík - Prinsessan
Helena Paparizou - My number one
Abba - Knowing me, knowing you
Genesis - Tonight, tonight, tonight
Doro, Lemmy Kilmister - Love me forever
Nýríki Nonni - För
Björgvin Halldórsson - Ég fann þig
Eddie Vedder - Long Way
Bubbi Morthens - Leiðin Liggur Ekki Heim
Pearl Jam - Just breathe
Blazroca - Elskum þessar mellur
Skálmöld - Að hausti
Þorvaldur Halldórsson - Drottinn er minn hirðir
Hörður Torfason - Ég leitaði blárra blóma
Lýðskrum - Bláberja Tom
Laura Branigan - Self control