13:00
Kerfið
Betrun 4. þáttur – Lög og réttur á tímum upplýsingarinnar

Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni.

Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir

Um miðja 18. öldina fjölgaði dómum á Íslandi og því fjölgaði föngum í haldi sýslumanna og af þessu hlaust mikill kostnaður. Sýslumennirnir sendu því konungi bænaskrá og töldu að besta lausnin á þeim mikla kostnaði sem fylgdi sakamönnum væri fundin, einfaldlega að taka þá af lífi. Þetta fæli líka í sér tímasparnað. Í stað þess að þurfa að fara með sakamanninn með sér fram og aftur um landið gæti sýslumaður bæði fellt og fullnægt dómnum á einum og sama deginum.

Davíð Þór Björgvinsson, Hrannar Hólm, Hreinn Hákonarson, Már Jónsson og Sigríður Hjördís Jörundsdóttir eru viðmælendur í þættinum og Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.

Lesarar í þættinum eru: Björn Þór Sigbjörnsson, Brynjólfur Þór Guðmundsson, Gígja Hólmgeirsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 56 mín.
    ,