Í þáttunum Steypiregn kynnir Margrét Kristín Blöndal tónlistarmenn og tónlistarkonur sem hafa átt ríkan þátt í gera heiminn enn betri og fegurri. Í hverjum þætti er einn listamaður tekinn fyrir og verk hans kynnt fyrir hlustendum.
Þættirnir voru áður á dagskrá árið 2014.
Í þættinum Steypiregni tökumst við á hendur sameiginlegt ferðalag. Ferðalag um heitar og kaldar lendur tónlistarinnar ,Þetta eru jú lendur sem kenna sig við alls kyns stíla en í dag munum við ekki frekar en endranær skipta okkur af nokkru flokkunarkerfi og bara njóta þess sem koma skal.Því við vitum það er auðvitað aðeins hinn sameiginlegi kjarni sem öllu skiptir,..
Drunk in love - Beyoncé.
Þegar vetrarþokan grá - Elsa Sigfúss
Wuthering heights - Kate Bush.
Sexburarnir - Ingibjörg Þorbergs.
Don´t explain - Billie Holiday.
Hugsa ég það hvern einn dag - Hamrahlíðarkórinn.
Big Science - Laurie Anderson,
Good enaugh to keep (air mail special-flying home) - Ella Fitzgerald
Indian alphabet chant - Lucia Pamela
Jeanne - Françoise Hardy og dúettinn AIR.
I am woman - Helen Ready.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 13. september 2014.
Í þættinum "Gullastokkur Egils Skallagrímssonar" er fjallað um leiki barna fyrr á öldum. Oft má fræðast um þá af sögum og endurminningum. Egill litli Skallagrímsson fékk skeljar í gullastokkinn sinn að launum fyrir kvæði þegar hann var fjögurra ára. Guðmundur Arason góði þóttist alltaf vera biskup þegar hann var í leik með félögum sínum. Þegar Katrín mikla var 7 ára gömul var henni sagt að hún væri of gömul fyrir leikföng og þau voru tekin af henni. Og Kristín Dahlstedt þóttist vera prinsessa í kjól sem bróðir hennar fléttaði handa henni úr blómum. Þessar frásagnir og ýmsar fleiri verða fluttar í þættinum, og leikin verða gömul barnalög. Lesarar eru Vigdís Gunnarsdóttir og Valur Freyr Einarsson, en umsjónarmaður Una Margrét Jónsdóttir.
Þátturinn var frumfluttur á sumardaginn fyrsta árið 2013.
Bjarki Sveinbjörnsson fer yfir yfir sögu hljómsveitarinnar og rekur meðal annars hvað aðalhljómsveitarstjórar hennar höfðu að leiðarljósi við störf sín.
Í þættinum er fjallað um fyrstu ferðir Sinfóníuhljómsveitar Íslands út á land. Einnig segir frá ferðum hljómsveitarinnar til Færeyja og Grænlands.

frá Veðurstofu Íslands.
Umsjón: Magnús Lyngdal Magnússon
Umsjón: Magnús Lyngdal Magnússon
Bandaríski fiðluleikarinn Isaac Stern og rússneski píanóleikarinn Alexander Zakin komu til Íslands árið 1955 á vegum Tónlistarfélagsins og héldu meðal annars sérstaka tónleika fyrir háskólakennara og stúdenta í hátíðarsal Háskóla Íslands. Þá lék Stern einleik með nýstofnaðri Sinfóníuhljómsveit Íslands í Þjóðleikhúsinu í fiðlukonsertinum eftir Felix Mendelssohn. Í þættinum ferðin rifjuð upp og vikið sérstaklega að blaðaumfjöllun í tengslum við hana. Leikin dæmi úr verkum tónskálda á borð við Wolfgang Amadeus Mozart, Sergej Prokofjev, Niccolò Paganini og Felix Mendelssohn. Umsjónarmaður: Magnús Lyngdal Magnússon.
Mozart, Wolfgang Amadeus: Rondó úr Haffner-serenöðunni (K. 250 frá 1776). Isaac Stern, Alexander Zakin. Útg. Sony.
Prokofjev, Sergej: Fiðlusónata nr. 1 í f-moll, op. 80, III. Andante. Isaac Stern, Alexander Zakin. Útg. Doremi.
Paganini, Niccolò: La Campanella. Isaac Stern, Alexander Zakin. Útg. Doremi.
Brahms, Johannes: Fiðlusónata nr. 3 í d-moll, op. 108, II. Adagio. Isaac Stern, Alexander Zakin. Útg. Sony.
Szymanowski, Karol: La Fontaine d‘Arethuse. Isaac Stern, Alexander Zakin. Útg. Sony.
Mendelssohn, Felix: Violin Concerto in D Minor, III. Allegretto non troppo – Allegro molto vivace. Isaac Stern, Philadelphia Orchestra / Eugene Ormandy. Útg. Sony.
Messa frá Glerárkirkju á Akureyri í tilefni hinsegindaga, Gospelkór Glerárkirkju syngur undir stjórn Helgu Hrannar Óladóttur, Risto Laur leikur undir.
Sr. Sindri Geir Óskarsson, Sr. Hildur Björk Hörpudóttir og Eydís Ösp Eyþórsdóttir djákni leiða stundina með lesurum úr Gospelkórnum.
Tónlistin í messunni:
Forspil: Velkomin, höfundur lags og texta: Bubbi Morthens
Drottinn þú ert mér ætið nær, íslenskur texti Guðlaugur Gunnarsson, höfundar lags og upprunalegs texta: Elsa Ann Marie Jarpehag / Bo Goran Magnus Jarpehag
Hosanna, höfundur lags og texta: Brooke Ligertwood
Þú fullkomnar mig, Höfundur lags: Guðmundur Jónsson, Höfundur texta: Stefán Hilmarsson,
Kveiktu ljós, lag og upprunalegur texti: Tore Aas, íslenskur texti Guðni Einarsson og Guðmundur Karl brynjarsson.
Hallelujah - Leonard Cohen, íslenskur texti Jóhanna F Karlsdóttir
Regnboginn er himinhár – lag og texti Helga Jónsdóttir
Blessunarorðin- lag: Tone Ödgard, texti: Biblían
Útvarpsfréttir.
Íranar segjast ekki ætla að opna fyrir umferð um Hormús-sund nema Bandaríkjamenn gangi að skilyrðum þeirra, til dæmis um stríðskaðabætur. Stjórnvöld í Oman segja þó að viðræðum miði áfram.
Fimm menn reyndu að grýta kvár á leið heim úr gleðigöngunni í gær. Hún segir ofbeldi gegn hinsegin fólki hafa stigmagnast og að lögregla verði að gera betur.
Formaður Vinstri grænna ætlar að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni í lok mánaðar þrátt fyrir að stefna flokksins sé að Ísland gangi ekki í ESB.
Úkraínumenn segjast ekki hafa ætlað að gera drónaárás á Búlgaríu, en árásardróni sprakk nærri gasleiðslu sem liggur um Búlgaríu. Mannskæðar loftárásir voru gerðar í Úkraínu og Rússlandi í nótt og í morgun.
Veðurspár eru teknar að skýrast fyrir sólmyrkvann á miðvikudag þótt enn sé óvissa í kortunum. Við ræðum við veðurfræðing í fréttatímanum.
Sala á tónlist á áþreifanlegu formi hefur aukist frá 2020 þegar botni var náð. Verslunarmenn segja ungmenni sækja meira en áður í tónlist á áþreifanlegu formi -- og þá sérstaklega geisladiska.
Alþjóðaknattspyrnusambandið fordæmir það sem það kallar ófrægingarherferð gegn forsetanum Gianni Infantino.
Og það ræðst í dag hverijr verða Íslandsmeistarar í golfi - lokahringur Íslandsmótsins hefst klukkan hálf þrjú.
Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.
Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir
Á miðvikudaginn verður almyrkvi á sólu sjáanlegur á stórum hluta Íslands. Stjörnu-Sævar sagði okkur allt um hann í júní.
Þættirnir eru í umsjón hjónanna Guðbjargar Gissurardóttur og Jóns Árnasonar, en þau hafa sett sér það markmið að koma sér upp lífrænum matjurtagarði í sælureit sínum í Kjós. Þau hafa enga reynslu, né hugmynd um hvernig þau eiga að koma slíku verki í framkvæmd. En til að afla sér þekkingar fara þau á stúfana og hitta sérfræðinga og vana leikmenn á sviði matjurtaræktunar til að fá ráðleggingar og hugmyndir sem munu vonandi skila þeim og hlustendum góðri uppskeru í lok sumars. Einnig munu þau hafa uppi á fólki sem er að gera óvenjulega hluti á þessu sviði, auk þess að taka fyrir matreiðslu grænmetis, nýtingu villijurta o.m.fl. Í Boði náttúrunnar fjallar um ferðalag þeirra hjóna og verður hlustendum vonandi innblástur og hvatning til að rækta sitt eigið grænmeti, hvort sem það er úti í garði, uppi í sumarbústað, á svölunum eða úti í glugga.
Frá 2011
Í þessum þætti verða birki og ber í aðalhlutverki. Fyrst spjalla þáttastjórnendur við Bergrúnu Örnu Þorsteinsdóttir einn af eigendum Holta og heiða sem vinnur ýmsar vörur úr náttúru Hallormsstaðar m.a. birki safa og birki síróp. Því næst verður farið í heimsókn til Sigurbjargar Snorradóttur að Krossum á Árskógströnd sem hefur tínt ber í 30 ár. Hún mun fræða þáttastjórnendur m.a. um munin á aðalberjum og aðalbláberjum, berjahorfur fyrir norðan og samkeppnina við nýjan varg í berjalöndunum. Að lokum fræðir Erling Ólafsson dýrafræðingur hjá Náttúrustofnun þáttastjórnendur um birkifetann sem er farin að ógna berjalöndum víða um land.
Hljóðritun frá lokatónleikum Reykholtshátíðar sem fram fóru í Reykholtskirkju í Borgarfirði 26. júlí sl. þar sem flytjendur hátíðarinnar komu fram í fjölbreyttri dagskrá.
Á efnisskrá:
-Sönglög og aríur eftir Paolo Tosti, Jules Massenet, Gustav Mahler og Gioachino Rossini.
- Strengjasextett í B-dúr, op. 18 eftir Johannes Brahms.
Flytjendur:
Söngvararnir Kristinn Sigmundsson, Jóhann Kristinsson og Arnheiður Eiríksdóttir, Mathias Halvorsen píanóleikari, fiðluleikarararnir Joaquin Páll Palomares og Pétur Björnsson, víóluleikararnir Þórunn Ósk Marinósdóttir og Guðbjartur Hákonarson og sellóleikararnir Sigurgeir Agnarsson og Sigurður Bjarki Gunnarsson.
Umsjón: Pétur Eggertsson.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
„Jeg kalla það ekki formyrkvan, því það er ljótt orð,“ sagði Jónas Hallgrímsson um það þegar tungl myrkvar sólu og gaf því heitið sólmyrkvi.
Þegar Jónas þýddi bók um stjörnufræði úr dönsku bjó hann til fjölmörg íslensk orð yfir hugtök í stjörnufræði, eðlsifræði og stærðfræði. Mörg þeirra eru enn notuð sem íðorð og sum urðu hluti af daglegum orðaforða og lifa enn góðu lífi tæpum 200 árum síðar.
Gömlu Grikkirnir kölluðu það ekfrasis þegar raunverulegu listaverki var lýst með orðum. Í Ilíonskviðu Hómers er skildi Akkilesar lýst í ljóði og rithöfundar hafa í þúsundir ára skrifað óteljandi texta sem lýsa eða túlka merkingu listaverka. Í þessari þáttaröð notar Þórdís Gísladóttir svipaða aðferð og segir frá fjórum myndum sem urðu til þess að hún heimsótti fólk og skjalasöfn og sökkti sér í heimildir um manneskjur sem hún hafði ýmist aldrei heyrt um eða vissi mjög lítil deili á. Myndirnar urðu kveikjan að því að hún raðaði saman fjölmörgum brotum úr fortíðinni og segir í þáttaröðinni Í upphafi var myndin sögur nokkurra Íslendinga sem fluttu til Danmerkur og Dana sem fluttu til Íslands. Allt lifði þetta fólk forvitnilegu lífi með gleði og sorgum, ævintýrum og leyndarmálum.
Umsjón: Þórdís Gísladóttir
Framleiðsla: Þorgerður E. Sigurðardóttir
Hvernig var hægt að finna út hver var pípureykjandi maðurinn sem geymdi mannabein í herberginu sínu? Sögð er saga af reykvískum strák úr Skólastræti sem menntaðist í læknisfræði og tungumálum og gerðist héraðslæknir í Vestur-Indíum. Viðmælandi í þættinum er Inga Lára Baldvinsdóttir, sagnfræðingur.

frá Veðurstofu Íslands
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Sumarþættir Heimskviða halda ótrauðir áfram og í dag ætlum við að heimsækja nágranna okkar í Færeyjum og huga bæði að jarðgöngum og handbolta.
Það eru fáir jafn duglegir að gera jarðgöng og Færeyingar - í það minnsta miðað við höfðatölu. 23 tvíbreið jarðgöng eru þar núna - ríflega tvöfalt fleiri en á Íslandi. Nú eru Færeyingar með háleitar áætlanir um næstlengstu neðansjávargöng í heimi, sem yrði jafnframt langdýrasta framkvæmd í sögu Færeyja. En þessar áætlanir er umdeildar, bæði efnahagslega og pólitískt. Hallgrímur Indriðason segir okkur allt um málið.
En Færeyingar eru ekki bara duglegir að gera jarðgöng, þeir eru alltaf að verða betri í handbolta. Það sannaðist á Evrópumóti karla í handbolta í janúar þegar færeyska landsliðið sigraði hjörtu margra áhorfenda. Þeir komust reyndar ekki áfram á mótinu, en áfanginn og árangurinn vakti athygli víða. Og okkur langaði að forvitnast um uppgang handboltans í Færeyjum. Við tölum við íslenskan handboltaþjálfara í Færeyjum sem segir okkur frá ótrúlegum uppgangi handboltans þar, en Færeyingar fjölmenntu til Osló þar sem landsliðið þeirra vann sinn fyrsta leik á stórmóti. Þeir komast ekki áfram í milliriðil en hátt í sjö þúsund Færeyingar fylgdu liðinu.
Umsjón: Magnús Lyngdal Magnússon
Umsjón: Magnús Lyngdal Magnússon
Bandaríski fiðluleikarinn Isaac Stern og rússneski píanóleikarinn Alexander Zakin komu til Íslands árið 1955 á vegum Tónlistarfélagsins og héldu meðal annars sérstaka tónleika fyrir háskólakennara og stúdenta í hátíðarsal Háskóla Íslands. Þá lék Stern einleik með nýstofnaðri Sinfóníuhljómsveit Íslands í Þjóðleikhúsinu í fiðlukonsertinum eftir Felix Mendelssohn. Í þættinum ferðin rifjuð upp og vikið sérstaklega að blaðaumfjöllun í tengslum við hana. Leikin dæmi úr verkum tónskálda á borð við Wolfgang Amadeus Mozart, Sergej Prokofjev, Niccolò Paganini og Felix Mendelssohn. Umsjónarmaður: Magnús Lyngdal Magnússon.
Mozart, Wolfgang Amadeus: Rondó úr Haffner-serenöðunni (K. 250 frá 1776). Isaac Stern, Alexander Zakin. Útg. Sony.
Prokofjev, Sergej: Fiðlusónata nr. 1 í f-moll, op. 80, III. Andante. Isaac Stern, Alexander Zakin. Útg. Doremi.
Paganini, Niccolò: La Campanella. Isaac Stern, Alexander Zakin. Útg. Doremi.
Brahms, Johannes: Fiðlusónata nr. 3 í d-moll, op. 108, II. Adagio. Isaac Stern, Alexander Zakin. Útg. Sony.
Szymanowski, Karol: La Fontaine d‘Arethuse. Isaac Stern, Alexander Zakin. Útg. Sony.
Mendelssohn, Felix: Violin Concerto in D Minor, III. Allegretto non troppo – Allegro molto vivace. Isaac Stern, Philadelphia Orchestra / Eugene Ormandy. Útg. Sony.

Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.
Orient club, Faudel - Anti.
Soto, Paco - Bulería de la Esperanza (feat. Israel Fernández & Niño de Los Reyes).
Listafólk frá Venezúela - Coquibacoa.
Alal, Nayim - Dios mío!
Franco & L'Orchestre TP OK Jazz - Kinsiona.
Sangare, Oumou - N'guatu = The straw that grows in the Savannah fields.
Khongorzul, Baterdene - The river Herlen.
Soumano, Hadja - Sosso.
Rimitti, Cheikha - Ouah ya ould bladi.
Gèssèssè, Tlahoun, Police Orchestra - Sema.
Armstrong, Siobhán, Hope, Daniel - Codladh an Oigfhir (Transcr. for Violin and Harp).
Colombiafrica - Zarandia champeta.


frá Veðurstofu Íslands
Fimm nemendur í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands segja sögur af hátíðum.
Þröstur Ingvarsson fjallar um dauða Fiskidagsins mikla á Dalvík.
Freyja Þórisdóttir kafar í undirbúning útihátíðarinnar í Atlavík árið 1984.
Líf Ramundt Kristinsdóttir segir sögur Orra frá Þúfu, stærstu stjörnu Landsmóts hestamanna árið 1994.
Sigrún Björk Hjartardóttir segir frá Eldborgarhátíð 1992.
Hrafn Steinar Sigurðsson fjallar um Víkingahátíðina í Hafnarfirði.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Þriðji þáttur úr endurminningum Jónu Sigríðar Jónsdóttur, Ein á hesti, þar sem hún segir frá ævi sinni. Í þessum þætti er Jóna Sigríður komin um þrítugt og hefur fengist við margvísleg störf um ævina, en hún tekur nú að gerast mikil hestakona og kaupir og selur hross og fer í ýmsar svaðilfarir milli landshluta með hesta sína.

Útvarpsfréttir.
Hulda Geirsdóttir er fyrst á fætur á sunnudagsmorgnum á Rás 2. Hún heyrir í fólki víða um land, fær til sín góða gesti og leikur fjölbreytta tónlist að sínum hætti. Notaleg morgunstund með hlustendum.
Hulda snéri aftur á sunnudagsmorgnum og bauð upp á ljúfan þátt með góðum gestum. Fríða Hansen, reiðkennari og tónlistarkona, var á línunni í sveitasímanum og sagði frá lífinu í Landsveit og gestur þáttarins var Hildur Kristín Stefánsdóttir tónlistarkona, jógakennari og hugleiðslu leiðbeinandi. Hún sagði frá lífi sínu og störfum, m.a. ADHD greiningu á fullorðinsaldri og hvernig lyfin hjálpuðu henni til að byrja með en til lengri tíma litið ýttu þau undir fullkomnunaráráttu og örmögnun. Hún fann lausnina í hugleiðslu og hefur nú hugleitt daglega í hátt í annað ár og farin að kenna fólki að hugleiða í gegnum netnámskeið.
Tónlist:
Ásgeir Trausti - Heartbeat.
Mike Oldfield & Maggie Reilly - Moonlight Shadow.
Ragnheiður Gröndal - Alveg sama hvað.
U2 - In a little while.
America - Ventura highway.
Daði Freyr - I'm Out and I Wanna Go Home.
Mannakorn - Einhverstaðar Einhverntíman Aftur.
Fríða Hansen - Það var komið sumar.
Eagles - Heartache Tonight.
Stefán Hilmarsson - Þrátt fyrir allt.
Miley Cyrus - Malibu.
Hildur - Afturábak.
Guðjón Þorgils - Framávið.
Talking Heads - Life during wartime.
Elvis Presley - Suspicious minds.
Freyr Eyjólfsson mætir með kaffibollann sinn og grúskar í allskonar tónlist frá ýmsum tímum.
Mata Hari olli ókyrrð og usla hvert sem hún fór. Við rekjum sögu hennar, förum yfir umferð almyrkvans og dustum rykið af gömlum geisladiskum.
RAGNHEIÐUR GRÖNDAL - Með þér
REM - Half a world away
Hermigervill - Einhversstaðar einhverntímann aftur.
Róshildur - Kría (v6,8).
Nina Simone - Ain't No Use.
Mazzy Star - Fade into you
Flaming Lips - Will you return
Sam Cooke - Get yourself another fool
Breeders - Drivin on 9
Arcade Fire - Sprawl II
Jakob Frímann Magnússon - Umboðsmenn Drottins
Megas - Við Birkiland.
Hildur - Dúnmjúk.
GEIRI SÆM OG HUNANGSTUNGLIÐ - Er Ást Í Tunglinu.
THE JESUS AND MARY CHAIN - Sometimes Always Ft. Hope Sandoval.
Dr. Gunni - Ástandið.
Elvis Presley - Tomorrow night
Pixies - Wave of mutilation
Yea Yea Yeahs - Skeletons
Theodóra - Nokkur lítil skordýrabit.
TALK TALK - It's My Life.
Útvarpsfréttir.
Íranar segjast ekki ætla að opna fyrir umferð um Hormús-sund nema Bandaríkjamenn gangi að skilyrðum þeirra, til dæmis um stríðskaðabætur. Stjórnvöld í Oman segja þó að viðræðum miði áfram.
Fimm menn reyndu að grýta kvár á leið heim úr gleðigöngunni í gær. Hún segir ofbeldi gegn hinsegin fólki hafa stigmagnast og að lögregla verði að gera betur.
Formaður Vinstri grænna ætlar að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni í lok mánaðar þrátt fyrir að stefna flokksins sé að Ísland gangi ekki í ESB.
Úkraínumenn segjast ekki hafa ætlað að gera drónaárás á Búlgaríu, en árásardróni sprakk nærri gasleiðslu sem liggur um Búlgaríu. Mannskæðar loftárásir voru gerðar í Úkraínu og Rússlandi í nótt og í morgun.
Veðurspár eru teknar að skýrast fyrir sólmyrkvann á miðvikudag þótt enn sé óvissa í kortunum. Við ræðum við veðurfræðing í fréttatímanum.
Sala á tónlist á áþreifanlegu formi hefur aukist frá 2020 þegar botni var náð. Verslunarmenn segja ungmenni sækja meira en áður í tónlist á áþreifanlegu formi -- og þá sérstaklega geisladiska.
Alþjóðaknattspyrnusambandið fordæmir það sem það kallar ófrægingarherferð gegn forsetanum Gianni Infantino.
Og það ræðst í dag hverijr verða Íslandsmeistarar í golfi - lokahringur Íslandsmótsins hefst klukkan hálf þrjú.
Á Sportrásinni fylgist Doddi með því sem er að gerast í íþróttalífinu hér heima og erlendis. Helstu íþróttafréttir vikunnar og hvað er framundan með góðri aðstoð íþróttadeildar RUV. Ásamt gæða sunnudags tónlist.
Sportrásin, ekki bara fyrir þá sem hafa gaman af sportinu!
Í sportrásinni í dag var ég með puttann á púlsinum á lokahring Íslandsmótsins í golfi og var Jón Julius Karlsson sem hefur verið að lýsa mótinu á línunni. Svo kom einn helsti handbolta sérfræðingur landsins, Arnar Daði Arnarsson, í spjall um íslenskan handbolta. Að lokum kom svo Anna Sigrún Davíðsdóttir af íþróttadeild RÚV til þess að ræða íþróttir helgarinnar.
Violet Dreams - Warmland
Red Eyes - The War On Drugs
Tuedsay's Gone - Lynyrd Skynyrd
Heartbeat - Ásgeir Trausti
Berdreymi - Luigi & Maron Birnir
My Love Is Your Love - Whitney Houston
Magic - Olivia Newton-John
All Over The World - ELO
Jive Talkin' - Bee Gees
You Give Me Something - Jamiroquai
City Lights - Cell 7
Svarti Skuggi - Úlfur Úlfur
Anemone - The Brian Jonestown Massacre
Everything Now - Arcade Fire
Fire - Kasabian
7-9-13 - ICEGUYS
Follow - Kaktus Einarsson
Ég skal syngja fyrir þig - Memfismafían & Guðmundur Pálsson
Congratulations - MGMT
Hate That I Made You Love Me - Ariana Grande
I'm Out and I Wanna Go Home - Daði Freyr
Cheri Cheri Lady - Modern Talking
Big In Japan - Alphaville
Major Tom - Peter Schilling
Bonnie and Clyde - Serge Gainsbourg
Nobody But Me - The Human Beinz
Á hnjánum - Hipsumhaps
Sit Next To Me - Foster The People
Born Of Frustration - James
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Í Rokklandi vikunnar er skautað yfir ævi og feril Arethu Franklin sem ung að árum fékk viðurnefnið Queen of soul.

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.

Á sunnudögum opnar Rósa Suðupottinn og býður hlustendum í fjölbreytt tónlistarferðalag þar sem jazz, trip hop, heimstónlist og fleiri stefnur mætast í nútímanum.

Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.
Þær Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunnar í Vinsældalista Rásar 2.
Mættar aftur eftir stutt frí. Ragga giggaði alla Verslunarmannahelgina á meðan Vilborg fór í útilegu. Mikið nýtt á lista, endurkomur og gömul og góð!
Lagalistinn:
Brunaliðið & Pálmi Gunnarsson - Ég er á leiðinni
Tame Impala - Dracula
Of Monsters And Men - Ordinary Creature
Nýdönsk - Frelsið
Aldous Harding feat. H. Hawkline - Venus in the Zinnia
Baksýnisspegilinn: Ricky Martin - Livin la vida loca
Ariana Grande- hate that i made you love me
Memfismafían & Björn Jörundur - Ég kenni þér um
Quarashi - Do it again
Topp 10:
10. Chaka Khan & Snoop Dogg - Boogie's In My Soul
9. Kacey Musgraves - I Believe In Ghosts
8. Dominic Fike - Babydoll
7. Klara Einars - Ef Hann Myndi
6. Daði Freyr - I'm Out And I Wanna Go Home
5. Pálmi Gunnarsson - Skref Fyrir Skref
4. Calvin Harris & Jazzy - Satisfy
Spákúlan : KARLOTTA - Svarthvíta hetjan mín
3. Harry Styles - Dance No More
2. U2 - Street Of Dreams
1. Steinunn Yones & Gnúsi Yones feat. Kraftgalli & Teitur Magnússon - Spóla Til Baka