Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Nokkrir nemendur í sjötta bekk Menntaskólans í Reykjavík eru samankomnir í einbýlishúsi í fínu hverfi í Vesturbæ Reykjavíkur fyrir 54 árum. Þeir eru að fara að hlusta á nýja plötu sem enginn þeirra hefur heyrt en hefur vakið mikið umtal og hneykslun og jafnvel reiði. Enginn piltanna er sérstaklega róttækur en þeir eru með opinn huga þegar platan er sett á fóninn og 40 mínútum síðar eru þeir heillaðir af frumlegustu tónsmíðum, ljóðum og flutningi sem þeir hafa heyrt á íslenskri plötu. Þessi plata er engu lík.
Umsjónarmaður Vínils vikunnar er Bogi Ágústsson og Mark Eldred er upptökustjóri. Vínillinn er Megas, fyrsta plata Megasar frá 1972. Umsjónarmaðurinn var í hópi piltanna sem voru að hlusta og hefur síðan verið í hópi aðdáenda.
Magnús Þór Jónsson, Megas, var borinn til grafar í síðustu viku. Hann var einn þekktasti listamaður þjóðarinnar en hann vakti fyrst almenna athygli þegar fyrsta plata hans kom út. Því fór fjarri að allir væru jafn heillaðir og menntaskóladrengirnir; í plötudómi var skrifað: „Um músíkina á plötunni er eiginlega ekkert að segja, því þar fyrirfinnst varla nokkur músik“ og enn fremur að Megas væri „ekki söngvari fyrir fimm aura“. Ljóðin sem Megas söng voru ekki minnsta hneykslunarefnið, fjallað er um margar helstu hetjur Íslandssögunnar á óhefðbundinn hátt, svo vægt sé til orða tekið.
En skoðanir hafa breyst frá því að þetta var skrifað. Megas fékk til dæmis verðlaun Jónasar Hallgrímssonar fyrir framlag sitt til íslenskrar tungu. Jónatan Garðarsson skrifaði um safnplötu sem gefin var út í tilefni af sjötugsafmæli Megasar:
„Hann er boðberi illra tíðinda, maðurinn sem yrkir um hluti sem hvískrað er um á bakvið luktar dyr, hluti sem fæstir vilja opinbera. Hann er trúbadúrinn og rokkarinn sem dregur upp myndir af lastabælinu Reykjavík, varpar ljósi á bísalifnað, sýnir okkur betri hliðar undirmálsfólks og snögga bletti betri borgaranna. Hann er sjáandinn sem skoðar söguna í óvenjulegu ljósi. Hann steypir hetjum af stöllum og bregður marglitu ljósi á mannlega breyskleika. Hann fjallar um liðinn tíma og horfna staði nær og fjær. Hann er óróaseggur íslenskrar dægurtónlistar, skáldið sem færir rokkinu dýpt söngljóðsins, maðurinn sem vekur róttæklinga af blundi og sáir frjókornum efasemda í sálir smáborgara.“
Eitt af því sem vakti reiði og hneykslun á fyrstu plötu Megasar var túlkun hans á sögunni, skutullinn hæfði ekki Móbí Dikk, Megas óskar þess að skip Ingólfs Arnarsonar hefði sokkið, Snorri Sturluson slapp við að verða færður á heljarslóð, Jónas Hallgrímsson lá sauðdrukkinn útí hrauni og Jón Sigurðsson gekk einatt nakinn í rauðum slopp um íbúð sína og brúkaði gylltan kopp.
Á plötuumslaginu segir meðal annars:
„Megas fetar troðnar slóðir í sagnarituninni og hefur það að leiðarhnoða eins og aðrir Íslandssöguhöfundar að segja hana eins og honum þykir hún skemmtilegust, en láta gráan veruleikann hvergi trufla frásögnina né deyfa.“
Þessi umdeilda plata var tekin upp í Noregi, í Oslo Tekniske Skole, nema síðasta lagið, „Spáðu í mig“, en það var hljóðritað á samkomu Íslendinga í Osló.
Á A-hlið plötunnar eru þessi lög:
Skutullinn
Um óþarflega fundvísi Ingólfs Arnarsonar
Silfur Egils
Dauði Snorra Sturlusonar
Um grimman dauða Jóns Arasonar
Um skáldið Jónas
Jón Sigurðsson og sjálfstæðisbarátta Íslendinga
Vertu mér samferða inn í blómalandið amma
Á B-hlið plötunnar eru þessi lög:
Þóttú gleymir guði
Gamli Sorrí Gráni
Síðbúinn mansöngur
Ófelía
Heilræðavísur
Um ástir og örlög Eyjólfs bónda
Spáðu í mig.
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Þátturinn var fyrst á dagskrá 5. júlí 2014.
Umsjón: Bragi Ólafsson
Bragi Ólafsson leikur tónlist að eigin vali.


frá Veðurstofu Íslands.
Gömlu Grikkirnir kölluðu það ekfrasis þegar raunverulegu listaverki var lýst með orðum. Í Ilíonskviðu Hómers er skildi Akkilesar lýst í ljóði og rithöfundar hafa í þúsundir ára skrifað óteljandi texta sem lýsa eða túlka merkingu listaverka. Í þessari þáttaröð notar Þórdís Gísladóttir svipaða aðferð og segir frá fjórum myndum sem urðu til þess að hún heimsótti fólk og skjalasöfn og sökkti sér í heimildir um manneskjur sem hún hafði ýmist aldrei heyrt um eða vissi mjög lítil deili á. Myndirnar urðu kveikjan að því að hún raðaði saman fjölmörgum brotum úr fortíðinni og segir í þáttaröðinni Í upphafi var myndin sögur nokkurra Íslendinga sem fluttu til Danmerkur og Dana sem fluttu til Íslands. Allt lifði þetta fólk forvitnilegu lífi með gleði og sorgum, ævintýrum og leyndarmálum.
Umsjón: Þórdís Gísladóttir
Framleiðsla: Þorgerður E. Sigurðardóttir
Hvernig var hægt að finna út hver var pípureykjandi maðurinn sem geymdi mannabein í herberginu sínu? Sögð er saga af reykvískum strák úr Skólastræti sem menntaðist í læknisfræði og tungumálum og gerðist héraðslæknir í Vestur-Indíum. Viðmælandi í þættinum er Inga Lára Baldvinsdóttir, sagnfræðingur.

Tónlist héðan og þaðan
Útvarpsfréttir.
Íslendingar gista sífellt minna á hótelum og gistiheimilum innanlands. Gistinóttunum hefur fækkað um meira en fjórðung. Kostnaður er hugsanleg skýring, segir ferðamálastjóri.
Starfandi innviðaráðherra, tekur undir áhyggjur strandveiðisjómanna af óvissu í greininni og misskiptingu milli landshluta. Hún vill fara yfir málin með sjómönnunum og finna varanlegri lausnir fyrir greinina.
Fyrrverandi prófessor við Háskóla Íslands sakar skólann um að leggja stein í götu upplýsingamiðlunar um Ísland og Evrópusambandið með því að meina þeim að leigja hátíðarsal skólans undir fyrirlestur
Spænsk stjórnvöld hafa tekið upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu til að svara sams konar aðgerðum Ítala gegn Spáni. Kveikjan að deilunni er straumur flóttafólks til hólmlendunnar Ceuta.
Grænlensk stjórnvöld vara bandarískt olíufyrirtæki við því að flytja tækjabúnað til að bora tilraunaholur á austurströnd Grænlands. Bandaríkjaforseti hefur enn uppi yfirlýsingar um áhuga sinn á yfirráðum yfir Grænland.
Búist er við metþátttöku í gleðigöngu Hinsegin daga sem hefst klukkan tvö. Við verðum í beinni frá stærsta drag bröns sem hefur verið haldinn hér á landi.
Íslandsmótið í golfi heldur áfram í dag. Fimmtán ára kylfingur lék best allra á mótinu í gær.
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Sumarþættir Heimskviða halda ótrauðir áfram og í dag ætlum við að heimsækja nágranna okkar í Færeyjum og huga bæði að jarðgöngum og handbolta.
Það eru fáir jafn duglegir að gera jarðgöng og Færeyingar - í það minnsta miðað við höfðatölu. 23 tvíbreið jarðgöng eru þar núna - ríflega tvöfalt fleiri en á Íslandi. Nú eru Færeyingar með háleitar áætlanir um næstlengstu neðansjávargöng í heimi, sem yrði jafnframt langdýrasta framkvæmd í sögu Færeyja. En þessar áætlanir er umdeildar, bæði efnahagslega og pólitískt. Hallgrímur Indriðason segir okkur allt um málið.
En Færeyingar eru ekki bara duglegir að gera jarðgöng, þeir eru alltaf að verða betri í handbolta. Það sannaðist á Evrópumóti karla í handbolta í janúar þegar færeyska landsliðið sigraði hjörtu margra áhorfenda. Þeir komust reyndar ekki áfram á mótinu, en áfanginn og árangurinn vakti athygli víða. Og okkur langaði að forvitnast um uppgang handboltans í Færeyjum. Við tölum við íslenskan handboltaþjálfara í Færeyjum sem segir okkur frá ótrúlegum uppgangi handboltans þar, en Færeyingar fjölmenntu til Osló þar sem landsliðið þeirra vann sinn fyrsta leik á stórmóti. Þeir komast ekki áfram í milliriðil en hátt í sjö þúsund Færeyingar fylgdu liðinu.
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Steindór Grétar Kristinsson stofnaði þá merku rafsveit Einóma með Bjarna Þór Gunnarssyni félaga sínum eftir að þeir heyktust á kvikmyndagerð. Sú sveit var áhrifamikil á sínum tíma og starfar enn, en þó Steindór helgi sig núorðið aðallega akademískri iðju er hann afkastamikil við tónsmíðar einn síns liðs, en ekki nógu duglegur að gefa út.
Lagalisti:
Everything is Missed - Single Cymbal Experiment
Flute Machine - Take Two
Lady Boy Records 018 - Eleni Goes Boing
Óútgefið - Anda smá
Óútgefið - Balk
Stjórnendur Lestarinnar, þau Lóa og Kristján, kryfja popplög með Friðriki Margrétar Guðmundssyni, tónskáldi, tónlistarmanni og poppmeinafræðingi.
Við setjumst niður og kryfjum lag með umtalaðasta tónlistarmanni heims um þessar mundir, Bad Bunny frá Púertó Ríkó. Lagið nefnist DtMF og er fullkomin tjáning á því hvernig það er að verða þrítugur.
Umsjón:
Lóa Björk Björnsdóttir, Kristján Guðjónsson og Friðrik Margrétar-Guðmundsson
Í þættinum fær Sverrir Norland til sín skemmtilega gesti sem endurhugsa með honum heiminn.
Gestir þáttarins eru Brynhildur Guðjónsdóttir, leikhússtjóri í Borgarleikhúsinu, Óskar Arnórsson, arkitekt og kennari við Listaháskóla Íslands og Berglind Rós Magnúsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands.
Umsjón: Sverrir Norland.
Enginn módernismi án lesbía fjallar um hin oft gleymdu áhrif sem bandarísku lesbíurnar Gertrude Stein og Sylvia Beach höfðu á mótun módernismans í París snemma á 20. öld.
Umsjón: Tinna Björk Ómarsdóttir.
Gertrude Stein var einn af brimbrjótum módernismans í bókmenntum og markaði einnig djúp spor í blómstrandi listalífi Parísar. Hún kom sér upp einkasafni af verkum eftir listamenn sem að áttu eftir að marka þáttaskil í listasögunni og hefur vinnustofa hennar verið kölluð fyrsta móderníska listasafnið.
Umsjón: Tinna Björk Ómarsdóttir.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Lagalisti
Skúli Sverrisson - The sound of snow.
Armstrong, Louis, Langford, Frances, Crosby, Bing - Pennies from heaven.
Kristjana Stefánsdóttir - Heim nú reikar hugurinn.
Jordan, Clifford, Richmond, Dannie, Dolphy, Eric, Charles Mingus Sextet, Coles, Johnny, Mingus, Charles, Byard, Jaki - Sophisticated lady.
Johnson, Gus, Fitzgerald, Ella, Levy, Lou, Bennett, Max - I loves you Porgy (live).
Simone, Nina - Go to hell.
Mance, Junior, Mance, Junior Trio, Roker, Mickey, Kral, Irene, Cranshaw, Bob - This is always.
ADHD Hljómsveit - Ása.
Sigmar Þór Matthíasson - Fordómalausir tímar.
Orchestre National de Jazz, Lehman, Steve - 39.
Stórsveit Reykjavíkur, Mintzer, Bob, Jóel Pálsson, Snorri Sigurðarson - Song based on Bergmann epigrams.
Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra.
Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.
Í fimmta þætti RÚS fjallar Gunnar Þorri Pétursson um bók Guðrúnar Finnbogadóttur, Til heljar og heim - þrjú ár í Rússlandi, frá árinu 1994. Lessri ásamt umsjónarmanni er Guðrún Gísladóttir. Guðni Tómasson veitti aðstoð við dagskrárgerð og samsetningu.
Rús - þættir um þjóð og menningu á krossgötum
Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra.
Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.

frá Veðurstofu Íslands
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Jónatan Garðarsson valdi.
Danski saxófónleikarinn Steen Vig og Bluesicians flytja lögin Memphis Blues, Foo Foo Blues, Copenhagen hip hop, Tee, We Sure Do Need Him Now og Kansas City Man Blues. Kvintett saxófónleikarans Rocky Boyd flytur lögin Stella By Starlight, Why Not?, West 42nd Street, Avars og Ease It!. Kvintett píanóleikarans Horace Silver flytur lögin Song For My Father, Calcutta Cutie, The Natives Are Restless Tonight, Que Pasa, Lonely Woman og The Kicker.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Sumarið er tími hvers kyns móta. Haldin eru íþróttamót, skátamót, héraðsmót og þannig mætti lengi teljs.
Orðið mót getur verið af ýmsum orðflokkum og haft mismunandi merkingarlegt hlutverk innan hvers þeirra. Það kemur á óvart að orð sem lætur svona lítið yfir sér skuli vera svona fjölhæft.
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Þórarinn Már Baldursson segir frá sínu uppáhalds tónverki.
Vínarfílharmónían flytur fyrsta kaflann úr Sinfóníu nr. 4 eftir Johannes Brahms. Upptakan er frá árinu 1981, stjórnandi Carlos Kleiber.

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.


frá Veðurstofu Íslands

Leikin er gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög. Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum. Umsjónarmaður þáttarins er Lana Kolbrún Eddudóttir.
Hljómsveitir Ásgeirs Sverrissonar og Ingimars Eydal.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Útvarpsfréttir.
Í Þú veist betur eru engin umræðuefni of lítil eða of stór. Í meira en 100 þáttum höfum við skoðað allt frá skammtafræði, eldgosum og kjarnorku yfir í ketti, bjór, laxeldi, talmeinafræði, hunda, lungun og landnám Íslands. Og svona mætti lengi telja.
Þættir á mannamáli fyrir forvitna sem vilja skilja heiminn betur, hvort sem það snýst um vísindi, samfélag, líkamann eða söguna.
Umsjón: Atli Már Steinarsson.
Hvernig fer sólarljós, milljón kílómetra leið í gegnum tómarúm, og endar sem mynd af andlitinu þínu? Í þessum þætti fáum við til okkar Einar Stefánsson augnlækni og lífeðlisfræðing, sem hefur starfað í faginu í hálfa öld, til að fara í gegnum augað frá grunni: hvernig samsetta augað okkar varð til í þróunarsögunni, hvers vegna 20/20-sjón er í raun bara félagslega ákveðinn staðall, og hvernig letiauga myndast hjá börnum sem ekki er hægt að laga eftir tíu ára aldur.
Einar segir sögu af því hvernig gerviaugasteinninn varð til eftir seinni heimsstyrjöldina og af sovéska augnlækninum sem skar nærsýni úr augum með hníf. Í lokin ræðum við stærstu áskoranir augnheilsu í heiminum í dag,þar á meðal sykursýki, sem er að verða stærsta orsök blindu á jörðinni og hvers vegna framfarirnar í faginu síðustu áratugi hafa verið svo miklar.
Umsjón: Atli Már Steinarsson
Viðmælandi: Einar Stefánsson
Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Hinsegin dagar ná hápunkti um helgina og settu sinn svip á lagavalið í þætti dagsins hjá Felix og Nönnu. Í tilefni hátíðarinnar fengu þau til sín tónlistarmanninn Torfa sem ætlar einmitt að koma fram á Pride balli í Gamla bíó í kvöld ásamt Páli Óskari, Álfgrími og fleiri góðum gestum. Þá leit uppistandarinn og fræðarinn Sóley Kristjánsdóttir einnig við og ræddi við þau um ferilinn og spennandi verkefni á döfinni.
Þá voru auðvitað fleiri hátíðir í gangi víða um land. Umsjónarmenn þáttarins hringdu vestur á Suðureyri í Elfar Loga Hannesson sem kemur að skipulagningu hátíðarinnar Act Alone sem fer fram um helgina. Þá slógu þau einnig á þráðinn hjá Ragnhildi Helgu Jónsdóttur sem sagði þeim frá Hvanneyrarhátíð sem fer fram um helgina.

Útvarpsfréttir.
Íslendingar gista sífellt minna á hótelum og gistiheimilum innanlands. Gistinóttunum hefur fækkað um meira en fjórðung. Kostnaður er hugsanleg skýring, segir ferðamálastjóri.
Starfandi innviðaráðherra, tekur undir áhyggjur strandveiðisjómanna af óvissu í greininni og misskiptingu milli landshluta. Hún vill fara yfir málin með sjómönnunum og finna varanlegri lausnir fyrir greinina.
Fyrrverandi prófessor við Háskóla Íslands sakar skólann um að leggja stein í götu upplýsingamiðlunar um Ísland og Evrópusambandið með því að meina þeim að leigja hátíðarsal skólans undir fyrirlestur
Spænsk stjórnvöld hafa tekið upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu til að svara sams konar aðgerðum Ítala gegn Spáni. Kveikjan að deilunni er straumur flóttafólks til hólmlendunnar Ceuta.
Grænlensk stjórnvöld vara bandarískt olíufyrirtæki við því að flytja tækjabúnað til að bora tilraunaholur á austurströnd Grænlands. Bandaríkjaforseti hefur enn uppi yfirlýsingar um áhuga sinn á yfirráðum yfir Grænland.
Búist er við metþátttöku í gleðigöngu Hinsegin daga sem hefst klukkan tvö. Við verðum í beinni frá stærsta drag bröns sem hefur verið haldinn hér á landi.
Íslandsmótið í golfi heldur áfram í dag. Fimmtán ára kylfingur lék best allra á mótinu í gær.
Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.
Helgarútgáfan var á sínum stað að hádegisfréttum loknum og Kreistján Freyr sneri aftur eftir nokkurra vikna frí. Að venju litum við á allt það helsta sem dreif á daga þjóðar þessa helgina og ljóst að lítið var um verslunarmannahelgarþreytu. Í Reykjavík náði Hinsegin dagar hámarki með gleðigöngu en einnig var talsvert um aðrar hátíðir víða um land.
Hinn ungi og efnilegi söngvari Guðjón Þorgils Kristjánsson sigraði Söngkeppni framhaldsskólanna fyrr í vor og sigraði hjörtu landsmanna um leið, hann flytur nú lag Hinsegin daga í ár sem heitir Fram á við. Og áður en Guðjón tróð upp á stóra sviðinu í Gleðigöngunni í Hljómskálagarði í Reykjavík mætti hann í Helgarútgáfuna í spjall þar sem hann meðal annars deildi með okkur frábærri meðmælasúpu.
Galgoparnir í hljómsveitinni Spacestation gáfu út nýtt lag þessa helgina og Helgarútgáfan frumflutti. Aukinheldur komu Davíð Þór og Björgúlfur Jes vopnaðir gítar og trumbu og léku þeir við hvern sinn fingur í beinni. Hljómsveitin Spacestation verður meðal þeirra sem leika á Tónaflóði Rásar 2 við Arnarhól á Menningarnótt.
Lagalistinn kallaðist ágætlega á við gleðigönguna og innihélt ýmsa gleði:
MOSES HIGHTOWER - Lífsgleði
UNA TORFA - Þú ert stormur (Pride lagið 2023)
MANNAKORN - Víman
STEBBI JAK - Dönsum inn í hljóða nótt
ICEGUYS - 7-9-13
TAYLOR SWIFT - I Knew It I Knew You
CAAMP - Mistakes
RETRO STEFSON - Skin
GUÐJÓN ÞORGILS - Framávið (Lag Hinsegin daga 2026)
STJÓRNIN - Láttu þér líða vel
SHAKIRA, BURNA BOY - Dai Dai
STEFÁN HILMARSSON - Þrátt fyrir allt
REBEKKA BLÖNDAL - Kveðja
WARMLAND - Violet Dreams
SPACESTATION - Lightspeed
JET - Look What You've Done
WINGS - Let 'em In
ALDOUS HARDING - Venus in the Zinnia
PRINS PÓLÓ - Niðri á strönd
REVEREND AND THE MAKERS - Heatwave In The Cold North
FLOTT - 20 og eitthvað
BJÖRN JÖRUNDUR - Tíðhnit
YUNGAMLI - Pungur á klúbbnum
THE CURE - Why Can't I Be You?
TALKING HEADS - Road To Nowhere
ACE OF BASE - Beautiful life
MADONNA - Beautiful Stranger
LUIGI, MARON BIRNIR - Berdreymi
TAME IMPALA - Dracula
SANTIGOLD - Disparate Youth
CALVIN HARRIS, JAZZY - Satisfy
OLIVIA DEAN - So Easy (To Fall In Love)
NELLY - Hot In Here
Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.
Þær Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunnar í Vinsældalista Rásar 2.
Mættar aftur eftir stutt frí. Ragga giggaði alla Verslunarmannahelgina á meðan Vilborg fór í útilegu. Mikið nýtt á lista, endurkomur og gömul og góð!
Lagalistinn:
Brunaliðið & Pálmi Gunnarsson - Ég er á leiðinni
Tame Impala - Dracula
Of Monsters And Men - Ordinary Creature
Nýdönsk - Frelsið
Aldous Harding feat. H. Hawkline - Venus in the Zinnia
Baksýnisspegilinn: Ricky Martin - Livin la vida loca
Ariana Grande- hate that i made you love me
Memfismafían & Björn Jörundur - Ég kenni þér um
Quarashi - Do it again
Topp 10:
10. Chaka Khan & Snoop Dogg - Boogie's In My Soul
9. Kacey Musgraves - I Believe In Ghosts
8. Dominic Fike - Babydoll
7. Klara Einars - Ef Hann Myndi
6. Daði Freyr - I'm Out And I Wanna Go Home
5. Pálmi Gunnarsson - Skref Fyrir Skref
4. Calvin Harris & Jazzy - Satisfy
Spákúlan : KARLOTTA - Svarthvíta hetjan mín
3. Harry Styles - Dance No More
2. U2 - Street Of Dreams
1. Steinunn Yones & Gnúsi Yones feat. Kraftgalli & Teitur Magnússon - Spóla Til Baka

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.
Það eiga allir einhverjar góðar og jafnvel trylltar minningar af dansgólfinu þar sem diskókúlan snýst. Við spilum dansmelli áratuganna og kyndum upp í minningum hlustenda. Við rifjum upp skemmtistaði, ákveðin ár eða gullaldartímabil þar sem dansgólfin voru troðfull af gleði og látum.
Þátturinn geymir dagskrárliði eins og Diskótvennuna, Dansárið er, Skemmtistað fortíðar, Veislustjórann og íslenska lagið. Að lokum er kokteill kvöldsins hristur fyrir hlustendur, nokkurra laga syrpa með lögum úr ýmsum áttum.
Í þætti kvöldsins spilum við hvern dansslagarann á fætur öðrum í órökréttri en fumlausri röð.
Í fyrri hlutanum fáum við að sjálfsögðu diskótvennu og förum út í frímínútur með þáttarstjórnendum þar sem þeir handvelja allskonar gleði danssprengjur handa hlustendum.
Við kíkjum síðan inn á troðfullan skemmtistaðinn Kíkí í fylgd plötusnúðsins Mellí 777, förum aftur til dansársins 1990 og fikrum okkur svo auðvitað á barinn og hristum kokteil kvöldsins.

Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
