22:08
Sumarmál
Uppruni og þróun íslensku fuglaheitanna, Jeppaþjóðin og trúss og fugl dagsins

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Fuglar gegna mikilvægu hlutverki í Sumarmálum, það ætti ekki að hafa farið framhjá þeim sem hlustað hafa á þáttinn undanfarin sumur. En við fengum mjög áhugaverða ábendingu frá hlustanda þar sem var skorað á okkur að skoða betur fuglanöfn, sem sagt íslensku fuglaheitin og grafast fyrir um uppruna þeirra og þróun. Við ákváðum því að leita til sérfræðings, Haukur Þorgeirsson rannsóknarprófessor á Árnastofnun kom í þáttinn og fræddi okkur um fuglsheiti, til dæmis í tengingu við indó-evrópsk fuglsheiti og goðsögur, notkun þeirra sem mannanöfn, fuglsheiti sem eru upprunalega hljóðgervingar og margt fleira.

Svo var það fimmta innslagið af Jeppaþjóðinni, sem Elísabet Thea Kristjánsdóttir hefur sent okkur á miðvikudögum í sumar. Í Jeppaþjóð dagsins húkkaði Elísabet Thea sér far með trússara, Eiði Smára Valssyni, og fylgdi honum inn á Fjallabak, að Álftavatni og Emstrum, en þar eru skálar á miðri gönguleið Laugavegarins. Meðal annars ræddu þau um ferðamannabransann á hálendinu, upphaf trússins og hvernig slóðanet hálendisins varð til.

Fugl dagsins var svo auðvitað á sínum stað.

Tónlist í þættinum í dag:

Hudson Bay / Mannakorn (Magnús Eiríksson, texti Steinn Steinarr)

Bad Bad News / Leon Bridges (Bridges, Mercereau, Frederic, Hector, Jenkins & Block)

Egils appelsín / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna)

Chain of Fools / Aretha Franklin (Don Covey)

Umsjón: Gunnar Hansson og Hulda Geirsdóttir

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
e
Endurflutt.
,