Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.
Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu er nýlokið en það er annað heimsmeistaramót fram undan, nefnilega heimsmeistaramót í púsluspilum sem fer fram á Spáni í september. Þar keppir fólk frá tugum landa um hver getur lagt hundrað púslbita hraðast. Við Íslendingar eigum fulltrúa í keppninni í ár en mæðginin Signý Gunnarsdóttir og Gunnar Hrafn Sveinsson leggja land undir fót og taka þátt. Þau kíktu til okkar og sögðu okkur frá æfingaferlinu og hvað kom til að þau ákváðu að skrá sig til leiks.
Notkun peptíða til að bæta útlit hefur aukist gríðarlega hér á landi að undanförnu líkt og hefur verið fjallað um. Peptíð eru keðjur af amínósýrum en efnið gengur kaupum og sölum, aðallega á samfélagsmiðlum, í útlöndum og hér heima. Tollgæslan sendi nýverið ólöglega peptíða, sem hún gerði upptæk, til greiningar. Lítið reyndist um virk lyfjaefni í peptíðunum en óhreinindi voru mikil. En hvaða áhrif getur það haft á heilsu fólks að sprauta sig með þessum óhreinindum? Björn Rúnar Lúðvíksson, prófessor í ónæmisfræði við Háskóla Íslands, var á línunni hjá okkur.
Skuggi lagðist yfir gleðigönguna í Berlín síðustu helgi þegar bíl var ekið á hóp fólks með þeim afleiðingum að einn lést og sextáns manns slösuðust. Ódæðismaðurinn sem þar var að verki steig einnig út úr bílnum eftir að hafa ekið inn í þvöguna, réðst að nærstöddum með sveðju og veitti nokkrum þeirra alvarlega áverka. Yfirvöld tala um að hryðjuverkaárás hafi verið að ræða. Stjórn Hinsegin daga hér á landi sendi hinsegin samfélaginu í Berlín og öllum aðstandendum fórnarlamba árásarinnar samúðar- og stuðningskveðjur í gær en Hinsegin dagar eru einmitt fram undan í Reykjavík í næstu viku. Við ræddum við Helgu Haraldsdóttur, formann Hinsegin daga um nýliðna atburði og hátíðarhöldin sem fram undan eru hér heima.
Frá árinu 2020 hefur netverslunum með áfengi fjölgað ört á Íslandi en í dag bjóða um tuttugu fyrirtæki áfengi til sölu til einstaklinga. Enn á ný hefur mikil umræða skapast um þessi mál. Sigurður Ingi Jóhannsson, fyrrverandi fjármálaráðherra og þingmaður Framsóknarflokksins, sagði á dögunum óskiljanlegt að netsala með áfengi vaxi þegar dómur sé fallinn um að hún sé ólögleg. Hann kallaði eftir því að starfsemin yrði stöðvuð strax og að ríkisstjórnin tali skýrt í málinu. Embætti landlæknis lét kanna aldurseftirlit með áfengi í gegnum netsölur í byrjun árs eftir að hafa fengið fjölda ábendinga um að eftirliti væri ábótavant og niðurstöðurnar sýndu það einnig. Sveinbjörn Kristjánsson, sérfræðingur í hegðunarbreytingum hjá Embætti landlæknis og doktor í lýðheilsuvísindum ræddi um áhrif þess að leyfa netsölu með áfengi og hvernig eftirliti með þessum verslunum er háttað.
Fram undan er ein mesta ferðahelgi ársins, verslunarmannahelgin. Landsmenn flykkjast á útihátíðir, í útilegur eða á alla þá viðburði sem boðið er upp á um allt land um helgina. Áður en lagt er af stað skiptir auðvitað miklu máli að undirbúa sig vel. Taka til réttu fötin og búnaðinn, ganga úr skugga um að ferðamátinn sé klár og öruggur og svo er það sem skiptir marga mestu máli; hvað á að borða og að drekka? Ólafur Örn Steinunnar Ólafsson veitingamaður hefur marga fjöruna sopið þegar kemur að undirbúningi hvers konar snakks og hressingar og hann gaf fáein heillaráð fyrir helgina.
