Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Það er ekki skortur á umfjöllun um Bandaríkin og bandaríska ráðamenn í fréttum þessi misserin. Mest ber á ákvörðunum Bandaríkjastjórnar á alþjóðasviðinu en minna er fjallað um það sem er að gerast innanlands. Það hefur stundum verið talað um að ráðamenn í Bandaríkjunum séu flinkir í því að snúa athyglinni annað þegar erfið mál koma upp - hefja árásir eða stríð einhvers staðar til að draga athyglina frá þeim. Og við ætlum að fjalla um mál sem hafa kannski fallið í skuggann af stærstu fréttamálunum: bólusetningar barna, stríð gegn háskólum og krafa ríkisstjórnar Trumps um aðgang að upplýsingum um kjósendur. Ólöf Ragnarsdóttir fer með okkur til Bandaríkjanna.
Einir vinsælustu og mest umtöluðu sjónvarpsþættir samtímans heita Heated Rivalry. Þessi fremur ódýra framleiðsla á sjónvarpsþáttunum sex hefur borgað sig svo um munar. Aðalleikararnir tveir eru orðnir stórstjörnur, annar þeirra verður gestgjafi í Saturday Night Live síðar í mánuðunum. Og þeir voru meðal kyndilbera fyrir Ólympíuleikana, sem hófust einmitt í gær. En þeir leika í þáttunum elskendur, sem eru tveir bestu íshokkíspilarar heimsins. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir segir okkur allt um þættina vinsælu og áhrifin sem þeir hafa haft.
